Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 18
18 Myndir vikunnar 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað Ljósmyndarar Reuters fylgjast með því helsta sem gerist í heiminum. Mannskæður eldsvoði í Brasilíu, mótmæli í Belgíu og átök í Egyptalandi og Sýrlandi er á meðal þess sem setti svip sinn á vikuna sem er að líða.  Sáu Obama fljúga burt Þessi skemmtilega mynd er tekin af sjöttu bekkingum í Park Maitland skólanum í Flórída. Á myndinni eru nemendurnir, og kennarar, að fylgjast með því þegar Barack Obama Bandaríkjaforseti tekur á loft í Mar­ ine One, þyrlu sinni frá Hvíta húsinu. Þaðan var för hans heitið til Las Vegas.  „Fordæmalaus hryllingur“ Uppreisnarmennirnir í Frelsisher Sýrlands hafa haft í nógu að snúast undanfarna mánuði og misseri. Sendimaður Sameinuðu þjóð­ anna í málefnum Sýrlands, Lakhdar Brahimi, lýsir ástandinu í Sýrlandi sem fordæmalausum hryllingi. Landið virðist vera að liðast í sundur og blóði er úthellt daglega. Þessi hermaður lét hins vegar fara vel um sig þegar fréttaljósmyndara Reuters bar að garði, nálægt Menagh herflugvellinum í Aleppo, og kveikti sér í vatnspípu.  6 lögreglumenn særðust Belgísk eldri kona leitar skjóls hjá óeirðar­ lögreglu í borginni Liege í Belgíu. Fyrir utan þinghúsið í borginni mótmæltu á miðvikudag verkamenn í stáliðju stór­ fyrirtækisins Arcelor Mittal. Fyrirtækið er það stærsta í heimi á sínu sviði og hefur starfsemi í fjölmörgum löndum. Til stendur að loka stálsmiðjunni með þeim afleiðing­ um að 1.300 manns munu missa vinnuna. Verkamennirnir vilja að hið opinbera stöðvi áformin. Alls meiddust sex lögreglumenn í mótmælunum en þeir voru grýttir með múrsteinum. Því svöruðu þeir með táragasi og vatnsbyssum.  Bunki af byssum Paul Gracy, lögreglu­ maður í Seattle, sést hér burðast með vopn sem íbúar borgarinnar skiluðu inn í vikunni. Allir þeir sem skiluðu inn virk­ um skotvopnum til lögreglunnar fengu 100 dollara gjafabréf í staðinn, andvirði tæplega 13 þúsund íslenskra króna. Þeir sem skiluðu inn hríðskotabyssum fengu tvöfalt meira. Fjölmargir nýttu tækifærið og skiluðu inn skotvopnum sínum á þeim fjórum tímum sem það var hægt. Á áttunda hundrað byssum var skilað og alls runnu út gjafabréf fyrir um tíu milljónir króna.  Mótmæla Morsi Mótmælendur úr röðum stjórnarandstæðinga í Egyptalandi reyndu að verjast skothríð óeirðarlögreglunnar í Kaíró á miðvikudag. Myndin er tekin á Kasr El Nille brúnni, en hún er skammt frá Tahir torginu fræga, sem hefur verið aðal vettvangur mótmæla á undanförnum misserum. Yfirmaður Egypska hersins hefur látið hafa eftir sér að vaxandi óstöðugleiki ógni ríkinu og að stjórnin riði á barmi falls en herinn stýrði landinu þar til Mohamed Morsi forseti, sá fyrsti lýðræðiskjörni í sögu landsins, tók við völdum. Morsi virðist ekki ætla að takast að lægja öldurnar. Ofbeldi á götum úti og ófriður er daglegt brauð. Önnur bylting gæti verið í pípunum.  Syrgja ástvin Tvær stúlkur gráta í fangi móður sinnar við Boate Kiss næturklúbbinn í háskólaborginni Santa Maria í Brasilíu. 231 er látinn og einhverjir eru í lífshættu eftir að eldur varð laus á skemmtistaðnum. Lögreglan rannsakar tildrög slyssins en talið er að óhappið megi rekja til flugelda sem talið er að hljómsveit hafi kveikt á sviðinu. Allt að fimm hundruð manns voru á staðnum þegar eldurinn braust út en um helmingurinn brann, andaði að sér eiturgufum eða tróðst undir í ringul­ reiðinni sem skapaðist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.