Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Síða 22
Elmar Árnason Sæl Katrín.
Finnst þér eðlilegt að
fjár málaráðherra þjóðar geri
fátt annað en að tala eigin gjaldmiðil
niður í erlendum fjölmiðlum ?
Katrín Sæll Elmar, ég tel það hlut-
verk mitt að gefa eins skýra mynd
af stöðunni eins og hún blasir við
mér. Með því að tala fyrir upptöku
annars gjaldmiðils er ég að tala
fyrir meiri stöðugleika.
Kolbeinn Svavarsson Mun
bensín lækka og matvörur, lán
i bönkum og húsnæðislán
núna þegar við þurfum ekki að borga
Icesave?
Katrín Ekkert mun beinlínis lækka
vegna dómsins en nú er hinsvegar
ljóst að skuldir ríkissjóðs munu ekki
aukast og framtíðin verður bjartari.
Örvar Arnarson Við höfum
lært af þessu Icesave máli að
best sé að stjórnmálamenn
séu ekki að tjá sig mikið um
fjárhagsstöðu fjármálastofnana. Í ljósi
þess telur þú að það séu mistök að
stjórnmálamenn séu að tjá sig um
hugsanlegar útgreiðslur í framtíðinni
frá gamla Landsbankanum til
innistæðueigenda í Bretlandi? Ég spyr í
ljósi þess að þú gerðir það nú nýlega.
Katrín Þrotabúið er að greiða út. Er
þegar búið að greiða um 50 prósent
af forgangskröfum og meta stöð-
una þannig að þau muni geta greitt
þær allar. Ég var bara að endursegja
það sem áður hefur komið fram.
Laufey Kristjánsdóttir Sæl
Katrín! Hvaða skoðanir hefur
þú á því að fara í almenna
leiðréttingu á verðtryggðum lánum?
Katrín Þessi ríkisstjórn hefur stað-
ið fyrir mörgum aðgerðum til að
koma til móts við skuldug heimili.
Ein sú stærsta er niðurgreiðsla
vaxtakostnaðar heimilanna í gegn-
um vaxtabótakerfið. Það er aðgerð
sem nær til mjög margra. Nokkra
hópa þarf þó enn að skoða svo sem
þá sem eru með lánsveð og reyna
að mæta þeim sérstaklega og það
munum við gera. Þá finnst mér
mikilvægast af öllu að ráðast að
rótum vandans svo lánin haldi ekki
áfram að vaxa eftir leiðréttingu.
Það gerum við með því að skipta
um gjaldmiðil.
Inga Auðbjörg Sæl Katrín! Þú
ert yngsti sitjandi þingmaður
Samfylkingarinnar, en hefur þó
setið á þingi í heil 10 ár. Hvað heldurðu
að valdi því að yngra fólk virðist eiga
erfitt uppdráttar í flokksvali og prófkjör-
um og hvað getum við gert til að bæta
starfsumhverfið og -skilyrðin til þess að
ungt fólk fái meira vægi?
Katrín Takk Inga fyrir að benda
á þetta. Ég var nefnilega ekki
yngst þegar ég settist á þing fyrir
tæpum 10 árum en er það núna!
Þarna þurfa stjórnmálaflokkarnir
að horfa í eigin barm og halda vel
utan um og styðja við unga fólkið
í flokkunum. Mikilvægast er að
styðja vel við ungliðahreyfingar og
tryggja með öllum tiltækum ráðum
að þær séu með sterka stöðu innan
flokkanna.
Örn Jónsson Telur þú að lokun
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði,
hafi verið rétt, það hafi verið
staðið faglega að henni og myndir þú
beita þér fyrir því að opna spítalann
aftur í óbreyttri mynd?
Katrín Húsnæði St. Jósefsspítala
verður að komast í gagnið aftur.
Við eigum í viðræðum við bæjaryf-
irvöld í Hafnarfirði um það. Hvað
það nákvæmlega verður get ég
ekki sagt til um á þessari stundu.
Varðandi lokunina þá tel ég að
menn hafi verið að spila eins vel og
þeir gátu úr þröngri stöðu.
Bryndís Jónsdóttir Issa
Langar að vita hvar
gengistryggðu lánin fyrir
einstaklinga eru stödd í kerfinu?Ætlið
þið ekkert að fara að ýta á að eitthvað
sé gert í þeim?
Katrín Við erum búin að hitta
fulltrúa lánastofnana til að ýta
á eftir þessu. Höfum lagt á það
þunga áherslu. Þessi óvissa er
óþolandi fyrir þá sem bíða. Við
munum halda áfram að þrýsta á að
útreikningum ljúki.
Guðni Jónasson Sæl Katrín,
þessi spurning er mér hjartans
mál. Ert þú femínisti?
Katrín Já, ég er femínisti Guðni!
Kynin eru enn ekki jöfn í okkar
samfélagi, hvort sem er í launum
eða stöðum í samfélaginu. Að ekki
sé minnst á kynbundið ofbeldi. Á
meðan staðan er þannig þá trúi
ég á aðgerðir og að stjórnvöld eigi
að beita lagasetningu til að koma
málum í betra horf. Ég hef líka sýnt
það í verki og þegar ég fór úr emb-
ætti iðnaðarráðherra voru konur
51 prósent af öllum þeim sem áttu
sæti í nefndum og ráðum á okkar
vegum. Svo eitt dæmi sé tekið.
Sólrún Halldórsdóttir Sæl,
hvað segir þú um þær ásakanir
að þú getir ekki orðið
varaformaður ef Árni Páll sigri
formannskjörið því þið séuð bæði
„hægri kratar“?
Katrín Ég er fyrst og fremst
jafnaðarmaður og tel ekki hægt
að setja á mig einhvern hægri eða
vinstri stimpil. Ég hef sterkar skoð-
anir á því að hlutverk stjórnvalda
sé að reka sterkt velferðarkerfi og
öflugt menntakerfi úr opinberum
sjóðum. Og að jafnframt þurfi að
tryggja stöðugt og hagfellt um-
hverfi fyrir atvinnulífið. Þetta þarf
að fara saman. Ég get unnið með
þeim báðum og ekki á að skipta
neinu máli hvor verður formaður.
Sigurjón Guðmundsson
Myndir þú telja að
for gangs röðun ríkisins sé í
samræmi við það sem teljast megi
skynsamlegt hvað varðar til dæmis
stöðu aldraðra sem og sjúkra? Nú er það
að verið sé að leggjast í fram kvæmdir á
4. stjörnu „hóteli“ fyrir fanga. Hvaða
skilaboð eiga að felast í því?
Katrín Þessi ríkisstjórn hefur
lagt á það mikla áherslu að
verja velferðakerfið í þeim erfiða
niðurskurði sem við höfum þurft að
standa í eftir bankahrun. Og núna
þegar tækifæri gafst til í fjárlögum
þessa árs þá sjást þessi merki að
þetta eru þeir málaflokkar sem við
erum byrjuð að auka fjármagn til
aftur. Fangelsi þarf að byggja, hér
eru langir biðlistar í fangelsin og
mikilvægt að vinna á þeim. Ég held
að það sé ekkert 4 stjörnu við það
að vera ekki frjáls ferða sinna og
sitja á bakvið lás og slá.
Bylgja Hilmarsdóttir Er verið
að vinna í málum þeirra sem
tóku húsnæðislán, að hluta til
með veði í húsi foreldra (eða annarra
nákominna)? Eiga þeir ekki rétt á að
njóta 110 prósenta leiðarinnar eins og
aðrir sem skuldsettu sig fyrir
íbúðakaupum fyrir hrun?
Katrín Ráðherranefnd um skulda-
mál heimilanna hefur verið að
vinna með þetta mál og vænti ég
niðurstöðu fljótlega. Það sem hefur
verið hvað þyngst í þeirri vinnu er að
ná samkomulagi við lífeyrissjóðina
sem eiga mikið af þessum viðbót-
arlánum. Viljann hefur ekki vantað
en verkfærin eru fá.
Eymundur Eymundsson Sæl
Katrín. Nú kom út svört skýrsla
frá landlæknisembætti um
þjónustu á geðsviði hér á Akureyri. Er
einhver von að það verði gert í því máli.
Nú þarf fólk að fara reglulega suður
með börn sín á BUGL með tilheyrandi
kostnaði fyrir ríki og foreldra. Væri ekki
nær að láta þann pening í að byggja
upp samskonar starfsemi fyrir norðan ?
Væri ekki nær að fækka sendiráðum og
nota þann pening í heilbrigðiskerfið ?
Trúi varla að það þurfi öll þessi sendiráð
í dag þar sem tæknin er orðin svo mikil ?
Katrín Ég þekki ekki til skýrslunnar
en auðvitað væri best ef við
gætum veitt þjónustu sem næst
heimahögunum. Þetta er mikilvæg
en viðkvæm þjónusta sem BUGL
veitir og ég get ímyndað mér að það
sé líka álag fyrir börnin sem þurfa
þjónustuna að þurfa að rífa sig upp
úr sínu samfélagi til að sækja hana.
En ég skal kynna mér efni þessarar
skýrslu og sjá hvað hægt er að gera.
Sigurður Arnason er það rétt
að verðtryggð lán heimilanna
hafi hækkað um 9,5 prósent
vegna skattahækkana á kjörtímabili
þessarar ríkistjórnar? Og ef svo er, er það
réttlætanlegt að fólk borgi bönkum og
lífeyrissjóðum gjald (verðbætur) fyrir
það að fá hærri skatta?
Katrín Eftir bankahrunið var það
alger lykilforsenda batans að
stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs
með því að loka fjárlagagatinu.
Nú hefur það tekist og fyrirséð að
jöfnuður verði á fjárlögum á næsta
ári. Til þess var farin blönduð leið
niðurskurðar og skattahækkana.
Jafnframt hækkuðu ýmis gjöld til
að fylgja verðlagi. Það var vægast
sagt úr þröngri stöðu að spila.
Krónan heldur verðtryggingunni
á lífi auk þess sem gengisfall
krónunnar er ein stærsta ástæða
hækkunar húsnæðislána. Á því þarf
að taka!
Ástasigrún Magnúsdóttir Ég
vænti þess að miklar
ráðstafanir hafi verið gerðar
vegna fjárhags ríkissjóðs og Icesave.
Hvernig verður þessum peningum nú
varið? Gætu þeir t.d. leyst vanda
Landspítalans?
Katrín Icesave var ekki enn orðinn
hluti af ríkisfjármálaáætlun.
Einungis var gerður fyrirvari í fjár-
lagafrumvarpi vegna þeirrar óvissu
um þennan þátt sem uppi var. Sem
betur fer fór það mál á besta veg
fyrir okkur og því þrengir minna
að okkur og skuldastaðan versnar
ekki. Svigrúmið verður þá meira
lengra inn í framtíðina. En því miður
voru þetta ekki fjármunir sem við
getum nú sett í annað beint.
Sigurður Arnason Katrín, þú
svaraðir ekki spurningunni. Er
það rétt að verðtryggð lán
heimilanna hafa hækkað um 9,5
prósent vegna skattahækkana
þessarar ríkistjórnar?
Katrín Einhverjar skattahækkanir
hafa haft áhrif á verðlag, já.
Óskar Guðmundsson
Samkvæmt grein í
Frétta blaðinu í dag hefur
atvinnuleysi ekki minnkað og ljóst er að
samdráttur í unnum klukkustundum
hefur lækkað um 10,5 prósent. Hvað er
það sem að þið teljið að hafi „batnað“
eftir hrun í velferðarmálum þjóðarinnar?
Katrín Atvinnulausum hefur
sem betur fer fækkað úr nærri 9
í rúmlega 5 prósent og störfum
hefur fjölgað. Enn er þó af nægu
að taka og verkefninu ekki nærri
lokið. Lækkun á tryggingagjaldi um
0,1 prósent á þessu ári, átakið allir
vinna, endurgreiðslur á rannsóknar-
og þróunarkostnaði fyrirtækja,
endurgreiðslur í kvikmyndagerð og
ívilnanir vegna nýfjárfestinga eru
dæmi um verkfæri sem við höfum
skapað til að örva atvinnulífið.
Næst á dagskrá eru skattaíviln-
anir vegna fjárfestinga í litlum og
meðalstórum fyrirtækjum.
Davíð Þór Sæl. Á ekkert að
fara að stoppa þetta
svokallaða „kennitöluflakk“.
Menn virðast geta fært eignir óhindrað
milli félaga og skilið skuldasúpuna eftir
með tilheyrandi tjóni fyrir kröfuhafa.
Samanber frétt um Keiluhöllina hér á
DV á dögunum. Er ábyrgð stjórnenda
engin?
Katrín Við deilum áhyggjum af
þessu Davíð Þór. Manni svíður að
lesa þessar fréttir. Því miður hefur
þetta verið lenska hér á landi lengi
og ekki einfalt mál að fara í en ég
ætla engu að síður að kemba verk-
færakistuna vandlega og sjá hvort
ekki sé meira sem hægt er að gera.
Það sama á við um skattaundan-
skot, en þar erum við að fara að
taka fastar á málum.
Sigurbjörn Tryggvason Ég
upplifi að sjávarútvegurinn sé
beittur þyngri kröfu um
auðlindarentu en aðrar auðlindir, finnst
þér ekki að jöfnuður eigi við gagnvart
atvinnugreinum/auðlindum?
Katrín það er eðlilegasti hlutur í
heimi að þjóðin fá arð af auðlindum
sínum, sama hverjar þær eru.
Auðlindarentan á sjávarútveginn
leggst eingöngu á hluta hagnaðar-
ins og ég tel hana sanngjarna.
Natan Kolbeinsson Af hverju
vilt þú verða varaformaður
Samfylkingarinnar?
Katrín Það er svo margt sem mig
langar að taka þátt í að gera með
félögum mínum í Samfylkingunni.
Við erum að fara inn í kosningar
sem verða að snúast um framtíð-
ina. Við erum með skýra stefnu og
því vel undirbúin undir þá umræðu.
Ég vil einfaldlega taka þátt í því að
bera hana á borð. Mér finnst líka
mikilvægt að á næsta kjörtímabili
náum við að skapa víðtæka sátt
um þétt vaxtaplan fyrir Ísland
og að því vil ég vinna í forystu
Samfylkingarinnar.
Kári Kárason Sæl, mig langar
að spyrja um verðtrygginguna.
Er möguleiki að endurskoða
hana á þeim forsendum að kippa út
vörum þar sem ríki hefur verið einhliða
að hækka, svo sem tóbak og áfengi?
Katrín Þessi samsetning
vísitölunnar hefur oft verið rædd í
þessu samhengi og mér finnst við
verða að ræða það áfram. Varðandi
verðtrygginguna þá er eina raun-
hæfa leiðin til að losna alveg við
hana að taka upp gjaldmiðil sem
ekki þarf að tryggja með þessum
hætti. Ég held að flestir flokkar
séu sammála um að við þurfum að
losna við verðtrygginguna en við
deilum um leiðir. Við í Samfylk-
ingunni höfum lagt fram skýra
stefnu og í næstu kosningum verð-
ur þjóðin að kalla eftir því sama frá
öðrum framboðum.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Hvers vegna sóttist þú ekki
eftir formannsembættinu?
Katrín Það var ákvörðun sem ég tók
eftir þó nokkra umhugsun. Ég vildi
frekar bjóða mig fram í em bætti
varaformanns og vinna þannig enn
þéttar með mínum félögum.
Kári Kárason Takk fyrir svarið
Katrín, málið er að
gjald miðils breytingar eru ekki
að gerast næstu dagana, mér finnst það
ótrúlegt ósamræmi að ríkið sé að ná í
aukatekjur en í leiðinni að auka byrðina
á skuldara vegna tengingar við
verðtrygginguna. Í rauninni ótrúlegt að
þetta hafi verið oft rætt eins og þú
sagðir en ekkert gert. Common Katrín
þið hljótið að geta gert betur? Þjóðinni
blæðir út.
Katrín Þetta er stærsta málið Kári
að mínu mati. Við verðum að létta
á skuldum heimila og fyrirtækja.
Við verðum að tryggja þeim stöð-
ugt efnahagsumhverfi. En þetta
hangir allt saman. Ríkisfjármálin
þurfa að vera í lagi og er það í raun
forsenda alls annars. Ef við vitum
hvernig við ætlum að haga gjald-
miðilsmálum okkar í framtíðinni þá
getum við gert áætlun um leiðina
að því marki.
Guðmundur Þorsteinsson
Sæl vertu. Núna skilst manni
að ómögulegt sé að taka upp
evru án ESB aðildar, er hægt að
fasttengja krónuna við evruna eins og
til dæmis Danir og Svíar gera, án
aðildar? Hefur upptaka USA dollars
verið skoðuð af viti ?
Katrín Þverpólitísk nefnd skilaði
niðurstöðu nú í haust og um eitt
voru menn sammála þar og það
var að einhliða upptaka annars
gjaldmiðils væri ekki vænleg leið
fyrir okkur. Ef við tökum upp evru
þá erum við að gerast aðilar að
myntbandalagi og eigum þá sæti
við stjórnborðið. Einhliða upptaka
og fasttenging (án aðildar að ESB)
er svolítið eins og að teika bílinn á
hjólabretti og vona að bílstjórinn
taki ekki of skarpar beygjur. Ég
útiloka þó aldrei neitt – kannski
væri það betri kostur einhvern tíma.
Jónas Halldórsson Sjálfur er
ég útlægur í Noregi. Starfa í
byggingargeiranum, flutti út í
haust. Við erum orðnir ansi margir
tæknimennirnir og aðrir kollegar sem
störfum hér í útlegð. Það bíða allir eftir
því að það fari að rofa til. Hvernig sérð
þú fyrir þér að hjólin fari í gang aftur í
mínum geira? Hversu lengi telurðu að
ég og hinir mörg þúsund kollegar mínir
þurfum að vera í útlegð?
Katrín Forsendur fyrir auknum
vexti eru að skapast. Við höfum
náð tökum á ríkisfjármálunum,
sem er forsenda fyrir losun
fjármagnshafta, aðgengi að fjár-
magnsmörkuðum erlendis hefur
opnast og áfram mætti telja. Nú er
það lykilatriði að gera enn betur til
að koma hér fjárfestingunni upp og
að því er unnið og ég tel horfurnar
jákvæðar.
22 Umræða 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað
„Verkfærin eru fá“
Katrín Júlíusdóttir var mikið spurð um verðtryggingu og skuldamál heimilanna á Beinni línu á fimmtudag
Væri drengilegt
að biðjast
afsökunar
Frosti Sigurjónsson, framsóknar-
maður og meðlimur Advice-hóps-
ins kom á stutta Beina línu
Magnús Magnússon Finnst þér að allir þeir 44 alþingismenn sem sögðu „JÁ“ við Icesave 2011 ættu að segja
upp tafarlaust og leyfa þjóðinni að kjósa?
Frosti Sæll Magnús, ég er reyndar ekki
á því að þeir eigi að ganga út sem kusu
með Icesave. Það er samt fullt tilefni til að
skoða hvað fór úrskeiðis í þessu máli.
Sigurður Eggertsson Hvað veldur
óstöðugleika í fjármálakerfinu og
hvernig getum við lagað það?
Frosti Sæll Sigurður, ég hef einmitt verið
að skoða þetta mjög mikið síðan í hruninu
og er á því að peningakerfið sé gallað.
Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt
að laga gallann með því að færa peninga-
valdið frá viðskiptabönkum til þjóðarinnar
(Seðlabankans). Meira má lesa um þetta
á www.betrapeningakerfi.is
Egill Friðriksson Telurðu að
Framsókn muni taka upp hugmyndir
Betra peningakerfis?
Frosti Sæll Egill, ég vona það mjög
innilega og er á fullu að kynna og upplýsa
flokksmenn um þessa leið. En það verður
að koma í ljós á landsfundinum hvort
flokkurinn vill taka upp þetta málefni.
Fundarstjóri Finnst þér ástæða fyrir
íslenska ríkið til að leita réttar síns
vegna hryðjuverkalaganna?
Frosti Mér skilst að réttur til að kæra
breskar stjórnvaldsaðgerðir fyrir þarlend-
um dómstólum sé runninn út.
Birgir Olgeirsson Var þetta alveg
skothelt mál? Var það ekki
ábyrgðar hluti stjórnvalda að semja
fremur en að taka áhættu með því að fara í
þennan málarekstur?
Frosti Sæll Birgir, rökin voru okkar megin,
en það var samt ekki 100 prósent að EFTA
dómstóllinn myndi dæma okkur í hag. En
þótt hann hefði gert það var mjög ólíklegt
að það hefði leitt til skaðabóta sem hefðu
verið hærri en þær greiðslur sem samið var
um í Icesave III samningnum. Þess vegna
var ábyrgara að fara dómstólaleiðina og
láta reyna á réttmætið.
Eiríkur Magnússon Hvernig getur þú
séð fyrir þér að hægt verði að stýra
hér stöðugleika í efnahagsmálum?
Frosti Sæll Eiríkur, Framsóknarflokkurinn
hefur talað fyrir leiðréttingu skulda í mörg
ár og lagt fram nokkrar leiðir. Til dæmis
var hægt að gera hluti meðan nýju bank-
arnir voru í eigu ríkisins. Sú leið er farin en
við höfum verið að leita annarra leiða og
munum kynna þær kjósendum. Vonandi
boðar það gott. Hér er atvinnuleysi og
töluvert svigrúm til hagvaxtar án þess að
það leiði strax til verðbólgu. Svo höfum
við hugmyndir um hvernig megi hemja
peningaþenslu bankanna, sem er mikill
verðbólguvaldur.
Ingi Vilhjálmsson Á ríkisstjórnin að
biðjast afsökunar í ljósi Icesave-
niðurstöðunnar?
Frosti Sæll Ingi, það fyndist mér drengi-
legt af þeim.
Guðmundur Þorsteinsson Núna er
fortíð framsóknar ekki beint
flekk laus, og margir menn nátengdir
flokknum hafa komist í fjölmiðla fyrir vægast
sagt vafasama fjármálagjörninga. Hefur þú
áhyggjur af að sú fortíð skemmi fyrir
hug mynd um flokksins í dag meðal
almenn ings?
Frosti [...]Flokkurinn hefur lært af reynsl-
unni, hann setti sér siðareglur fyrstur
flokka og þar er fyrsta greinin að þjóðar-
hagur gangi ofar hagsmunum flokksins.
Framtíð framsóknar er björt og hann hefur
allavega það umfram ný framboð að hann
hefur gert mistök og lært af þeim.
Sigursveinn Þórðarson Sæll Frosti.
Nú heyrist mikið að þær tafir sem
urðu út af dómsmálinu hafi kostað
Ísland nánast ávinninginn af því að vinna
dómsmálið. Liggur fyrir, ef við hefðum tapað
málinu hvað það hefði kostað okkur?
Frosti Kostnaðurinn við Icesave III
samninginn hefði verið 80 milljarðar,
eða 800.000 kr. á heimili. Ef við hefðum
tapað EFTA-málinu þá hefði það ekki leitt
til sekta. Bretar og Hollendingar, hefðu
þurft að sýna fram á tjón sem var mjög
langsótt.
M
y
N
D
Ir
S
IG
Tr
u
G
G
u
r
A
r
I
Nafn: Katrín Júlíusdóttir
Starf: Fjármála- og efnahags-
ráðherra
Aldur: 38 ára
Nám: Stúdent frá MK 2004
og nám í mannfræði við HÍ
1995-1999.