Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 29
„Þú átt enga
samúð skilið“
29Helgarblað 1.–3. febrúar 2013
morð á mánuði Richard Trenton Chase var bandarískur fjöldamorðingi sem tók líf sex ein-
staklinga í desember og janúar 1972–1973. Hann fékk viðurnefnið vampíran frá Sakramentó þar sem hann drakk
blóð fórnarlamba sinna og át líffæri þeirra. Hann var dæmdur til dauða, þrátt fyrir augljósan geðsjúkdóm, en
framdi sjálfur sjálfsvíg í fangelsi árið 1980. 6
n Mamma hans afneitaði honum n Réðst á konur og börn
É
g veit að það er hræðilegt
að segja það, en núna get
ég verið róleg vitandi að
hann situr í fangelsi. Ég fer
að sofa á kvöldin og þegar
ég vakna næsta dag og heyri af
árás eða ráni þá veit ég að það er
ekki Lenny,“ sagði móðir Leonard
John Fraser, einum alræmdasta
nauðgara og morðingja Ástralíu.
Hann nauðgaði konum og myrti
ungar telpur á löngum afbrotaferli.
„Ég hef afneitað honum sem syni
mínum.“ Með miklum trega sagði
hún að líklegast væri þetta fyr
ir bestu, syni hennar væri einfald
lega ekki treystandi til að ganga
lausum. Hann átti þó eftir að brjóta
gegn fleiri konum og börnum þang
að til hann var loksins dæmdur í
lífstíðarfangelsi árið 2000.
Augljós veikindi
Þetta var árið 1974 og Fraser hafði
verið dæmdur í 22 ára fangelsi
fyrir tvær tilraunir til nauðgunar
og tvær hrottafengnar nauðganir.
Geðlæknir sagði hann vera
samviskulausan og klókan og hann
gerði hvað sem væri til að fá sínu
framgengt. „Að þessu sögðu þá
fellur hann ekki undir neinar skil
greiningar okkar á geðveiki og við
þekkjum enga leið til að meðhöndla
augljós veikindi hans,“ sagði lækn
irinn. Sjö árum seinna var hann
laus á skilorði, þvert ofan í aðvaran
ir dómara og geðlækna sem vildu
að hann lyki afplánuninni.
Neyddi þær til að leiðast
Árið 1985 var hann svo handtekinn,
grunaður um nauðgun. Hann
játaði fljótlega að hafa elt unga
konu um nokkurt skeið og hafa svo
nauðgað henni á hrottafenginn
hátt. Lögreglan hafði þekkt
ofbeldisverkið á lýsingunum frá
fyrri glæpum hans, en Fraser réðst
iðulega að konunum aftan frá,
reif hendur þeirra aftur á bak og
nauðgaði þeim. Þá neyddi hann
þær oft, þeim til mikillar skelf
ingar, til að ganga með sér hönd í
hönd í burtu þegar hann hafði lok
ið sér af. „Þú átt enga samúð skil
ið,“ sagði dómarinn og núna var
hann látinn afplána allan dóminn
eða 12 ár. Samfangar hans óttuðust
hann enda var hann óútreiknanleg
ur og ofbeldisfullur. Fangelsismála
yfirvöld voru sannfærð um að um
leið og honum yrði sleppt myndi
hann brjóta aftur af sér.
Réðst á litlar stelpur
Eftir síðasta dóminn virtist ofbeldis
hneigð Fraser hafa aukist og glæp
irnir urðu enn skelfilegri. Árið 2000
viðurkenndi hann nauðgun og morð
á níu ára telpu, Keyru Steinhardt.
Hann neitaði að hafa átt þátt í
morðinu, en þegar hann var hand
tekinn sagði hann við lögregluna:
„Mér þykir leitt að þetta gerðist og
ég skil ekki hvernig það gat gerst.“
Þeir tóku því sem játningu og hann
hlaut í kjölfarið dóm. Síðar, árið
2003, var hann svo dæmdur fyrir
morðin á þremur konum – en nú
skyldi tryggt að hann myndi aldrei
aftur sleppa. Dómarinn sagði hann
vera „ólæknanlegan“ og girnd hans
til að kvelja konur og börn ættu sér
varla hliðstæðu. Leonard Fraser
hlaut þrjá lífstíðardóma. Hann lést
eftir hjartaáfall í fangelsi árið 2006,
55 ára gamall. n
Var bara níu ára Keyra var bara níu ára þegar
Leonard réðst á hana; nauðgaði og myrti.
Skelfileg grimmd Fraser á sér enga hliðstæðu að mati ástralskra fjölmiðla.