Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 44
Súrmeti, rauðvín
og veðbanki
44 Fólk
Hvað er að
gerast?
1.–3. febrúar
Föstudagur01
feb
Laugardagur02
feb
Sunnudagur03
feb
Ef lífið væri söngleikur
Söng- og leikararnir
Bjarni Snæbjörnsson,
Margrét Eir, Orri Huginn
Ágústsson og Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir flytja
ódauðleg lög úr söngleikj-
um sem áhorfendur hafa
grátið yfir og hlegið með. Þetta er tón-
leikaröð sem kemur við hjarta leikhús- og
söngleikjaunnenda í flutningi framúr-
skarandi listamanna. Tónlistarstjórn er
í höndum Kjartans Valdemarssonar en
flutt verða lög úr söngleikjum eins og
Guys and Dolls, Kiss Me Kate, Porgy og
Bess, West Side Story, Company, Sween-
ey Todd og The Sound of Music
Salurinn Kópavogi 20.00
Caput: Kínversk nútímatónlist
Tónleikar í tilefni af 60 ára afmæli KÍM
– kínversk-íslenska menningarfélagsins.
Einleikari er Wei-Ji sem spilar á hið forna
kínverska hljóðfæri gu-zheng. Heiðurs-
gestir verða Ma Jisheng, sendiherra
Kína á Íslandi, Xiaogang Ye, listrænn
stjórnandi Beijing Modern Music Festival
og Katrín Jakobsdóttir, menntamála-
ráðherra.
Norðurljós 17.00
Skálmöld í Hofi
Skálmöld heldur
útgáfutónleika þar
sem nýja platan
Börn Loka verður
leikin í heild sinni og
sagan sem platan geymir
verður rakin í tónlist, máli og myndum.
Hljómsveitin hefur stimplað sig inn í
íslenskt tónlistarlíf síðustu árin en hún
spilar melódískt víkingarokk af þyngri
gerðinni sem virðist eiga upp á pallborðið
hjá ungum jafnt sem öldnum. Miðar seld-
ust upp svo ákveðið var að halda auka
tónleika síðar um kvöldið.
Hof, Akureyri 23.00
Þekktu mitt gula sjálf
Einu sinni var listamaður
sem átti uppáhalds lit,
það var gulur. Eins og
margir listamenn nú
á tímum hafði hann
nokkur viðfangsefni sem
hann hafði einskonar stjórn
á með huganum. Einn daginn
þegar hann var í sínum gulu hugleiðing-
um ákvað hann að búa til fleiri listamenn
úr viðfangsefnunum sem hann átti í
geymslu í hans gula hugarheimi. Verkið
er eftir „Color Coded Concomittance“ í
samvinnu við Norðurpólinn listafélag.
Norðurpóllinn 20.00
Úr ljóðum Laxness
Kammerkór Norðurlands flytur lög við
ljóð Halldórs Laxness en þann 23. apríl
síðastliðinn voru 110 ár liðin frá fæðingu
Nóbelsskáldsins. Á efnisskránni verða
þekkt kórlög við ljóð Laxness og einnig
hefur kórinn fengið til liðs við sig nokkur
tónskáld sem hafa samið ný lög fyrir
þetta tilefni. Flutt verða lög eftir; Jóhann
G. Jóhannsson, Báru Grímsdóttur, Jón
Ásgeirsson, Hróðmar Inga Sigurbjörns-
son, Jón Nordal, Heimi Sindrason og Hauk
Tómasson. Stjórnandi Kammerkórs Norð-
urlands er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Hamrar 20.00
1.–3. febrúar 2013 Helgarblað
Sjö lög keppa um að verða framlag Íslands til
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Svíþjóð
nánar tiltekið í Malmö, í maí. Margir gera sér daga-
mun á þessum degi og eru haldin sérstök Eurovision-
partí með tilheyrandi stemningu. DV heyrði í
nokkrum einstaklingum og forvitnaðist um plön
þeirra fyrir söngvakeppnina á laugardagskvöldið.
É
g læt Eurovision-undankeppn-
ina aldrei fram hjá mér fara,“ seg-
ir Ellý Ármannsdóttir fjölmiðla-
kona þegar hún er spurð um hvað
laugardagskvöldið beri í skauti sér.
„Bæði ég og yngsta dóttir okkar fylgj-
umst vel með keppninni þetta árið.
Hún er fimm ára gömul og syngur
og dansar með lögunum. Nú bið-
ur hún okkur um að fá að hlusta á
Birgittu Haukdal og Unni Eggerts-
dóttur á Youtube. Mér finnst yndis-
legt að heyra hana syngja með og
hvað hún sýnir þessu mikinn áhuga,“
segir Ellý. Búið þið fjölskyldan til ein-
hverskonar leik í kringum keppnina?
„Nei engir leikir – bara notalegheit,“
segir hún að lokum.
Kolbrún Ólafsdóttir
Spenn-
an tekur
völdin
Að sjálfsögðu horfi ég á, stemn-ing í því,“ segir Kolbrún Ólafs-dóttir sem starfar sem móttöku-
stjóri hjá Baðhúsinu sem segir enga
sérstaka uppskrift að keppniskvöldinu.
„Kannski frekar þegar stóra keppnin er,
þá er sko partí.“ Aðspurð um leiki segir
hún stemninguna nægja. „Ætli leik-
urinn sé ekki bara hver held-
ur með hverjum, og út
frá því kemur spenna
og keppnisandinn
tekur völdin,“
segir Kolbrún að
lokum.
Já ekki spurning!“ segir Grétar Örvars, spurður hvort hann ætli að horfa á söngvakeppnina á laugardagskvöldið. Hann er enda enginn
nýgræðingur þegar kemur að Eurovision.
„Ég luma því miður ekki á sérstakri júró-
uppskrift þó svo ég hafi gaman að því að
fylgjast með, heyra ný lög og sjá nýja kepp-
endur stíga inn á sviðið. Tek þetta svona eft-
ir aðstæðum hverju sinni. Það verður væntan-
lega eitthvað súrmeti á boðstólum þar sem ég
mun verja laugardagskvöldinu.“
Spurður um leiki og keppni segir hann veð-
bankann ómissandi. „Í fyrra var ég í júró-partí
hjá dóttur minni og þá var að sjálfsögðu settur
veðbanki í gang sem er ómissandi á slíku
kvöldi og það eykur á spennuna hjá
mannskapnum,“ segir Grétar, sem
tekur þetta alla leið með súrmeti
á kantinum og vonandi fulla vasa
af skotsilfri eftir veðmál
kvöldsins.
Grétar Örvarsson
Súrmeti og skotsilfur
Já ég horfi alltaf á hana, það er bara einhver hefð hjá manni. Mér finnst skemmtilegra að
horfa á undankeppnina hér heima
heldur en stóru aðalkeppnina,“
segir Erna Dís, sem er mörgum
kunn fyrir frábæra frammistöðu
sína í útvarpsþættinum sáluga
Magasín sem fluttur var á FM 95,7.
„Gott júró-kvöld er að vera um-
kringd vinum og/eða ættingjum,
borða góðan mat og allir kátir og
glaðir. Ég horfði á keppnina síð-
asta laugardagskvöld með bróður
mínum og fjölskyldunni hans. Það
fannst mér yndislegt. Það er gaman
að upplifa keppnina í gegnum litlu
frænkur mínar. Minnti mig á hvað
mér fannst þetta allt svo flott og
merkilegt þegar ég var yngri,“ seg-
ir Erna Dís.
Tekur þú þetta af fullri alvöru og
stundar veðmál þar sem háar fjár-
hæðir skipta um hendur þegar úr-
slit eru kunn?
„Ég hef einu sinni tekið þátt í
alvöru söngvakeppnisleik. Það var
mjög gaman en ég er bara svo lé-
leg að giska á hvaða lög komast
áfram. Við tókum okkur til á gamla
vinnustaðnum mínum og giskuð-
um á topp 10 minnir mig í stóru
keppninni og hve mörg stig Ísland
myndi fá í heildina. Ég var langt frá
því að vinna! En tók því ekkert illa
og stend í báðar fætur eftir þetta
kvöld,“ segir Erna Dís sem er alls
ekki tapsár.
Ellý Ármannsdóttir
Dóttirin dansar með
Allir kátir og glaðir
Erna Dís
Schweitz
Eriksdóttir