Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 46
46 Fólk 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað
Dómnefnd um Menningarverðlaun
DV í flokki arkitektúrs óskar eftir
tilnefningum á verkum sem lokið var á
árinu 2012. Leitað er eftir verkefnum á
breiðu sviði manngerðs umhverfis.
Tilnefningar ásamt stuttri lýsingu á
verkefni, ljósmyndum og teikningum
eftir því sem við á, skulu berast fyrir
11. febrúar 2013 á netfangið
helgi@tvihorf.is sem pdf-skjal.
Þau verk sem tilnefningu hljóta,
verða ljósmynduð sérstaklega.
Tilnefningar óskast
Hætt saman
A
rnar Gauti Sverrisson
og Jóhanna Pálsdótt-
ir hafa slitið samvist-
um, samkvæmt Séð og
Heyrt. Arnar Gauti og Jóhanna
þóttu með glæsilegri pörum
í bænum og unnu saman hjá
Elite skrifstofunni á Íslandi.
Arnar sem listrænn stjórn-
andi og Jóhanna sem fram-
kvæmdastjóri.
Þau ætla ekki að slíta sam-
vinnunni hjá Elite þrátt fyrir að
ástarævintýrið sé á enda.
n Ævintýrið úti hjá Arnari og Jóhönnu
Vaxandi veldi Jóns
J
ón Gunnar Geirdal stendur í
stórræðum en hann opnar nýj-
an veitingastað í mars. Staður-
inn ber heitið Lemon og verður
samblanda af stöðunum Joe & the
Juice, sem er geysivinsæll í Dan-
mörku, og Pret A Manger, sem er
stærsti skyndibitasali í Bretlandi.
Jón Gunnar stofnaði markaðs- og
kynningarfyrirtækið Ysland á síð-
asta ári, svo að viðskiptaveldi hans
virðist vaxandi með hverju árinu
sem líður.
DJ Margeir sér um tónlist staðar-
ins og parið Hálfdán Pedersen og
Sara Jónsdóttir sjá um hönnun hans,
en þau hönnuðu meðal annars
Geysisbúðirnar og KEX hostel.
n Opnar nýjan veitingastað í mars
„Er EkkErt
Hræddur“
n Gunnar á leið í stærsta bardaga sinn
É
g finn fyrir miklum stuðningi
frá Íslendingum. Ekki spurn-
ing,“ segir bardagamaður-
inn Gunnar Nelson sem seg-
ir stuðning þjóðarinnar hvetja
hann áfram í hringnum.
Gunnar er ekki þessi týpíski bar-
dagamaður sem er húðflúraður og
illur í sjón og svip. Hann vill þó ekki
ganga svo langt að kalla bransann
yfirborðskenndan. „Auðvitað getur
þessi bransi verið yfirborðskennd-
ur eins og allt annað en í honum
er líka mikið af fólki sem er með
hausinn á herðunum og fæturna
niðri á jörðinni; gott fólk sem er
skemmtilegt að vera í kringum.“
Gunnar hefur unnið huga og
hjörtu Íslendinga með frábærum
árangri sínum auk þess sem margir
hafa dáðst af rólyndi hans og nálgun
að íþróttinni. Sjálfur á hann í erfið-
leikum með að útskýra hvernig hon-
um takist að halda sér svona ró-
legum áður en hann stígur í
hringinn. „Eina leiðin til þess
er bara að vera það. Auð-
vitað tekur slíkt tíma. Við
stjórnum ekki hugsunum
sem poppa upp í höfuðið
en við stjórnum hvað við
gerum við þessar hugs-
anir. Og það sama á
við tilfinningar. Þetta
lærist með tíman-
um,“ segir Gunnar
og játar því að hafa
heyrt heimspeki
sína og hand-
boltastjörn-
unnar Ólafs
Stefánsson-
ar verið líkt
saman. „Ég
hef samt
aldrei talað
við Ólaf. Auð-
vitað hef ég
séð hann spila
og séð hann í
viðtölum en ég hef
ekki spáð mikið í hann sem persónu.
Kannski ætti ég að gera það. Ég hef
allavega heyrt tvisvar að við séum á
svipaðri línu. Mér hefur alltaf fundist
hann flottur íþróttamaður.“
Þrátt fyrir stífar æfingar seg-
ist Gunnar gefa sér tíma fyrir önn-
ur áhugamál sem eru meðal annars
ferðalög. „Mér finnst mjög gaman að
ferðast og svo líka bara að eyða tíma
með vinum og fjölskyldu. Yfirleitt
er ég fyrir mikla ró því þegar maður
er búinn að djöflast allan daginn er
gott að liggja bara fyrir og spjalla eða
spila. Eða jafnvel
fara norður í
sveitina til
afa og ömmu. Að fara þangað finnst
mér mjög frelsandi og þægilegt. Það
er svo gott að gera eitthvað allt ann-
að; lifa allt öðruvísi lífi en ég geri dags
daglega. Skipta út borgarlífinu fyrir
sveitalífið,“ segir hann en neitar því
að ætla sér að verða bóndi í framtíð-
inni. „Maður á náttúrulega aldrei að
segja aldrei en ég á mjög erfitt að sjá
það fyrir mér. Ekki eins og staðan er
í dag.“
Gunnar átti að keppa við við
Justin „Fast Eddy“ Edwards þann 16.
febrúar en vegna meiðsla Edwards
hefur hann fengið nýjan andstæðing,
„The Sandman“ Santiago. Sá á að
baki 35 bardaga innan MMA og
unnið 25. Vefsíðan Fight Matrix setur
hann í 23. sæti listans yfir bestu bar-
dagamennina en þar er Gunnar í 62.
sæti. Aðspurður segir Gunnar þenn-
an bardaga þann stærsta hingað til.
„En ég er ekkert hræddur. Þetta er
bara enn einn bardaginn. Það
þarf ekkert að flækja það
eitthvað frekar.“
Ósigraður Gunnar
viðurkennir að ein-
hverjir líki honum
við Ólaf Stefánsson
handboltakappa.