Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Qupperneq 48
Flottir krakkar í Breiðholti! Steinunn upplifði líka einelti n Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja- víkur, er greinilega ekki sá eini sem fengið hefur slæmar mót- tökur á íbúafundi í Grafarvogi. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrr- verandi borgarstjóri, sagði frá því á Facebook-síðu sinni í vikunni að hún hefði lent í svipuðum að- stæðum. „Man eftir nokkrum fundum í Grafarvogi þar sem ég upplifði svipað. Það hefur ekkert með íbúa þessa góða hverfis að gera en ég minnist þess að sömu einstaklingarnir mættu alltaf á fundi með eitt takmark – að gera eins lítið og þeir gátu úr persónu borgarstjóra,“ sagði Steinunn en Jón sagðist eftir fund- inn hafa upp- lifað „einelti og hreint og klárt ofbeldi“ af hálfu nokkurra fundar- gesta. Töpuðu gegn Landsbankanum n Fótboltatvíburarnir góðkunnu, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, töp- uðu dómsmáli gegn Landsbank- anum á fimmtudaginn. Málið höfðuðu þeir ásamt meðeigend- um sínum að matsölustaðnum Domo í Þingholtsstræti, Kormáki Geirharðssyni og Skildi Sigurjóns- syni, og snérist það um ábyrgð á skuldabréfi í tengslum við sölu staðarins. Fjórmenningarnir seldu Domo árið 2009 en voru í ábyrgð fyrir 10 milljóna króna skulda- bréfi nýja eigandans við Lands- bankann. Þegar nýi eigandinn gat ekki borgað féll ábyrgðin á fjór- menningana og þurfa þeir að reiða fram millj- ónirnar tíu sam- kvæmt dómn- um. Drakk afrískan ógeðisdrykk n Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, gerði sér ferð í Kolaportið á dögunum þar sem hann keypti sér svaladrykk frá Mad- ina í Ghana. „Ég var mjög spenntur, hafði aldrei smakk- að gos frá Afríku áður og sá fyrir mér sætan svaladrykk úr pálma- trénu. Ég varð fyrir mikl- um vonbrigðum því þetta er því miður algjört ógeð. Smakkast eins og gambri og blóð í einu, lyktar ógeðslega og ég kom ekki niður nema þremur sopum,“ segir Dr. Gunni á bloggsíðu sinni en tek- ur þó fram að hann ætli að halda áfram að kaupa torkennilegt dót í Kola- portinu. K rakkarnir eru orðnir þreyttir á öllu tali um Breiðholtið sem gettó. Þau vilja sýna fram á að það komi ekki bara slæm- ar fréttir úr Breiðholtinu, segir frí- stundaráðgjafinn Kári Sigurðsson. Hann heldur utan um starfsemi ungmennaráðs í Breiðholti ásamt Jóhanni Fjalari Skaptasyni, en ráð- ið hefur skipulagt góðgerðarviku til styrktar endurhæfingar- og stuðn- ingsmiðstöð Ljóssins, sem er félag fyrir krabbameinssjúklinga og að- standendur þeirra. „Þetta er allt að þeirra frum- kvæði og byggir á hugmyndum þeirra,“ segir Kári í samtali við DV. Ásamt því að safna fé til styrktar góðu málefni munu unglingarnir hafa nóg að gera í vikunni. Föstu- daginn 8. febrúar verður hin árlega hæfileikakeppni „Breiðholt got talent“ haldin með pompi og prakt. Á laugardaginn verður boðið upp á námssmiðjur fyrir unglingana en vikan endar á sameiginlegu balli þar sem allir gefa vinnu sína. Ágóð- inn af þessum atburðum rennur eins og fyrr segir til Ljóssins. „Okkur datt í hug að láta gott af okkur leiða,“ segir Katrín Björk Kristjánsdóttir, fulltrúi í ung- mennaráðinu. Hún segir góð- gerðarvikuna vera hápunktinn á starfi ráðsins: „Það er mjög mik- il stemning fyrir þessu.“ Aðspurð um hversvegna þau hafi ákveðið að styrkja Ljósið segir hún að þrátt fyrir að vera ekki áberandi sé félag- ið afar mikilvægt. „Það er líka ein stelpa í ráðinu sem missti pabba sinn fyrr á árinu, og þetta hef- ur hjálpað henni mjög mikið, og hennar fjölskyldu.“ n jonbjarki@dv.is Eru þreytt á gettó-stimplinum n Unglingar í Breiðholtinu láta gott af sér leiða og fara af stað með góðgerðarviku Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 1.–3. feBrúAr 2013 13. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Láta gott af sér leiða Kristína Barðdal, Silvía Hall, Ágústa Mekkín, Melkorka Embla Hjartardóttir, Laufey Hanna Tómasdóttir og Katrín Björk Kristjánsdóttir hafa skipulagt góðgerðarvikuna ásamt fleiri ungmennum. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.