Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2013, Blaðsíða 23
T
ónlistarmyndband úr sýn-
ingu söngleiks Verslunar-
skólanema, We Will Rock
You, komst í fréttir á dögun-
um og sagt klámfengið.
Í myndbandinu sem má finna
á vefsíðu Youtube, daðra nokkrar
stúlkur við mann í ákveðnum til-
gangi.
Á samfélagsmiðlum er mynd-
bandið meðal annars sagt klám-
fengið og ákveðin tímaskekkja.
Björk Jakobsdóttir, höfundur verks-
ins og leikstjóri, segist ekki leng-
ur geta orða bundist og segir
framkomu gagnvart ungmennum
í Verslunarskólanum minna á ein-
elti. Söngleikurinn sé ádeila á ís-
lenskt samfélag og umdeilt atriðið
þjóni þeirri ádeilu. Í verkinu leggi
ungmennin metnað í að brjóta upp
staðalímyndir í stað þess að festa
þær í sessi.
Boðið á rennsli
„Nú get ég ekki orða bundist. Síðan
hvenær er svona sjálfsagt að ausa úr
vandlætingarfötum og fullyrða hluti
án þess að hafa nokkra hugmynd
um eðli málsins.
Fréttablaðið slær fram fyrirsögn
um daginn. „Versló söngleikur talinn
klámfenginn“. Síðan hvenær er það
frétt að eitthvað sé talið vera einhvern
veginn … og ekki einu sinni vitnað í
þann sem heldur að hlutirnir séu ein-
hvern veginn … án þess að hafa séð
söngleikinn. Frábær fréttamennska
eða hitt þó heldur. Ég vil taka fram
að þeim var strax boðið að kíkja á
rennsli eins og öllum sem höfðu þörf
til að tjá sig um málið. Enginn af þeim
þáði það enda skemmtilegra að búa
til grípandi fyrir sögn en að taka upp-
lýsta umfjöllun
150 nemendur hafa unnið að
þessum söngleik frá því í október.
Þau hafa gefið allan sinn aukatíma
og hæfileika í þetta verkefni. Ég,
Hallur Ingólfs tónlistarstjóri, Stella
Rósinkranz danshöfundur og Helga
Marzellíusar raddþjálfari erum ótrú-
lega stolt af þeim og sýningunni
sem er frumsaminn söngleikur með
Queen-lögunum.
En það þykir sem sagt sjálf-
sagt mál að hrauna
yfir alla
þeirra vinnu án þess að kíkja á sýn-
inguna. Við erum alltaf að reyna að
kenna unglingunum okkar að bera
virðingu hvert fyrir öðru. Framkoma
nokkurra fullorðinna einstaklinga í
þeirra garð núna þykir mér ekki bera
vott um virðingu. Hún minnir meira
á einelti,“ segir Björk.
Femme fatale-atriði þjónar
sögunni
Björk útskýrir myndbandið og
ítrekar að atriðið þjóni sögunni sem
fjallar um svínaríið fyrir hrun.
„Umrætt myndband sem hefur
snert þessar viðkvæmu taugar hjá
sumum er lítill partur af söngleikn-
um. Þetta er síðasta atriði fyrir hlé
þegar Killerkvín mætir með ráðgjafa-
teymi sitt frá Cayman Islands til að
tæma endanlega hirslur bankans
og koma Rikka bankastjórasyni
í hjónaband. Þær eru að leika
vonda liðið. Og jú, þær nota
kynþokka og völd til að ná
sínu fram. Það verða því
miður alltaf til ákveðn-
ar manngerðir sem haga
sér svona. Femme fatale er
eitt okkar elsta sagnaminni.
Það sést greinilega að Rikki
er mjög vandræðalegur yfir
þessu öllu saman og ekki til í
tuskið. Og ég get ekki séð hvað
er svona ofsalega klámfengið
við þetta. Í verkinu kemur svo
berlega í ljós að þetta er ekki
málið og þær fá á baukinn.
Söngleikurinn er ádeila á
þessar stöðluðu kynjaí-
myndir og á sukkið og
svínaríið sem tíðkaðist
korter í hrun. Sam-
hliða þessu segjum
við svo mjög fallega
óhefðbundna ást-
arsögu.“
Svíður undan umræðunni
Björk segist svíða undan umræðunni
enda hafi hún lagt sig fram um að
smíða fallegan boðskap og segist ekki
geta beðið eftir því að þeir sem hafi
hæst þurfi að taka orð sín aftur. „Þessi
umræða svíður extra mikið af því að ég
held að ég hafi aldrei verið með jafn-
fallegan boðskap í neinum mennta-
skólasöngleik sem ég hef gert. Hand-
ritið hefur tekist mjög vel. Krakkarnir
algerir snillingar. Söngur, leikur, dans
bara allur pakkinn. Við erum með
hljómsveit á sviðinu og flytjum öll lög-
in „live“. Þau eru öll á íslensku nema
tvö.
Ég get ekki beðið eftir að frumsýna
til að vandlætingarliðið geti étið ofan
í sig klámhysteríuna. En ætli þau vilji
nokkuð koma. Það er svo miklu þægi-
legar að sitja bara heima og fussa og
sveia.“
Þakkar foreldrum
Hún vill þakka foreldrum unglinganna
og biðst afsökunar á óvæginni um-
ræðu sem þau hafa þurft að þola.
„Foreldrum þessara unglinga sem
hafa unnið með mér vil ég þakka sér-
staklega fyrir lánið á þessum ótrúlegu
snillingum. Ég veit að þið hafið ekki
séð mikið af þeim undanfarið og bara
til hamingju með krakkana. Eitthvað
hafið þið gert rétt úr því að þið eruð
að skila þessum stórkostlegu einstak-
lingum út í samfélagið og mig langar
að biðja ykkur afsökunar á óvæginni
og óréttlátri umræðu sem krakkarn-
ir hafa þurft að þola undanfarið. Þau
myndu aldrei koma svona fram við
aðra án þess að kynna sér málið bet-
ur, en þau eru jú líka svo vel upp alin.
Að lokum er gaman að segja frá því
að við vorum með okkar fyrstu gesti í
gær – 10. bekk úr Laugalandsskóla.
Skólastjóri, krakkar og foreldrar voru í
skýjunum með sýninguna.“
Fáðu Já!
Auður Finnbogadóttir er formað-
ur listafélags Nemendamótsins og fer
með eitt aðalhlutverka í sýningunni,
Killerkvín. Konu sem kemur til lands-
ins undir því yfirskini að bjarga Íslandi
en hefur annarlegri markmið í huga.
Auður segist undrandi á fréttaflutningi
af verkinu. „Við buðum blaðamönn-
um á rennsli til okkar, en þeir mættu
ekki. Þess í stað var fjallað um verk-
ið með sleggjudómum. Verkið okkar
dæmt út frá einu atriði svo af því fæst
röng mynd, segir Auður frá. „Umrætt
atriði er sagt fullt af kven fyrirlitningu,
það er rangt. Þetta er ádeila og atriði
er eitt af mörgum ætlað til að fjalla
um þessi kynjahlutverk sem við erum
föst í. Í verkinu er það meginþráður-
inn. Við leiðum svo seinna í verkinu
fram boðskapinn, Fáðu Já! Svo atriðin
þjóna heildinni.“ n
Framkoman
minnir á einelti
n Söngleikur sagður klámfenginn n „Ósatt,“ segir leikstjórinn, Björk Jakobsdóttir
n Femme fatale-atriði þjónar sögunni n Söngleikurinn er fyrir alla fjölskylduna
Getur ekki orða bundist Björk Jakobs-
dóttir segir framkoma nokkurra fullorðinna
einstaklinga gagnvart ungmennum í
Verslunarskólanum minna á einelti.
„Ég get ekki beðið
eftir að frumsýna
til að vandlætingarliðið
geti étið ofan í sig klám-
hysteríuna.
Sýning fyrir fjöl-
skylduna Björk segir
nemendur í Verslunarskól-
anum hafa lagt sig alla fram
og framkomu nokkurra
fullorðinna einstaklinga
minna á einelti.
Atriði úr umdeildu
myndbandi Sýning
Verslunarskólans var sögð
klámfengin eftir birtingu
myndbands sem kynnti
söngleikinn.
Fólk 23Miðvikudagur 6. febrúar 2013
Landinn hringir
í íslenskan
John Grant
Síminn hringir án afláts hjá kerfis-
stjóra Þjóðskrár, John Harmon
Grant, nafna tónlistarmannsins
víðkunna John Grant. „Þetta eru
þó nokkur símtöl, ég fékk um níu
símtöl um helgina,“ segir John
Harmon Grant sem fær aldeilis
að finna fyrir vinsældum nafna
síns hér á landi. Helst eru það fjöl-
miðlamenn og aðdáendur sem
vilja ná tali af tónlistarmanninum.
Hann segir sem betur fer lítið um
persónuleg skilaboð til nafna síns.
Fluttur af
landi brott
Brynjar Már, tónlistarmaður og
fyrrverandi útvarpsmaður, er
fluttur til Flórída. Brynjar Már
flutti ásamt kærustu sinni, Önnu
Christine Aclipen, en stór hluti af
fjölskyldu Brynjars býr í Ameríku.
Brynjar Már, sem var einn af
þáttastjórnendum Magasín um
tíma, sagði frá ástinni í lífi sínu í
DV í fyrra. Þar sagði Brynjar að
Anna væri hans fyrsta ást. „Við
vorum saman fyrir átta árum
og fundum hvort annað aftur
fyrir stuttu. […] Hún er yndisleg,
skemmtileg, falleg og góð og með
hlýtt hjarta. Við smellum saman
eins og flís við rass.“
Kviðslitinn
Garðar
Knattspyrnumaðurinn Garðar
Gunnlaugsson fór undir hnífinn í
vikunni þegar ljóst var að hann,
sem hefur kennt sér meins síð-
an í sumar, var kviðslitinn.
Garðar fór í aðgerð á þriðju-
daginn og verður að öllum
líkindum að jafna sig í fjórar,
fimm vikur. Eins og allir vita er
Garðar fyrrverandi eiginmað-
ur glamúrbombunnar Ásdísar
Ránar. Garðar var til umfjöllunar í
DV á dögunum þar sem kom fram
að þessi fyrrverandi herra Ísland
væri á lausu en nýlega slitnaði
upp úr sambandi hans og kærustu
hans til nokkurra mánaða.