Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Side 18
18 Lífsstíll 25. febrúar 2013 Mánudagur Elskar Búdda n Hugleiðsla og málverk eru ástríða Kolbrúnar K olbrún Róbertsdóttir er listakona sem rekur sína eigin verslun á heimilis- legum nótum. Hún málar af áfergju og rekur verslun sína Augnakonfekt sem endurspegl- ar persónu hennar afar vel. Það er ekki sjaldgæf sjón að sjá dætur hennar sitja við heima lærdóminn í búðinni og litla prinsinn, sem er þriggja ára, að kubba eða teikna við afgreiðsluborðið. Hún er með verkstæði sitt í verslun sinni og er ekki óalgengt að viðskiptavinir hitti á hana í vinnugallanum með málningar- klessum þegar þeir koma að versla. En það finnst Kolbrúnu bara nota- legt og hefur enginn kvartað yfir því – þvert á móti. DV forvitnaðist aðeins um þessa flottu konu. Heimilið mitt „Ég mundi segja að stíllinn minn væri blanda af gamaldags stemm- ingu, hráum og gylltum munum í bland, málverkum og kertaljósum. Íbúðin er full af húsgögnum og alls konar munum sem ég hef flutt inn í gegnum verslun mína. Ég hef gaman af fallegum hlutum og tengi öll rými á heimilinu með svipuð- um stíl. Augljóst er að ég er hrifin af Búddastyttum en þær eru all- margar hjá mér,“ segir Kolbrún að- spurð um stílinn á heimili hennar. Myndlistin „Ég fæ innblástur í verk mín frá náttúrunni, áferð og alls konar litadýrð sem grípur mig á misjöfnum tímum. En ég hef mjög gaman af því að mála fólk og þá sérstaklega konur en svo hef ég líka verið að mála Búdda og hesta. En svo endur- spegla myndir mínar mig sjálfa og hugmyndir mínar og lífsstíl en ég hef alltaf haft áhuga á hug- leiðslu og líkamsrækt en fyrir um 15 árum byrjaði ég að mála svo- kallaðar hugleiðslu-, jóga- eða kærleiksverur. Einnig hef ég um áratug málað fossa en fyrir mér eru þeir tákn hreinsunar tifinn- inga. Ég legg allt mitt hjarta í að mála sérhverja mynd og óska þess að góð orka fylgi henni til næsta eiganda.“ Útrás „Næsta skref fyrir mig er að vera með sýningar erlendis en búið er að gauka að mér að vera með sýn- ingar bæði í Bandaríkjunum og einnig í Þýskalandi sem ég er að skoða. Mikil vinna fylgir svoleiðis ákvörðunum og vanda þarf til verks, því tækifærin eru mörg og þá er ég sérstaklega að horfa til Bandaríkjanna en ég er heilluð af arkitektúr og innanhúshönnun þar og mér finnst myndlist mín tengjast mest þangað.“ Nú hefur þú mikið dálæti á hug- leiðslu, segðu okkur aðeins frá því. „Málið er að það sem gerist við að fara í algjöra slökun í góðri hug- leiðslu þá losum við okkur við allar áhyggjur og stress í þann tíma sem við förum í slökunarástand hugans en það kallast Alpha. Enn dýpra ástand næst með æf- ingu sem kallast Theta. Þegar við náum að slaka á öllum vöðvum líkamans og öndum djúpt og vel í djúpri slökun þá hægist á heila- bylgjunum og við verðum miklu meðvitaðri og náum að hugsa miklu skýrar. Allar ákvarðanir sem við tökum eru teknar með meiri yfir vegun en ekki í fljótfærni eins og oft vill verða undir miklu álagi. Einnig segja fræðimenn að hug- myndir og sköpun myndist í Alpha- ástandi hugans og því fáum við oft góðar og skýrari hugmyndir á með- an við hugleiðum,“ segir þessi kær- leiksríka kona að lokum. n iris@dv.is „Ég hef gaman af fallegum hlut- um og tengi öll rými á heimil- inu með svipuð- um stíl Listaverk Hér er glæsilegt verk eftir Kolbrúnu. Lykillinn að fegurðinni Heimil Kolbrúnar er fullt af einstökum munum. Sjálfsmynd? Heima er svefnh erbergið er uppáhaldsstaður Kolbrúnar. Glæsileg Kolbrún stund- ar hugleiðslu af kappi. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI 7 áfangastaðir fyrir barnlausa París Rómantískasta borg í heimi. Það er erfitt að eiga inni- legar stundir með makanum með ung börn með í för. Farið með þau seinna, þegar þau eru unglingar, á söfn og á söguslóðir. Nýja Sjáland Langt og dýrt flug gerir áfanga- staðinn síður barnvænan svona til að byrja með. Nýja Sjáland er náttúruperla og gaman að fara í göngur upp kletta, kafa í djúpin og sigla á milli eyja. Disney World Disney World er ekki bara fyrir krakka. Barnlaus pör geta skemmt sér vel í Disney World því þar er nefnilega hugað alveg sérstaklega að fullorðna fólkinu, enda vilja stjórnendur garðsins ekki að þeim leiðist. Ökuferð eftir Route 66 Að keyra klassísku vegleiðina númer 66 í göml- um kádilják er skemmtileg lífs- reynsla. En allra síst fyrir börn sem vanalega þola illa langar bíl- ferðir. Vínsmökkunarferð til Ítalíu Börnin myndu seint samþykkja að eyða mörgum dögum í að ferðast á milli vínekra á Ítalíu. Vínsmökk- un, ostar og rómantík í fallegu umhverfi er rómantískt ferðalag. Macao Það dettur fáum í hug að taka börnin með til Las Vegas eða álíka áfanga- staða. Fyrr- verandi portú- galska nýlendan Macao er slíkur áfangastaður, staðsettur utan við stórborgina Hong Kong. Þar eru spilavíti og litríkt næturlíf. Angkor Wat Eitt af helg- ustu hofum heims. Þar á að ríkja kyrrð til hugleiðslu sem jafnvel prúðustu börn í heimi ættu bágt með. Angkort Wat er staðsett í norður Kambó- díu og er afar vinsæll áfangastað- ur ungra para. Gervibrosið virkar Sem ráð við streitu er gott ráð að setja upp bros, jafnvel þótt það sé ekki gert í fullri einlægni. Ný rannsókn sem var birt í ritinu Psychological Science, sýnir að með því að stýra andlitsvöðvun- um í bros, styrkist heilsa hjartans. Blóðþrýstingur lækkar umtalsvert. En hvernig er mögulegt að falsa bros? Í ritinu er fólki bent á að bíta í blýant. Við það að bíta í hann er réttum vöðvum beitt og á réttum stöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.