Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Síða 20
20 Sport 25. febrúar 2013 Mánudagur
Tveir á gjörgæslu og 33 særðir
n Alvarlegt slys í Nascar-kappakstrinum
T
æplega 40 áhorfendur slös-
uðust þegar harður árekstur
bíla í Nascar-ökukeppninni
í Bandaríkjunum kastaði
vélarhlutum upp í áhorfendastúku.
Þykir ótrúlegt að enginn hafi látið líf-
ið en tveir hinna slösuðu voru þó í
lífshættu og eru á gjörgæslu.
Sterkar öryggisgirðingar eru með-
fram öllum kappakstursbrautum
sem keppt er á í Nascar en í þessu
tilfelli dugðu þær engan veginn til
þegar nokkrir bílar skullu það hart
saman að einn þeirra þeyttist upp í
loft og vél og hjólbarðar þess sama
bíls fóru yfir og í gegnum girðinguna
og upp í pakkfulla áhorfendastúku.
Var keppninni í Daytona hætt í
kjölfarið en sú braut þykir sú allra
hættulegasta í Nascar-kappakstrin-
um. Þar hafa frá upphafi Nascar
hvorki fleiri né færri en tólf ökumenn
látið lífið í árekstrum og mikill fjöldi
slasast alvarlega. Alls hafa 24 öku-
þórar látið lífið í Nascar í heildina.
Þá eru slys á áhorfendum ekki
nýlunda en brak úr klesstum bílum
hefur ítrekað kastast upp í áhorf-
endastúkur með alvarlegum af-
leiðingum.
Tafði það björgunarstörf á svæð-
inu í þessu tilfelli að hópur fólks
reyndi að komast sem næst vettvangi
slyssins til þess eins að taka myndir.
Tveir einstaklingar voru í lífs-
hættu eftir slysið en meiðsl flestra
annarra voru minniháttar og þurftu
aðeins rúmlega 20 á sjúkrahús. Er
talin mikil mildi að fólk hafi ekki látið
lífið en ökuþórarnir sjálfir sluppu al-
veg ómeiddir utan einn sem kvartaði
yfir brjóstverkjum eftir slysið.n
Tottenham
stærri klúbb-
ur en Arsenal
Gareth Bale segir engan vafa
leika á að lið hans Tottenham
hafi nú loks fellt Arsenal af stalli
sem helsta félagsliðið í norður-
hluta London. Bæði sé liðið betra
og leikmannahópur Tottenham
breiðari og sterkari heilt yfir en
reyndin er hjá Arsenal. Á þessa
skoðun hans mun reyna næstu
vikurnar nú þegar enska úrvals-
deildin fer að styttast í annan end-
ann en bæði liðin keppa um fjórða
sætið í deildinni sem er ávísun á
Meistaradeildina á næstu leiktíð.
Messi plumar
sig ekki á Ítalíu
Hollendingurinn Mark van Bommel
segir að Leo Messi gæti aldrei náð
viðlíka árangri á Ítalíu og hann hef-
ur gert á Spáni sökum þess að á Ítal-
íu sé leikurinn með öðru sniði og
stærri félagslið eigi auðvelt með að
loka á andstæðinga sína með þeim
hætti sem AC Milan gerði í síðustu
viku í glæsilegum 2–0 sigri í fyrri
leik liðsins í Meistaradeildinni gegn
Barcelona. Mark van Bommel segir
enga tilviljun hversu vel Milan tókst
að loka á Börsunga í þeim leik og
telur víst að Ítalirnir fari áfram í átta
liða úrslit Meistaradeildarinnar á
kostnað þeirra spænsku.
Ódýrt á
úrslitaleik
Þeir sem verða svo heppnir að
næla sér í miða á úrslitaleikinn í
Meistaradeildinni þetta árið sem
fer fram á Wembley í London
þurfa ekki að greiða svo ýkja mik-
ið fyrir herlegheitin. Allra ódýrasti
miðinn í boði það kvöldið kostar
ekki nema tæpar tólf þúsund
krónur sem er ekki mikið dýrara
en gengur og gerist í hefðbundn-
um deildum Evrópu. Allra dýrustu
miðarnir slaga hins vegar hátt í 65
þúsund krónur. Miðaskráning er
hafin en eðli máls samkvæmt fá
færri en vilja og verður dregið úr
þeim sem skrá sig fyrir miðum.
Persie klár gegn
Real Madrid
Markahrókurinn Robin van Persie
ætti að ná sér að fullu fyrir leik
Manchester United gegn Real
Madrid þann fimmta mars en hann
slasaði sig í deildarleik gegn QPR
um helgina. Féll Hollendingurinn
ofan í myndavélagryfju við leikvöll-
inn með þeim afleiðingum að hann
varð að hætta leik. Læknar liðsins
segja allar líkur á að hann verði
orðinn fínn eftir viku. Svakalegt Einn bíllinn kastaðist af brautinni, eins og sjá má á myndinni. MyNd REUTERS
H
versu margir knattspyrnu-
þjálfarar væru ekki mjög
sáttir eftir 6–1 sigur síns liðs
á erfiðum andstæðingi? Og
hversu margir knattspyrnu-
þjálfarar myndu gera stórmál úr því
að leikmenn mættu í mislitum sokk-
um á æfingar og beittu leikmennina
sektum fyrir vikið?
Ætli þeir finnist fleiri en hinn lit-
ríki Jupp Heynckes, þjálfari Bayern
München? Karlinn sá hefur fyrir all-
löngu lýst yfir að hann ætli að setja
punktinn yfir farsælan þjálfaraferil
sinn að lokinni þessari leiktíð. Menn
sem til hans þekkja segja að hann
eigi sér aðeins einn einasta draum
eftir og það sé að leiða Bayern í úrslit
Meistaradeildar Evrópu og hafa sigur
þar. Það yrði sannarlega glæstur endi
á ferli þessa makalausa þjálfara.
Bayern aldrei betra
Fróðir sparkspekingar í Þýskalandi
telja margir að Bayern München hafi
sjaldan eða aldrei verið betra lið en
einmitt nú, þó deila megi endalaust
um slíkt. Leiktíðin heimafyrir hef-
ur gengið vonum framar og hefur
Bayern sautján stiga forskot á Þýska-
landsmeistara Dortmund. Nán-
ast formsatriði fyrir Bæjara að klára
deildina með stæl og það löngu áður
en henni lýkur.
Sömuleiðis á Bayern ágæta
möguleika á að leika til sigurs í þýsku
bikarkeppninni, DFB Pokal, en á
miðvikudaginn kemur mæta Bæjar-
ar einmitt Dortmund í fjórðungsúr-
slitum þeirrar keppni.
Þá finnast fáir sem telja að Arsenal
eigi mikla möguleika gegn Bæjurum
í seinni leik þessara liða í sextán liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Margir stórir veðbankar setja bestu
líkur sínar á Bayern að sigra Meist-
aradeildina ef undan er skilið lið
Barcelona. Ólíkt Spánverjunum eiga
þeir þýsku heimaleik næst með þrjú
mörk skoruð á útivelli meðan Börs-
ungar mæta AC Milan með tvö mörk
í mínus. Töluvert má ganga á til að
þeir spænsku fari mikið lengra en
þegar er orðið.
Fullkomnunarsinni af guðs náð
Heynckes er sagður fullkomnunar-
sinni og gott dæmi um það er
óánægja karlsins með 6–1 sig-
ur Bayern á Werder Bremen um
helgina. Bremen er ekki með bestu
liðum deildarinnar en þeir eru fjarri
því lélegir og slíkur sigur makalaust
frábær úrslit fyrir Bæjara. En ekki
Heynckes sem var hreint ekki sáttur
við að Bayern fékk á sig mark í þeim
leik.
Þá er og fræg sagan af því þegar
tveir leikmenn liðsins, Schwein-
steiger og Kroos, mættu á eina æf-
ingu fyrr í vetur í hvítum sokk-
um en þeir eiga strangt til tekið að
vera svartir í stíl við æfingabúninga
liðsins. Heynckes ærðist og sendi
fyrirliða sinn, Philipp Lahm, til að
sekta þá félaga um væna upphæð
fyrir hvítu sokkana. Náðist þó sátt að
lokum og er ekki vitað til að nokkur
annar mæti nú á æfingar í öðru en
reglubundnum æfingafatnaði.
Þyrnum stráður vegur
Mörgum er enn í fersku minni úr-
slitaleikur Meistaradeildarinnar á
síðasta ári þar sem Chelsea hafði
betur gegn Bayern eftir vítakeppni.
Sárgrætileg úrslit fyrir flesta nema
aðdáendur Chelsea því Bæjarar
réðu lögum og lofum í leiknum eins
og tölfræði leiksins gefur skýrt til
kynna. 35 skot á mark gegn 9 skot-
um Chelsea. 20 hornspyrnur á móti
einni slíkri hjá Chelsea fyrir utan
að vera mun meira með boltann en
þeir ensku.
Þrátt fyrir að vera betri aðilinn
í leiknum dugði það ekki til á end-
anum og stóra spurningin hvort
Heynckes hafi eitthvað lært af þeim
leik. Öllum má ljóst vera að heima-
fyrir er Bayern í öllu falli að spila
mun betri leik en á síðustu leiktíð.
Þá var það aðeins Meistaradeildar-
titillinn sem var innan seilingar hjá
Bæjurum en nú berjast þeir á þrem-
ur vígstöðvum. Hvort það tekur toll
þegar nær dregur er ekki ólíklegt en
það gæti líka hvatt leikmenn sérstak-
lega til dáða. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
n Litríkur þjálfari Bayern München vill enda ferilinn á Meistaradeildartitli
Árið
hans
heynckes
Harður í horn að taka Heynckes var
ekkert sérstaklega ánægður með 6–1
sigur sinna manna um helgina.