Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Page 2
2 Fréttir 17. júlí 2013 Miðvikudagur Þ essi júlíbyrjun er sú tíunda lakasta í 64 ár og sú lakasta síðan 1993,“ segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, og er þar að vísa í hitatölur á suðvestur- horninu í júlí. Júlímánuður hefur því ekki verið kaldari í 20 ár. Meðalhit- inn hefur verið 9,6 stig, samanbor- ið við 12,5 stig á sama tíma í fyrra og 11,8 stig, ef tekið er meðaltal síðast- liðinna 10 ára. En það er ekki bara kaldara í veðri. Þennan júlímánuð höfum við fengið færri sólarstundir og meiri úrkomu, sé miðað við nefnt meðaltal. „Hérna í Reykjavík höfum við fengið 63 sólskinsstundir,“ seg- ir Trausti en meðaltal síðustu 10 ára er 96 sólskinsstundir. Munurinn er því heilar 23 sólskinsstundir. „Það er frekar mikill munur. Það var svolítil sól fyrstu dagana í júlí, það bjargaði þessu eiginlega,“ segir Trausti en þá er ekki öll sorgarsagan sögð. „Síðan höfum við fengið tvöfalt meiri úr- komu.“ Svipað hitastig hefur verið á Suðurlandi og á norðvesturlandi, en á Norðurlandi hafa hitatölurnar verið rétt undir meðaltali. „Þó ívið kaldara,“ segir Trausti. Staðan er hins vegar allt önnur á Austurlandi. Þar er bongóblíða og hefur verið allan júlímánuð; hitastigið vel yfir meðaltali. Suðupotturinn Egilsstaðir „Það er allt stappað á tjaldsvæðinu og á öllum gististöðum; fullbókað alls staðar,“ segir Sara Tumadóttir hjá upplýsingamiðstöð Austurlands og nefnir einnig að um aukningu sé að ræða frá því í fyrra. En er þetta allt fólk sem er að elta góða veðr- ið? „Jú jú, það er einn og einn sem nefnir það,“ segir Sara en bætir við að það séu aðallega Íslendingar sem eru eltingaleik við veðrið. Ferðamennirnir séu yfirleitt með skipulagða dagskrá og síður í slíkum pælingum. Þeir eru hins vegar dauð- fegnir að koma á Austurland. „Þeir tala alltaf um að þeir séu að koma úr rigningu og í góða veðrið til okkar.“ Aðspurð hvar á Austurlandi besta veðrið sé svarar Sara: „Egilsstaðir er algjör suðupottur, þá ertu náttúru- lega ekki við sjóinn. En það hefur líka verið yndislegt niðri á fjörðum.“ Skýringar á huldu „Nei, ekki frekar en vanalega. Það er tilviljunarkennt – mynstrið í veðrinu,“ segir Trausti spurður um ástæður þessa óvenjulega veður- fars, sérstaklega á suðvesturlandi. Hann vísar kenningum blaðamanns um að hlýnun jarðar sé hugsanlega að ganga til baka hins vegar á bug. „Þetta kemur henni ekkert við. Það er búið að vera ótrúlega gott veð- urfar undanfarin ár; umfram það sem við hefði mátt búast með til- liti til hnattrænnar hlýnunar,“ seg- ir Trausti; eðlilegt sé að hitinn rokki lítillega á milli ára. „Svo er sumarið ekki búið ennþá.“ En kemur bráðum betri tíð? „Ég held ekki.“ Íssala í hættu Júlímánuður er mesti íssölumánuð- ur ársins, ef marka má orð Elínar Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Emmessíss. „Íssala er mjög tengd veðrinu,“ segir Elín en engar sölutöl- ur eru komnar fyrir júlímánuð. „Við verðum bara að leggjast á bæn og vona að þessar lægðir fari eitthvað annað en til okkar,“ segir hún létt og bætir við: „En svo hefur auðvitað verið fínt veður á Norður- og Aust- urlandi og salan í samræmi við það.“ Kaffihús og sundstaðir blæða Það eru ekki bara íssalar sem bölva veðurguðunum, heldur einnig kaffi- hús. Café París hefur lengi verið eitt vinsælasta kaffihús miðborgarinn- ar, enda með veglega útiaðstöðu steinsnar frá Austurvelli. Um sum- armánuðina streyma þangað ferða- menn og innfæddir til að sleikja sól- ina og gæða sér á kaffi og croissant eða sumaröli og saltstöngum. Guð- ný Aradóttir er framkvæmdastjóri kaffihússins. „Vanalega er fullt úti, en hálftómt inni á sumrin. En núna er þéttsetið inni, en lítið úti,“ segir Guðný. Þó eru ennþá nokkrir sem sitja ennþá úti, en ekki til að baða sig í sólskini. „Þetta fólk situr undir tjöldum með hitara, teppi og kerta- luktir,“ segir Guðný sem viðurkennir að kuldabolinn sé orðinn Þrándur í götu rekstursins. Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is „Síðan höfum við fengið tvöfalt meiri úrkomu Kaffihús tapa á leiðinlegu veðri n Lægstu hitatölur frá árinu 1993 n Meiri úrkoma og minni sól n Blíða á Austurlandi Nauthólsvík Það hafa ekki verið mörg tækifæri til að slappa af í sólinni í Nauthólsvík í sumar. Hressir ferðamenn Nú er úti veður vott. Það versta í 20 ár. Hagstætt veður bjarg- aði bændum „Úrkoman hérna fyrir norðan að undanförnu er bara til bóta og sprettan er betri. Ekki veitir okk- ur af.“ Þetta segir Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssam- taka sauðfjárbænda, í samtali við Vikublað á Akureyri. Eftir snjó- þungt vor er öllu léttara yfir bænd- um norðan heiða enda veðurfar verið einstaklega hagstætt undan- farnar vikur. „Sprettan í júní var frábær, enda veðrið sérstaklega hagstætt á flestan hátt. Þótt úrkoma hafi ver- ið lítil í mánuðinum, er mikill raki í jörðu eftir snjóþungan vetur og erfitt vor. Júní hreinlega bjargaði öllu í þessum efnum, það er bara svo einfalt. Það er því öllu léttara yfir okkur, en við vitum ekkert fyrr en í haust hvernig staðan raun- verulega verður. Þeir bændur sem þurftu að endurvinna tún vegna kals, þurftu sannarlega á þessari góðu tíð að halda,“ segir Þórarinn. Stúdentar stefna ríkinu Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur stefnt Lánasjóði íslenskra náms- manna og íslenska ríkinu vegna breyttra lánveitingarreglna. Stúd- entaráð telur að stjórnsýsluleg lög hafi verið brotin í málinu. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi seinnipart þriðjudags. „Við í SHÍ einsetjum okkur að standa vörð um hagsmuni stúdenta og þar sem að samn- ingaleiðin gekk ekki, eftir að við reyndum á málefnalegan hátt að benda á ýmsa vankanta, og leggja til aðrar sparnaðartillögur, þá er orðið ljóst að málið verður aðeins útkljáð fyrir dómstólum,“ segir í tilkynningu frá Stúdentaráði. Málið verður þingfest á fimmtudag og fær flýtimeðferð. Því ætti niðurstaða að liggja fyrir eftir um mánuð að sögn Maríu Rutar Kristinsdóttur, formanns Stúdentaráðs. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra gerir kröfu um niðurskurð hjá lánasjóðnum en stjórnvöld hafa ákveðið að ráðast í flatan 1,5 prósenta niðurskurð í öllum ráðuneytum og málaflokkum. Enn lokanir á hálendinu Enn er nokkuð um lokanir á hálendisvegum en borið hefur á því að ferðamenn virði ekki lokanir. Mikil bleyta orsakar það að vegir eru viðkvæmir og geta skemmst mikið ef lokanir eru ekki virtar. Þá vinnur vega- gerðin að lagfæringu brúar gólfs á Arnarnesvegi í Garðabæ fram á föstudag og er umferð stórra ökutækja bönnuð fram að því. Þá er einnig verið að byggja undirgöng á Reykjanesbraut við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði. Um- ferð er beint um hjáleið á meðan en Vegagerðin biður ökumenn um að sýna tillitsemi og aðgát.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.