Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 4
K
ári Stefánsson, forstjóri Ís
lenskrar erfðagreiningar,
segir að rúmlega 562 millj
óna króna skuldabréfaútboð
fyrirtækisins snúist um að
koma peningum frá bandaríska lyfja
þróunarfyrirtækinu Amgen til lands
ins. Skuldabréfaútboðið fór fram í
lok júní en fyrr á árinu stóð Decode
fyrir öðru eins skuldabréfaútboði
upp á sömu upphæð. Amgen keypti
Decode í lok síðasta árs og er flutn
ingur fjármagnsins liður í fjármögn
un íslenska erfðatæknifyrirtækisins.
Söluverð Decode í lok árs 2012 var
um 50 milljarðar íslenskra króna og
er því aðeins um að ræða rúmt pró
sent af þeirri heildarupphæð sem
greidd var fyrir fyrirtækið.
20 prósenta afsláttur
Skuldabréfaútboðið fer þannig fram
að Decode gefur út skuldabréf sem
Amgen kaupir með fjármunum er
lendis frá, erlendum gjaldeyri, í gegn
um Seðlabanka Íslands. Amgen fær 20
prósent af þeim íslensku krónum sem
fyrirtækið kaupir sem svo eru notaðar
til að greiða fyrir skuldabréfið. Þetta er
hin svokallaða fjárfestingarleið Seðla
banka Íslands sem lögbundin var til
að liðka til fyrir erlendri fjárfestingu
á Íslandi í kjölfar íslenska efnahags
hrunsins. Með þessu móti getur nýr
eigandi Decode fjármagnað félagið í
krónum með 20 prósenta afslætti af
íslenska gjaldmiðlinum.
Gert í skömmtun
„Þetta er sú aðferð sem Seðlabanki
Íslands býður upp á til að menn geti
tekið erlent fé inn í landið á hagstæð
um kjörum. Þetta er hluti af þessum
mekanisma sem Seðlabankinn hef
ur sett upp til að laða erlent fjármagn
til landsins,“ segir Kári aðspurður um
málið.
Forstjórinn segir að Decode muni
á næstu mánuðum og árum nýta sér
þessa fjárfestingarleið Seðlabanka
Íslands til að koma með frekara fjár
magn til landsins. „Já, já, þetta kemur
til með að halda áfram að verða gert
á þennan hátt,“ segir Kári. „Þetta eru
bara peningar frá Amgen.“
Dýr rekstur
Líkt og komið margoft hefur fram
í fjölmiðlum er rekstur Decode
dýr og hefur fyrirtækið aldrei skil
að rekstrar hagnaði frá stofnun þess.
Rekstrarféð sem rennur í gegnum fé
lagið er notað til rannsókna á sviði
erfðafræði sem meðal annars nýtist
við rannsóknir á hinum ýmsu sjúk
dómum. Byggði fjárfesting Amgen
í Decode á því að bandaríska félag
ið hyggst nýta sér þá þekkingu sem
Decode býr yfir í rannsóknum sínum
á sjúkdómum og eftir atvikum við
þróun og framleiðslu nýrra lyfja.
Decode tapaði til að mynda
þrettán milljónum dollara, vel á ann
an milljarð króna árið 2011. Sú stað
reynd að Amgen greiddi 50 milljarða
króna fyrir Decode og fjármagnar nú
félagið, sýnir hins vegar að verðmæti
þeirrar þekkingar sem Decode býr til
er mikið. Margra ára rekstrartap fé
lagsins hefur því skilað af sér verð
mætri þekkingu.
Margfölduðu fé sitt
Þessu til stuðnings má benda á að
síðast liðin þrjú ár hefur Decode
skipt tvisvar sinnum um eigendur.
Árið 2010 keypti bandarískur fjár
festahópur fyrirtækið og fjármagn
aði það þar til Amgen keypti það í lok
árs í fyrra. Í viðtali við DV fyrr á árinu
sagði Kári að sá fjárfestahópur hefði
lagt Decode til um 50 milljón dollara,
nærri sex milljarða króna, sem fjár
festahópurinn hefði svo fengið átt
falt til baka með sölunni til Amgen:
„Þetta voru aðilar sem vildu búa til
peninga úr peningum og hafa gert
það býsna gott. Þeir fengu svona átt
falt út úr þessu sem er býsna gott á
minna en þremur árum. Þeir voru
mjög kátir.“
Peningarnir sem Amgen flytur nú
til landsins í gegnum fjárfestingar
leið Seðlabanka Íslands munu því
fjármagna rekstur hér á landi næstu
misserin. Miðað við fyrri reynslu af
Decode mun rekstur félagsins verða
röngum megin við núllið um kom
andi ár, líkt og þau fyrri, en með þess
um fjármunum mun Decode halda
áfram vinnu sinni og væntanlega
búa til frekari verðmæti sem eitt
hvert annað fyrirtæki en Amgen gæti
svo hugsanlega viljað kaupa fyrir enn
meira fé þegar og ef bandaríska lyfja
þróunarfyrirtækið vill selja það. n
4 Fréttir 17. júlí 2013 Miðvikudagur
Byggir stærsta hótel landsins
n Eykt fékk stórfelldar afskriftir út af Höfðatorgsreitnum
V
erktakafyrirtækið Eykt mun
byggja stærsta hótel landsins
á Höfðatorgsreitnum svokall
aða við Borgartúnið í Reykja
vík. Frá þessu var greint á vef mbl.is
á mánudaginn. Eykt er í eigu Péturs
Guðmundssonar. Íslandsbanki fjár
magnar byggingu hótelsins og mun
fyrirtækið Íslandshótel ehf., sem
meðal annars á og rekur Fosshótel, sjá
um reksturinn. Hótelið á að verða 17
þúsund fermetrar að stærð, á 16 hæð
um og eiga herbergin að verða 342.
Pétur Guðmundsson og Eykt voru
einu eigendur bygginganna á Höfða
torgsreitnum, Turnsins og byggingar
innar þar við hlið sem hýsir skrif
stofur Reykjavíkurborgar og nokkrar
verslanir, þar til eftir hrun. Þá leysti
Íslandsbanki til sín 72,5 prósent í
eignarhaldsfélaginu sem heldur utan
um eignirnar en Pétur Guðmundsson
hélt eftir 27,5 prósentum. Þetta gerði
Íslandsbanki út af erfiðri skuldastöðu
félagsins. Nú stendur yfir söluferli á
þessum eignum hjá Íslandsbanka og
hefur allt hlutafé eignarhaldsfélags
ins sem heldur utan um eignirnar ver
ið auglýst til sölu. Tekið skal fram að
Pétur sat um tíma í stjórn Glitnis fyrir
hrunið 2008.
Eignarhaldsfélag Péturs, Höfðatorg
ehf., fékk 15 milljarða króna skuldaaf
skrift árið 2011 áður en Íslandsbanki
leysti eignirnar sem voru inni í fé
laginu til sín. Pétur fékk samt að halda
eftir ríflega fjórðungshlut í eignun
um. Nú byggir verktakafyrirtæki hans
stærsta hótel landsins á Höfðatorgs
reitnum á sama tíma og Íslandsbanki
reynir að selja fasteignirnar sem fyrir
eru á reitnum upp í skuldir. Í frétt DV
um söluna í síðasta mánuði kom fram
að Pétur myndi fá hlutdeild í söluand
virði eignanna við Höfðatorg. n
ingi@dv.is
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
„Þetta eru bara
peningar frá amgen“
n Fjárfestingarleið Seðlabankans notuð til innflutnings fjármagns frá Amgen
„Þetta er hluti af þessum
mekanisma sem Seðla-
bankinn hefur sett upp til að
laða erlent fjármagn til landsins
Skuldabréfaútboð Decode Decode
fór í skuldabréfaútboð í síðasta mánuði til
að flytja inn peninga frá eiganda sínum,
Amgen í Bandaríkjunum. Þetta segir Kári
Stefánsson, forstjóri Decode.
Ákærður
fyrir að ræna
stúlku
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru í máli karlmanns á fertugs
aldri sem grunaður er um að
hafa þvingað tíu ára stúlku upp í
bíl til sín í vesturbæ Reykjavíkur,
ekið henni upp í Heiðmörk og
brjóta þar á henni kynferðis
lega. Fréttastofa RÚV greindi frá
þessu á þriðjudag. Maðurinn var
handtekinn skömmu eftir atvikið,
eða þann 14. maí, og hefur setið
í gæsluvarðhaldi síðan. Maður
inn ók stúlkunni aftur vestur í bæ
og hafði í hótunum við hana áður
en hann hleypti henni út úr bíln
um. Stúlkan gat gefið greinargóðar
lýsingar á manninum og bíl hans
og leiddu þær til þess að hann var
handtekinn skömmu síðar.
Skipað í stjórn
Trygginga-
stofnunar
Eygló Harðardóttir, félags og hús
næðismálaráðherra, hefur skip
að í stjórn Tryggingastofnunar
ríkisins. Formaður stjórnarinn
ar er Stefán Ólafsson. Samkvæmt
lögum um almannatryggingar
skipar ráðherra fimm manna
stjórn Tryggingastofnunar ríkis
ins, formann og varaformann úr
þeim hópi og jafnmarga menn til
vara. Stjórn stofnunarinnar skal
staðfesta skipulag hennar, árlega
starfsáætlun og fjárhagsáætlun
og marka henni langtímastefnu.
Stjórnin skal jafnframt hafa eftir lit
með starfsemi stofnunarinnar og
sjá til að rekstur hennar sé innan
ramma fjárlaga á hverjum tíma.
Eftirtaldir voru skipaðir í stjórn
stofnunarinnar frá 5. júlí síðast
liðnum. Aðalmenn eru Stefán
Ólafsson, prófessor sem jafn
framt er formaður stjórnar, Ásta
Möller, fyrrverandi alþingismaður
sem einnig er varaformaður. Aðrir
aðalmenn eru Halldóra Magný
Baldursdóttir, fulltrúi gæðamála
hjá OR, Kristinn Jónasson, bæjar
stjóri í Snæfellsbæ og Sigrún
Aspelund, skrifstofumaður.
Sala og bygging hótels Eykt á
verulegra hagsmuna að gæta á Höfða-
torgsreitnum þar sem fyrirtækið á ennþá
nærri 28 prósenta hlut í Turninum og
byggingunni þar við hliðina. Nú mun Eykt
einnig reisa hótel á reitnum.