Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Side 6
6 Fréttir 17. júlí 2013 Miðvikudagur Afskrifa hjá fasteignafélagi í Keflavík n Ekkert fékkst upp í nærri 300 milljóna kröfur K röfuhafar eignarhaldsfélags­ ins Inventa þurfa að af­ skrifa nærri 300 milljón­ ir af skuldum þess. Inventa var fasteignafélag með aðsetur í Reykjanesbæ. Félagið var úr­ skurðað gjaldþrota í lok síðasta árs. Um er að ræða enn eitt gjald­ þrot fasteignafélags í Reykjanesbæ en sparisjóðurinn í bænum veitti mýmörgum slíkum félögum lán á árunum fyrir hrunið. Kröfuhafar félagsins lýstu rúmlega 376 millj­ ónum í bú þess og fengust rúmar 85 milljónir upp í þær. Í ársreikn­ ingum félagsins kemur fram að það hafi verið fjármagnað af Spari­ sjóðnum í Keflavík. Eigendur fé­ lagsins voru þeir Þórður Karlsson og Jens Beining Jia. Skiptastjóri fé­ lagsins segir að stærstu kröfuhaf­ arnir hafi verið Landsbankinn, sem tók yfir gjaldþrota bú Sparisjóðs­ ins í Keflavík á sínum tíma og hef­ ur unnið að því að koma eignasafni sjóðsins í verð. „Fasteignirnar voru yfirveðsettar,“ segir Guðmund­ ína Ragnarsdóttir, skiptastjóri fé­ lagsins. Hún segir að félagið hafi átt eina íbúð í Reykjanesbæ, þrjár fasteignir undir atvinnuhúsnæði og eina lóð. Hún segir að auglýst hafi verið eftir tilboðum í eignirn­ ar en þegar engin viðunandi tilboð hafi borist hafi kröfuhafar félagsins tekið eignir þess yfir. n ingi@dv.is OR efaðist um að Beaty gæti borgað n Orkuveitan fær 5,2 milljarða frá Landsbréfum í lok ágúst Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is O rkuveitu Reykjavíkur var bent á það í verðmati Íslands­ banka á skuldabréfi sænska fyrirtækisins Magma Energy, þar sem Kanadamaðurinn Ross Beaty er stærsti hluthafinn, að mikil óvissa væri uppi um hvort fyrir­ tækið gæti greitt upp rúmlega 8 millj­ arða króna skuldabréfið á gjalddaga þess 2016. Þetta kemur fram í verðmati Íslandsbanka á bréfinu sem unnið var fyrir Orkuveituna í mars síðast liðnum. Þessi óvissa Orkuveitu Reykjavíkur átti ugglaust þátt í því að fyrirtækið ákvað að selja skuldabréfið í síðustu viku og staðfesti Borgarráð Reykjavíkur sölu bréfsins á fimmtudaginn. Greining bankans var eitt af vinnugögnunum sem Orkuveitan notaði við söluna. Skuldabréfið má rekja aftur til ársins 2009 þegar Magma keypti 30 prósenta hlut Orkuveitu Reykjavík­ ur í HS Orku fyrir meira en tíu millj­ arða króna og íslenska orkufyrirtækið fjármagnaði 70 prósent af viðskiptun­ um með kúluláni sem var á gjalddaga árið 2016. Greining Íslandsbanka á stöðu Magma Energy sýnir ágætlega hversu sérstakur samningurinn sem Orkuveitan gerði við Magma var, þar sem engan veginn var tryggt að fé­ lagið gæti greitt lánið til baka: Eina tryggingin fyrir láninu var hluturinn í HS Orku. Áhyggjur Bjarna Orðrétt segir í greinargerð Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem hann fjallar um söluna á skuldabréfinu: „Íslandsbanki bendir í verðmati sínu á að ekki sé geta til staðar hjá Alterra Power Corp til að mæta afborgununum bréfsins, m.v. núverandi stöðu. Ekki sé þó úti­ lokað að fjárhagsstaðan gæti batnað.“ Þessi vafi sem var uppi átti þátt í því að Bjarni Bjarnason taldi að hugsanlegar vanefndir Magma á greiðslu skulda­ bréfsins væri ein helsta ástæðan fyr­ ir því af hverju Orkuveita Reykjavíkur ákvað að selja skuldabréfið. Fyrsta ástæðan sem Bjarni nefnir í greinargerð sinni er lausafjárvandi Orkuveitu Reykjavíkur. Salan á bréf­ inu til fjárfestingarsjóðs Landsbréfa þýðir í reynd að í stað þess að orku­ fyrirtækið fái eingreiðslu frá Magma Energy upp á meira en 8 milljarða króna árið 2016 fær orkuveitan tæpa 5,2 milljarða króna nú í lok ágúst og eftirstöðvar söluverðsins, rúma 3,4 milljarða króna, þegar skuldabréf­ ið fellur á gjalddaga í lok árs 2016. Lausafjárinnspýtingin fyrir rekstur Orkuveitunnar er því umtalsverð. Arðurinn of lítill Í greiningu Íslandsbanka á möguleik­ um Magma Energy til að greiða kúlu­ lánið til baka samkvæmt samningn­ um við Orkuveitu Reykjavíkur eru verulegir fyrirvarar um að fyrirtækið geti staðið við greiðslurnar. Bankinn bendir á að Magma hafi einungis átt þrjár leiðir færar til að greiða skulda­ bréfið til baka. Í fyrsta lagi með því að nota arðinn sem félagið fengi frá HS Orku en Ís­ landsbanki benti á að ólíklegt væri að arðgreiðslurnar myndu nægja til að fjármagna uppgreiðslu lánsins þar sem hagnaður HS Orku væri ekki það mikill. „Ljóst er að arðgreiðslur HS Orku nægja hvergi nærri til að unnt verði að standa skil á þessu tiltekna skuldabréfi sem hér um ræðir, jafn­ vel þótt allur sá arður sem félli í skaut Magma yrði eingöngu nýttur til þess en slíkt hlýtur að teljast ólíklegt.“ Önnur ástæðan sem Íslandsbanki nefndi var sú að ólíklegt væri að ein­ hver annar aðili myndi endurfjár­ magna skuldir Magma Energy en að þetta væri ólíklegt þar sem engin önn­ ur eign en hlutabréfin í HS Orku væru inni í Magma Energy og því þyrfti við­ komandi fjármálastofnun að taka veð í þeim hlutabréfum líkt og Orkuveita Reykjavíkur hefði gert. „Sé litið til þess að engin starfsemi er til staðar í hinu sænska félagi, og að arðgreiðslugeta HS Orku er ólíkleg til að þjóna þeirri skuldsetningu, sbr. umfjöllun að ofan, er ólíklegt að utanaðkomandi aðili, s.s. ótengdur fjárfestir eða lánastofn­ un, endurfjármagni skuldirnar að nokkru leyti.“ Staða Alterra ekki góð Þriðja ástæðan sem Íslandsbanki nefndi var fjármögnun frá móðurfé­ lagi Magma Energy, Alterra Power Corp, en bankinn var ekki bjartsýnn á að það fyrirtæki gæti staðið undir slíkum greiðslum en benti reyndar á að ef önnur verkefni félagsins myndu ganga vel þá gæti þessi stað breyst. Orðrétt segir í greiningu Íslands­ banka: „Kemur þá til álita hver fjárhags­ staða móðurfélagsins Alterra Power Corp er. Virði hlutabréfa þess í kaup­ höllinni í Toronto hefur sveiflast mik­ ið á liðnum misserum og var á verð­ matsdegi 0,345 CAD/hlut, sem er lægsta gengi frá skráningu félagsins um mitt ár 2009 (...) Þá er einnig ljóst af ársreikningum félagsins að ekki er til staðar geta hjá því til að mæta þessum afborgunum, m.v. núverandi stöðu. Komi hins vegar til þess að þró­ unarverkefni félagsins gangi vel gæti staðan breyst til hins betra.“ Íslandsbanki var því verulega ef­ ins, svo ekki sé meira sagt, um að Magma Energy hefði getað staðið við samning sinn við Orkuveitu Reykja­ víkur um uppgreiðslu skuldabréfsins. Þessi vafi átti þátt í því að ákveðið var að selja skuldabréfið. DV hefur gert tilraunir til að ná tali af Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orku­ veitu Reykjavíkur, og meðal annars skilið eftir skilaboð handa honum. Blaðið hefur hins vegar ekki náð að spyrja Bjarna um málið. n „Þá er einnig ljóst af ársreikningum fé- lagsins að ekki er til stað- ar geta hjá því til að mæta þessum afborgunum. Íslandsbanki efins Íslandsbanki vann greiningu fyrir Orkuveitu Reykja- víkur á sölu stofnunarinnar á skulda- bréfi Magma Energy. Þar var komist að því að ólíklegt væri að Beaty gæti borgað OR af hlutabréfunum. Enn eitt fasteignafélagið Inventa er enn eitt fasteignafélagið sem Sparisjóð- urinn í Keflavík fjármagnaði sem verður gjaldþrota og afskrifa þarf hjá. Sala áfengis dróst saman um 9,7 prósent í júní á breytilegu verð­ lagi miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í smásöluvísi­ tölu Rannsóknarseturs verslun­ arinnar. Verð á áfengi var 0,7 pró­ sentum hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Í tilkynn­ ingu frá Rannsóknarsetri versl­ unarinnar kemur fram að freist­ andi sé að túlka þessa minnkandi veltu í áfengisverslun með blautu veður fari undanfarið. Þar kemur þó fram að líklegri skýring sé sú að í júní í fyrra voru fimm föstudagar en í ár voru þeir einungis fjórir. Þegar tekið hefur verið tillit til þessa dagamunar kemur fram að veltan hafi verið svipuð á milli ára. Hvað aðra þætti varðar í smá­ söluvísitölunni jókst velta yfir­ leitt talsvert milli ára: 9,1 prósent í fataverslun, 11,8 prósent í skó­ verslun og 10,6 prósent í hús­ gagnaverslun. Lítil breyting var hins vegar í veltu með mat og drykkjarvörur. Litlar breytingar urðu í flestum tegundum verslunar þegar horft er yfir fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við sama tímabil í fyrra og virðist því nokkuð jafn­ vægi komið á í verslun. Þannig jókst raunvelta dagvöruverslunar um 0,7 prósent, velta áfengisversl­ unar dróst saman um 0,7 prósent, fataverslun jókst um 0,9 prósent og húsgagnaverslun jókst um 3,8 prósent. Greiðslukortavelta heimil­ anna jókst um 2,1 prósent í júní miðað við sama mánuð í fyrra og nam um 60,6 milljörðum króna. Erlendir ferðamenn greiddu um 11 milljarða króna með greiðslu­ kortum hér á landi í júní sem er 16,2 prósentum hærri upphæð en í júní í fyrra. Sala áfengis dróst saman Harma ákvörðun bænda Landvernd harmar þá ákvörðun nokkurra bænda í Rangárvalla­ sýslu að reka fé sitt á Almenninga í Rangárþingi eystra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Landvernd hefur sent frá sér en þar kemur fram að afrétturinn hafi verið metinn óbeitarhæfur af vísinda­ mönnum Landbúnaðarháskóla Íslands. „Með ákvörðun sinni ganga bændurnir þvert gegn stefnu íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu auðlinda og skaða ímynd íslensks landbún­ aðar. Ákvörðunin hlýtur að vekja neytendur til umhugsunar um afstöðu sína til neyslu lamba­ kjöts sem alið er á óbeitarhæfum auðnum landsins. Landvernd telur mikilvægt að ná sátt í þessu máli,“ segir í yfirlýsingunni. Þá kemur fram að hið opinbera geti ekki varið ríkisstuðningi til fram­ leiðslu landbúnaðarafurða þar sem hún er stunduð á ósjálfbær­ an hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.