Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Qupperneq 15
FME verður að vakna í máli Dróma Allt þetta er afleiðing spillingar og græðgi Vigdís Hauksdóttir segir FME hafa víðtækar heimildir til að grípa inn í. – Í bítiðBubbi Morthens um hrun Íbúðalánasjóðs. – Pressan.is Dagar brauðs og rósa 1 Mótmæla því að Egill stýri Húkkara ballinu Segir Egil ítrekað hafa gerst sekan um kynþáttafor- dóma. 2 „Of feitar“ fyrir rennibrautina Systrum í Svíþjóð meinaður aðgangur að vinsælli vatnsrennibraut. 3 Jóni Óttari stefnt út af Visa-skuld Stefnt vegna 1.400 þúsund króna skuldar við MP-banka. 4 Kærasta Óla Geirs keppir í Ungfrú Filippseyjum Óli Geir hvetur Íslendinga til að kjósa hana á veraldarvefnum. 5 Í göngutúr á brjóstahaldaran-um Tónlistarkonunni Lady Gaga var heitt í New York á dögunum. 6 Björn Valur stýrimaður á spariskipi Síldarvinnslunnar Kominn aftur á sjóinn eftir fjögur ár í þingmennsku. 7 Stefán undrast aðdáun Vig-dísar á Osborn Stefán Ólafsson gagnrýnir Vigdísi Hauksdóttur fyrir að taka undir með fjármálaráðherra Bretlands. Mest lesið á DV.is H efur einhver frétt eitthvað af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjár­ málaráðherra? Hvar eru hinir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, ef undan er skilinn Illugi Gunnarsson, og niðurskurðurinn hjá LÍN og stjórnar­ mennirnir hans sem og Davíðslegt frum­ varpið um RÚV, sem aðeins hefur gustað um frá kosningunum? Hvað heita aftur ráðherrar flokksins? Já auðvitað: Ragn­ heiður Elín vill skattleggja túrismann í auknum mæli – gjaldtaka sem þverpóli­ tísk sátt ætti að geta skapast um – og já, hún er fylgjandi álveri í Helguvík enda sönn Suðurnesjakona. Jú og Kristján Þór er heilbrigðisráðherra og kom fram í út­ varpsþætti um liðna helgi og sagði svo sem ekkert sem hann mátti ekki eða átti ekki að segja – ólík rekstrarform eru al­ þekkt víða um lönd í heilbrigðisþjónustu nútímans. Hvar er Hanna Birna annars, hún er ráðherra er það ekki? Hvar er allt þetta fólk og hvað er það að gera? Á meðan ráðherrar og þingmenn Framsóknarflokksins hafa gerst sekir um hvert pólitíska klúðrið á eftir öðru frá kosningunum í vor, allt frá staðhæfing­ um um lokun umhverfisráðuneytisins, endurskoðun á friðlýsingu Þjórsárvera og yfirlýsingum um að einstaka þing­ menn hans séu málsvarar útgerðarinn­ ar, til afnáms listamannalauna, lokunar Evrópustofu og tölvupóstaklúðurs, hafa þessir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins að mestu setið á friðarstóli. Þeir geta sinnt störfum sínum í ráðuneytunum án þess að þurfa að eyða orku í að slökkva póli­ tíska elda og bregðast við eigin skissum á opinberum vettvangi með leiðréttingum og málamiðlunum. Nokkrir af ráðherr­ um og þingmönnum Framsóknarflokks­ ins hafa ekki mikla pólitíska reynslu og kunna ekki almennilega að stíga þann fínlega dans sem stjórnmálin eru – þeir eru eins og „klaufdýr á svelli“ í samskipt­ um sínum við fjölmiðla, eins og Össur Skarphéðinsson sagði um sjávarútvegs­ ráðherrann Sigurð Inga Jóhannsson fyrir nokkru. Þá tók Framsóknarflokkurinn á sig mestu holskefluna út af umdeildasta málinu sem ríkisstjórnin hefur keyrt í gegnum þingið á stuttum líftíma sínum: Lækkun veiðigjaldanna sem 35 þúsund landsmenn lýstu sig andvíga. Nýjasta skráveifa Framsóknar er svo Íbúðalána­ sjóðsskýrslan en skuldinni fyrir óráð­ síunni hjá sjóðnum er miklu frekar skellt á Framsókn en Sjálfstæðisflokkinn. Best er fyrir stjórnmálaflokka í ríkisstjórn að vera nánast ósýnilegir – það þýðir að á meðan er flokkurinn ekki umdeildur og tapar því ekki fylgi út af vafasömum mál­ um: Sjálfstæðisflokknum hefur tekist þetta en Framsóknarflokknum ekki. Stærsta og alvarlegasta málið er svo það að Framsóknarflokkurinn hefur ekki hugmynd um hvernig hann ætlar að efna kosningaloforðin um skuldaniðurfell­ ingar og skuldaleiðréttingar sem flokkur­ inn gaf kjósendum sínum fyrir kosningar og reynir eftir fremsta megni að þæfa umræðuna um þau og tefja – það óhjá­ kvæmilega og stórfellda fylgishrun sem kosningasvik flokksins munu hafa í för með sér er enn ekki komið í ljós. Sjálf­ stæðisflokkurinn gaf kjósendum sín­ um hins vegar miklu færri loforð og því er minna sem flokkurinn þarf að reyna að standa við og þar af leiðandi miklu minni hluti kjósenda flokksins sem mun snúa baki við honum en Framsókn þegar gylliboðin reynast ekki framkvæmanleg. Sjálfstæðisflokkurinn var miklu ábyrgari en Framsóknarflokkurinn í loforðum sínum í aðdraganda kosninganna og má segja að munurinn á flokkunum tveim­ ur hafi að vissu leyti kristallast í þeim mun: Á aðra höndina ertu með sjóaða atvinnustjórnmálamenn sem hugsa lengra fram í tímann en á hina ertu með hóp málaliða – jafnvel nýliða í flokkn­ um – sem lætur skammtímasjónarmið ráða för, öll prinsipp fara lönd og leið á atkvæða veiðunum. Við sjáum hvert þessir fyrstu mán­ uðir ríkisstjórnarinnar hafa leitt þá og að hluta til vitum við af hverju: Sjálfstæðis­ flokkurinn bætir og bætir við sig fylgi samkvæmt skoðanakönnunum á með­ an fylgi Framsóknarflokksins hrynur af flokknum. Samkvæmt nýjustu könnun MMR frá því vikunni er fylgi Sjálfstæðis­ flokksins nú rétt tæp 30 prósent á meðan Framsóknarflokkurinn mælist með tæp 20 prósent. Í kosningunum í vor fékk Framsóknarflokkurinn hins vegar 24,4 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn 26,7 og fengu báðir flokkarnir nítján þingmenn. Á einungis tveimur og hálf­ um mánuði hefur þessi staða flokkanna tveggja því breyst umtalsvert. Sjálfstæðis­ flokkurinn er nú, samkvæmt könnunum, með um tíu prósentustigum meira fylgi á landsvísu samanborið við rúmlega 2 pró­ sentustigum meira í kosningunum í vor. Þetta fylgistap Framsóknarflokksins er ekki óskiljanlegt þegar litið er til þess hversu mörg umdeild mál hafa komið upp í tengslum við þingmenn flokksins á fyrstu mánuðum hans í ríkisstjórnarsam­ starfinu við Sjálfstæðisflokkinn sem og til þeirra væntinga sem kjósendur flokksins gerðu til hans í vor – ég hef talað við all­ nokkra einstaklinga sem kusu flokkinn bara af því að hann bauð best í skulda­ málunum. Ekki er ólíklegt að stór hluti þess fylgis sem tætist af Framsóknar­ flokknum fari yfir til Sjálfstæðisflokks­ ins. Á meðan Framsóknarflokkurinn býður fylgishrun, sem hingað til hefur verið hratt en gæti orðið hægfara út kjör­ tímabilið, situr Sjálfstæðisflokkurinn í pólitísku sólskini með hendur á hnakka og horfir á fylgi sitt aukast jafnt og þétt í ójöfnu ríkisstjórnarsamstarfi. Miðað við framsóknarmennina líta sjálfstæðis­ mennirnir bara svo andskoti vel út: Sjálf­ stæðisflokkurinn þarf eiginlega ekki aðra vini í íslenskri pólitík en Framsóknar­ flokkinn. Stundum er sagt að eins dauði sé annars brauð og á þessi orðskviður vel við í ríkisstjórnarsamstarfi flokkanna: Sjálfstæðisflokkurinn græðir á því að vera ábyrgari, ósýnilegri og óumdeildari aðilinn í þessu samstarfi auk þess sem Framsókn fer með forsætisráðuneytið. Ég held að sú ákvörðun Bjarna Bene­ diktssonar að sættast á að gefa forsætis­ ráðuneytið eftir til Sigmundar Davíðs í vor, jafnvel þó að flokkur hans hafi fengið meira fylgi en Framsókn, hafi verið klók. Bjarni gæti verið kominn í þá stöðu eftir eitt ár eða tvö í samstarfinu, að Sigmund­ ur Davíð mun ekki geta neitað honum um forsætisráðherrastólinn þegar fylgi Framsóknarflokksins verður komið enn meira niður og Sjálfstæðisflokk­ urinn gæti hafa bætt enn meira fylgi við sig. Þá mun Sigmundur vera orðinn ör­ væntingarfullur og samningsstaða hans verður ekki eins góð og í vor og Bjarni mun í reynd hafa sjálfdæmi varðandi áframhaldandi samstarf sem Sigmund­ ur Davíð mun ólmur vilja til að halda völdum. Þessir mánuðir frá kosningum hafa því verið dagar brauðs og rósa fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem mun græða á því að hafa hugsað til lengri tíma en Fram­ sókn sem enn og aftur stefnir í að verða fórnarlamb eigin skammtímahugsunar – skiljist – kosningabrigsla og óheiðarleika gagnvart kjósendum. n Sumar Það getur verið notalegt að sitja við sjávarsíðuna jafnvel þótt sumarhitar láti standa á sér. Meðalhiti í júlí stefnir í að vera sá lægsti í þrjátíu ár. Mynd Sigtryggur ariMyndin Umræða 15Miðvikudagur 17. júlí 2013 Kjallari Ingi F. Vilhjálmsson ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is „Sjálfstæðisflokk- urinn bætir og bæt- ir við sig fylgi samkvæmt skoðanakönnunum á með- an fylgi Framsóknarflokks- ins hrynur af flokknum. Var ekkert stressuð Aníta Hinriksdóttir, heimsmeistari í 800 metra hlaupi kvenna undir 17 ára. – RÚV „Hann særir fjölda fólks og talar niðrandi um kynþætti og kven- fólk. Er það ekki alveg nóg til þess að hafa hann á hliðarlínunni, allavega á ekki að lofsyngja hann og gera að fyrirmynd óharnaðra ungmenna.“ Hjálmtýr Heiðdal um mótmæli gegn því að Egill Einarsson stýri Húkk- araballinu á Þjóðhátíð. „Mér finnst missir að svona mönn- um af þingi.“ Karl Löve um Björn Val Gíslason, sem hefur verið ráðinn stýrimaður á skipi Síldarvinnslunnar. „Gerið nú það að láta þetta ekki enda á okkur skattgreiðend- um!“ aðalsteinn Svan Hjelm um áform um að byggja stærsta hótel landsins við Höfðatorg. „Tólf mánuðir fyrir að stinga innbrotsþjóf. Átta mánuðir fyrir að brjóta kynferðislega á börnum. Það er eitthvað ekki alveg í lagi.“ Jóhann ingi Ólafsson um mann sem fékk eins árs fangelsisdóm, skilorðs- bundinn, fyrir að stinga vin sinn. „Mikið er ég glaður að þetta hafi farið svona. Þetta gefur gott fordæmi fyrir því að svona hegðun eigi ekki rétt á sér.“ Elías rafn Heimisson um sigur Maríu Birtu Bjarnadóttur í meiðyrða- máli gegn stúlku sem setti inn vændisauglýsingu á Einkamál.is í hennar nafni. Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni 81 33 12 32 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.