Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2013, Síða 16
16 Neytendur 17. júlí 2013 Miðvikudagur Réttindi flugfarþega n Við seinkun eða aflýsingu flugs Þ að geta allir lent í því að flugi sé seinkað eða því hreinlega aflýst. Á heimasíðu Neytenda­ samtakanna eru teknar saman upplýsingar um þau réttindi sem flugfarþegar hafa þegar þeir lenda í slíku. Þar segir að samkvæmt reglugerð um réttindi flugfarþega beri flug­ félögum að bjóða farþegum nýja flugleið ef flugi þeirra er aflýst. Ef tilkynning um aflýsingu berist inn­ an við tveimur vikum fyrir upphaf­ lega áætlaða brottför og tilboð flug­ félagsins um breytta flugleið feli í sér að farþegi kemur á ákvörðunarstað meira en fjórum tímum seinna en upphaflega var áætlað, geti flugfélag­ ið þurft að greiða skaðabætur. Skylda til greiðslu skaðabóta geti hins vegar fallið niður ef ástæða aflýs ingarinnar séu óviðráðanlegar aðstæður, til dæmis ef fluginu sé af­ lýst vegna eldgoss. Hins vegar geti óviðráðanlegar aðstæður ekki átt við þegar flugi er aflýst vegna tækni­ legra vandamála tengdum flug­ vélum og rekstri þeirra. Sé flugi af­ lýst vegna tæknilegra vandamála er skaðabótaskylda flugfélagsins að öll­ um líkindum til staðar. Því sé mikil­ vægt að flugfarþegar fái upplýsingar um ástæðu aflýsingar til að þeir geti metið réttarstöðu sína. Þegar flugi er aflýst vegna verkfalls eigi farþegar rétt á að velja um endurgreiðslu eða breytingar á flugleið. Ef um seinkun á flugi er að ræða og hún er meiri en þrjár klukku­ stundir og veldur því að farþegi kem­ ur á lokaákvörðunarstað þremur tímum síðar eða meira en uppruna­ leg áætlun sagði til um, geta farþegar átt rétt á skaðabótum. Þetta eigi þó ekki við, geti flugrekandi sýnt fram á að töfin hafi verið vegna óviðráðan­ legra aðstæðna. Upphæð skaðabót­ anna er 400 evrur fyrir flug á milli Ís­ lands og Evrópu og 600 evrur á flugi milli Íslands og Bandaríkjanna. Flugfarþegar eru hvattir til að kynna sér reglurnar á heimasíðu Samgöngustofu. n gunnhildur@dv.is algengt verð 255,4 kr. 250,8 kr. algengt verð 254,9 kr. 250,4 kr. höfuðborgarsvæðið 254,8 kr. 250,3 kr. algengt verð 255,4 kr. 250,8 kr. algengt verð 256,4 kr. 250,9 kr. Melabraut 255,1 kr. 250,5 kr. Eldsneytisverð 16. júlí Bensín Dísilolía Fékk lengri tíma í nuddi n Lofið fær Nuddstofa Evu á Höfða­ torgi en DV fékk eftirfarandi sent; „Ég pantaði 50 mínútna nudd og nuddarinn spurði hvort ég hefði tíma til að vera örlítið lengur og nuddaði mig í 80 mín­ útur í kjölfarið því henni fannst ég þurfa á því að halda. Hún rukkaði mig svo bara um 5.500 krónur fyrir þetta en það er það sem 50 mín­ útna nudd kostar hjá henni.“ Dýr færsla n Lastið fær Landsbankinn en við­ skiptavinur sendi afrit af kvittun sem hann fékk vegna millifærslu sem hann framkvæmdi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir skömmu. Þar sést að kostnaður við að millifæra 5.000 krónur er 300 krónur sem honum þykir ansi mikið. Upphæð­ in skiptist á þann veg að greiddar eru 200 krónur fyrir bókhald og 100 krónur fyrir millifærsluna sjálfa. DV fékk svar frá Þórmundi Jóna­ tans syni hjá Landsbankanum; „Við hjá Landsbankanum þökkum fyrir ábendingu viðskiptavinarins. Ljóst er að við afgreiðslu í útibúi þarf í sumum tilvikum að greiða gjöld og þau eru hærri og fleiri þegar viðskiptavinir annarra banka eiga í hlut. Rétt er að benda á að við millifærslur er hagstæðast að nota bæði netbanka og þjónustusíma. Í þessu tilviki notar viðskiptavin­ ur debetkort sitt, sem er úr öðrum banka eða sparisjóði en Lands­ bankanum, til að taka út umrædda upphæð hjá gjaldkera en fyrir það skal greiða 200 krónur samkvæmt verðskrá bankans (liður 30.3). Síð­ an leggur hann fjárhæðina inn á reikning í öðrum banka og fyrir það innheimtist gjald, 100 krón­ ur, sömuleiðis samkvæmt verðskrá bankans (liður 9.3). Gjaldtakan á sér í báðum tilvikum hliðstæðu í öðrum bönkum. Á hinn bóginn er það mat bank­ ans við skoðun á þessu máli að ekki hafi verið rétt að innheimta bæði gjöldin. Landsbankinn biðst afsökunar á þessu og býður við­ skiptavininum að hafa samband við Þjónustuver bankans til að fá gjaldið bakfært. Gerðar verða ráðstafanir til að tilvik af þessu tagi komi ekki upp aftur.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is aflýsing flugs Flugfélagið gæti þurft að greiða skaðabætur. N ú eru nokkur fjarskiptafyrir­ tæki farin að bjóða upp á 4G netþjónustu en Póst­ og fjarskiptastofnun veitti í vor tíðniheimildir til fjögurra fyrirtækja. Það eru 365 miðlar, Voda­ fone, Nova og Síminn. Hvað er 4G? 4G er háhraða nettenging sem hent­ ar vel fyrir heimili og vinnustaði og nýtist sérstaklega vel fólki sem býr á svæðum þar sem fastlínutengingar eru ekki til staðar, til dæmis í dreif­ býli og á sumarbústaðasvæðum. Þjónustan gefur tíu sinnum meiri hraða en 3G og 3 sinnum meiri hraða en ADSL en viðskiptavinir tengjast þjónustunni með boxi, hnetu eða pung. aukakostnaður sem hverfur Kosturinn við þjónustuna er því að notandinn getur tengst internetinu um leið og hann kaupir þjónustuna en hann þarf ekki að bíða eftir upp­ setningu á línu heima hjá sér. Auk þess er hægt að vera tengdur hvar sem er og nýta sér þjónustuna til dæmis í sumarbústaðnum eða á vinnustaðnum. Það má segja að það sé ákveðinn sparnaður fólginn í 4G þar sem mað­ ur sparar sér ýmsan aukakostnað svo sem línugjald og leigu á beini. Ekki er hægt að kaupa ljósleiðara­ eða ADSL þjónustu án þess að kaupa líka heimasíma eða heimlínuþjón­ ustu auk þess sem greitt er mánaðar­ gjald af beini áður en kemur að sjálfu internetgjaldinu. Nova býður upp á 4G þjónustuna á höfuðborgarsvæðinu, í Skorradal og Grímsnesi en síðar á árinu mun hún einnig bjóðast á Akureyri og í Reykjanesbæ. 4G þjónusta Voda fone er í Skorradal, Eyjafirði og Gríms­ nesi. Síminn og 365 miðlar hafa ekki enn tekið upp 4G kerfið. símtöl undir gagnaflutnings- þjónustu Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar Póst­ og fjarskipta­ stofnunar segir að eins og er sé einungis um netþjónustu að ræða. „Mér skilst að það séu einungis nokkrir dagar eða vikur í að hægt verði að nota síma á 4G. Það sem hindrar að hægt sé að nota símtæki á 4G er að lausn fyrir símtöl yfir gagnaflutningsnetið í 4G er ekki tilbúin. Þess vegna er beðið eftir lausn sem færir símann yfir á 3G netið þegar framkvæma á símtal eða taka við símtali. Síðar verða símtölin einnig færð yfir í þessa gagnaflutningsþjónustu. Þá verða símtölin ekki lengur rásatengd eins og í dag heldur hluti af gagnaflutningi (IP símtöl),“ segir hann. Aðspurður hvort um sparnað verði að ræða fyrir neytendur segir hann að erfitt sé að segja til um það og að reynslan verði að sýna okkur hvernig það breytist með breyttri þjónustu. „Helsti sparnaðurinn og breytingin enn sem komið er, er sá að með 4G þarft þú ekki lengur fasta landlínu eins og áður heldur einungis þessar hnetur eða punga sem þú getur tekið með þér hvert sem er.“ Nú séu bara 3 til 4 tegundir af símum sem styðja 4G kerfið. Það komi þó ekki að sök því eins og áður var sagt þá er enn um sinn fyrst og fremst um gagnaflutningsþjónustu að ræða. n Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is n Einungis nettenging nú n Sparnaður kemur í ljós þegar símtölin detta inn Svona virkar 4G þjónuStan Evrópa með önnur tíðnisvið Þegar kaupa á tæki sem getur nýtt 4G tækni er nauðsynlegt að hafa í huga að þau tíðnisvið sem nota á fyrir þessa þjónustu eru ekki samræmd um allan heim. Hvert 4G tæki er byggt fyrir notkun á ákveðnum tíðnisviðum og þau svið sem notuð verða eru ekki þau sömu í Evrópu og til dæmis í Bandaríkjunum. Ísland fylgir Evrópu hvað varðar skilgreind tíðnisvið fyrir ákveðna notkun. Það verður því ekki hægt að nota 4G tæki hér á landi eða annars staðar í Evrópu sem byggð eru fyrir 4G net í Bandaríkjunum eða í Kanada. Hins vegar er ekki ólíklegt að þetta breytist á næstu árum og ný tæki verði þróuð og framleidd sem hægt verður að nota á mismunandi tíðnisviðum. UpplýsinGar af síðU póst- oG fjarskiptastofnUnar Hneta, beinir og pungur Koma í staðinn fyrir fastlínutengingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.