Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Page 14
Vikublað 17.–19. desember 2013 Fréttir Viðskipti 15
H
reiðar Már Sigurðsson og
viðskiptafélagar hans vilja
reisa hótel og gistiheim-
ili á Skógum á Suðurlandi
með gistiaðstöðu fyrir
tæplega 300 manns. Um er að ræða
stóra og glæsilega tveggja hæða
nýbyggingu á staðnum sem á að
hýsa starfsemina og hefur verið út-
búinn bæklingur um bygginguna
sem kynntur var fyrir sveitarstjórn
Rangárþings eystra fyrr á árinu.
Sveitarstjórnin samþykkti vilja-
yfirlýsingu um bygginguna á fundi
sínum í október síðastliðinn og er
nú í gangi vinna við breytingar á
aðal- og deiliskipulagi á Skógum að
sögn sveitarstjórnarkonunnar Guð-
laugar Óskar Svansdóttur. „Þetta er
auðvitað bara hugmynd en það sem
við erum að gera núna er að breyta
aðal- og deiliskipulagi þannig að
hægt sé að fara í hótelbyggingu á
svæðinu,“ segir Guðlaug Ósk.
Stofnað hefur verið félag utan
um hótelbygginguna sem heit-
ir Skógar fasteignafélag ehf. en það
félag er stofnað af Reykjavík Back-
packers ehf. og eignarhaldsfélaginu
Nitri ehf. Aðstandendur Reykjavík
Backpackers eru meðal annarra
Hilmar Hafsteinsson, fyrrverandi
starfsmaður Kaupþings, og Davíð
Másson.
Keyptu Hótel Hengil
Í október 2011 greindi DV frá því
að eignarhaldsfélag í eigu Halldórs,
Sep ehf., hefði keypt Hótel Hengil
á Nesjavöllum við Þingvallavatn
af Orkuveitu Reykjavíkur. Hreiðar
Már tengdist þeim kaupum og kom
á hótelsvæðið eftir að viðskiptin
voru gengin í gegn og falaðist eftir
eignum sem voru í eigu þáverandi
rekstraraðila hótelsins. Fyrir tengd-
ist Hreiðar Már tveimur hótelum á
Stykkishólmi sem eiginkona hans á
í gegnum eignarhaldsfélagið Gisti-
ver ehf. og móðir hans rekur.
DV greindi svo frá því í byrjun
árs að þeir Halldór og Davíð væru
komnir inn í hluthafahóp ferða-
þjónustufyrirtækisins Reykjavík
Backpackers ehf. og að það fyrir-
tæki myndi koma að rekstri Hótels
Hengils. Þá liggur fyrir að matsölu-
staður eiginkonu Hreiðars Más,
Happ, hefur boðið upp á sérstaka
heilsudaga á Hótel Hengli en sá
staður er í eigu Gistivers ehf. DV
greindi frá því á föstudag að Gisti-
ver ehf. hefði nýverið farið út í 500
milljóna króna skuldabréfaútboð
til að flytja fjármuni til Íslands í
gegnum fjárfestingarleið Seðla-
banka Íslands.
Innlendir og erlendir fjárfestar
Auk þeirra Halldórs og Davíðs
kemur eignarhaldsfélagið Nitur
ehf. að stofnun fasteignafélags-
ins sem er ætlað að halda utan um
hótelbygginguna á Skógum. Það fé-
lag er í eigu Hilmars Þórs Kristins-
sonar sem var einn af forvígismönn-
um Kaupþings á tíunda áratugnum
ásamt Hreiðari Má. Í stofnsam-
þykktum Skóga fasteignafélags
kemur fram að hluti af fjármögn-
uninni á hótelinu verði í höndum
Hilmars Þórs sem láni félaginu
„allt að“ 100 milljónum króna. Þá á
Reykjavík Backpackers að lána því
allt að 50 milljónum króna.
Í kynningunni á hótel-
byggingunni kemur fram að inn-
lendir og erlendir aðilar muni koma
að fjármögnun verkefnisins: „Öfl-
ugir fjárfestar, innlendir og erlendir,
munu koma að verkefninu.“ Í sam-
tölum DV við sveitarstjórnarmenn
í Rangárþingi eystra kemur fram
að ekki hafi verið tilgreint hvaða
fjárfestar komi að byggingu hótels-
ins. „Við vitum ekki hverjir eru að
fjármagna þetta, nei,“ segir Guð-
laug Ósk. Þeir segja að málið sé
ekki komið svo langt heldur standi
nú yfir vinna við breytingu á aðal-
og deiliskipulagi á svæðinu. Einn
þeirra segir þó að hann hafi „heyrt“
nafn Hreiðars Más nefnt í sambandi
við hótelið.
Vilja opna næsta sumar
Í kynningarbæklingnum kemur
fram að til standi, ef hægt er, að
opna hótelið næsta sumar. Orð-
rétt segir um þetta í bæklingnum:
„Verði jákvætt í beiðni um breytingu
deiliskipulags tekið og úthlutun
lóðar er stefnt að því að ljúka fram-
kvæmdum við fyrsta áfanga og hefja
starfsemi svo fljótt sem verða má.
Óskastaða er að starfsemi hefjist í
sumarbyrjun 2014.“
Heildarkostnaður við byggingu
hótelsins gæti numið allt að millj-
arði króna. n
Viljayfirlýsing um bygginguna samþykkt á fundi sveitarstjórnarinnar
Nærri 300 svefnpláss Samkvæmt
kynningunni á byggingunni er ráðgert
að nærri 300 hundruð svefnpláss verði í
byggingunni.
Hreiðar
Már vill
reisa hótel
á Skógum
Viljayfirlýsing um bygginguna samþykkt á fundi sveitarstjórnarinnar„Við vitum ekki
hverjir eru að fjár-
magna þetta, nei.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Flutti inn 500 milljónir
Félag Hreiðars Más hefur
gefur út skuldabréf vegna
innflutnings á fjármagni til
Íslands en hann kemur að
hugsanlegri uppbygginu á
hóteli á Skógum á Suðurlandi.
Hefðu geta
tryggt framhald
„Ríkisstjórninni var í lófa lagið
að tryggja framhald IPA-verk-
efna. Það gerði hún ekki, held-
ur kaus að setja samskiptin við
ESB í uppnám og fórna verk-
efnum upp á rúma 5 milljarða
króna,“ segir Árni Páll Árnason,
formaður Samfylkingarinn-
ar, um IPA-styrkja málið svo-
kallaða. Sem kunnugt er hefur
Evrópusambandið afturkallað
styrkina, en þeir eru samheiti
yfir fjölþætta aðstoð sem ESB
veitir umsóknarríkjum til að
undirbúa aðild. „Nú, þegar af-
leiðingar flumbrugangsins blasa
við, vill ríkisstjórn, sem telur
IPA-styrki ígildi mútugreiðslna,
þvinga viðsemjandann til að
halda áfram að múta sér,“ segir
Árni Páll á Facebook-síðu sinni.
Árni Páll lagði fram fyrirspurn
fyrir forsætisráðherra, Sigmund
Davíð Gunnlaugsson, á Alþingi
á mánudag. Sigmundur sagðist
telja eðlilegt að klára þau verkefni
sem hefðu fengið IPA-styrki og
að hann hefði tjáð Evrópusam-
bandinu það í sumar og að auki
tjáð þeim að Ísland hefði ekki
ætlað að stofna til fleiri verkefna
undir formerkjum slíkra styrkja.
Góð staða OR
Staða Orkuveitu Reykjavíkur fer
batnandi ef marka má matsfyrir-
tækið Moody´s. Þar á bæ hafa
menn breytt horfum í lánshæfis-
mati sínu á Orkuveitunni úr nei-
kvæðum í stöðugar. Skemmst er
að minnast þess að Orkuveitan
var í hryllilegri fjárhagsstöðu
þegar Besti flokkurinn og Sam-
fylkingin tóku við stjórn borg-
arinnar fyrir þremur árum. Í til-
kynningu Moody´s kemur fram
að hinn lögbundni aðskilnað-
ur samkeppni- og sérleyfisstarf-
semi Orkuveitunnar, sem verður
um áramótin, muni ekki auka
áhættu í rekstri.
Þarf að borga
fyrir lagerinn
Héraðsdómur Reykjaness hef-
ur dæmt Magnús Hvanndal
Magnús son í 12 mánaða fang-
elsi, þar af níu mánuði skilorðs-
bundið, fyrir skilasvik. Magnús
tók til sín hluta lagers eftir að
félag, Granítsmiðjan, sem hann
átti og rak hafði verið úrskurðað
gjaldþrota að því að fram kemur
í dómi Héraðsdóms Reykjaness.
Magnúsi var gert að greiða þrota-
búinu skaðabætur að andvirði
lagersins og 2/3 hluta sakarkostn-
aðar. Hann var hins vegar sýkn-
aður af bókhaldsbroti, en ósann-
að þótti að hann hefði látið undir
höfuð leggjast að varðveita bók-
hald Granítsmiðjunar, frá stofnun
félagsins árið 2003 og þar til það
var úrskurðað gjaldþrota í febr-
úar 2010. Bókhaldið fannst ekki
og þótti ekki sannað að Magnús
bæri ábyrgð á því. Magnúsi ber
að greiða þrotabúinu 13.363.795
krónur ásamt vöxtum fyrir lager-
inn, auk málskostnaðar.
Salan á Bláfugli á lokametrunum
Fraktflugfélagið hefur verið til sölu um nokkurra ára skeið
Á
næstunni mun skýrast hvort
flugfélagið Bláfugl verður
selt frá Íslandsbanka til nýs
eiganda. Þetta herma heimild-
ir DV. Íslandsbanki á 2/3 í félaginu
en Glitnir á 1/3. Félagið hefur verið
til sölu um nokkurt skeið og greindi
DV til dæmis frá því í mars í fyrra að
þrír stæðu eftir í kapphlaupinu um
Bláfugl. Salan fór hins vegar út um
þúfur. Sama má segja um viðræður
sem áttu sér stað við áhugasam-
an kaupanda fyrr á árinu. Salan á
Bláfugli hefur því gengið brösuglega.
Síðastliðin tvö ár hafa verið erfið
hjá Bláfugli en fram að því hafði
gengi félagsins verið gott. Bláfugl á
eina 737-þotu sem flýgur til Kölnar í
Þýskalandi á hverri nóttu með vörur
frá Íslandi, meðal annars íslenskan
fisk. Þar að auki hefur fyrirtækið
leigt fjórar þotur sem stunda frakt-
flutninga á meginlandi Evrópu. Blá-
fugl er með flugrekstrarleyfi á Ís-
landi og einnig í Perú. Félagið átti
háar bankainnistæður í reiðufé, um
1.700 milljónir króna, og kaupend-
ur höfðu auðvitað sérstakan áhuga á
þeim innistæðum.
Heimildir DV herma að fjöl-
margir aðilar hafi skoðað Bláfugl en
að þeir hafi svo horfið frá og er sér-
staklega bent á rekstrarerfiðleika fé-
lagsins síðastliðin tvö ár. Lokaðar
viðræður hafa hins vegar verið við
einn áhugasaman kaupanda síðan í
október. Í ljós mun koma, væntan-
lega fyrir jól, hvort sá aðili kaupir
fyrirtækið eða ekki. DV hefur ekki
heimildir fyrir því um hvaða aðila
ræðir en þó mun ekki vera um að
ræða lífeyrissjóðina eða sjóð sem
samanstendur af nokkrum þeirra. n
ingi@dv.is
Á lokametrunum
Viðræður við áhugasaman
kaupanda að flugfélaginu
Bláfugli eru á lokametrunum.