Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Qupperneq 15
Vikublað 17.–19. desember 201316 Fréttir Erlent
Snjór, sorg og skotárás
Ljósmyndarar Reuters-fréttastofunnar koma víða við og fönguðu þessi viðfangsefni í liðinni viku.
Loftárás
á Sýrlandi
Íbúar við götu í
Aleppo eftir loftárás
stjórnarliða forset-
ans Bashar al-Assad
á sunnudag. Eins og
sést er eyðileggingin
gríðarleg og ötullega
var unnið að því
að bjarga fólki úr
rústunum.
Umferðaröngþveiti
Ökumenn bifreiðanna á meðfylgjandi mynd
gáfust upp og ákváðu að ganga heim á
laugardag. Myndin er tekin í Amman, en yfir
landið fór djúp vetrarlægð með tilheyrandi
snjókomu. Setti veðrið Mið-Austurlönd í tals-
vert uppnám, sérstaklega þó í Jórdaníu þar
sem flestar götur voru ófærar og þeim lokað.
Þá var ekki hægt að lenda flugvélum víða
og þurftu farþegar að hafast við í vélunum á
meðan að veðrinu slotaði.
Sorg og gleði Nelson
Mandela var borinn til grafar á sunnudag.
Alla síðustu viku hafa þó Suður-Afríku-
menn fagnað lífi og ævistarfi hans, meðal
annars með söng og dansi. Á meðfylgjandi
mynd má sjá áhorfendahóp dansa, syngja
og syrgja við minningarathöfnina á Cape
Town-íþróttavellinum þann 11. desember.
Tvífarar Margur gæti haldið að hér hefðu ljósmyndarar Reuters fest á mynd
norðurkóreska harðstjórann Kim Jong-un, en svo er þó ekki. Maðurinn á myndinni heiti
Howard og er 34 ára. Howard er kínverskur Ástrali og fékk greitt fyrir að taka þátt í mót-
mælaaðgerð í Hong Kong. Hér er mannréttindabrotum í Norður-Kóreu mótmælt harðlega og
þarlend stjórnvöld hvött til þess að gera bragarbót á aðstæðum íbúa Norður-Kóreu.
Verksmiðjuheimili Dimitar „Mitko“ Todorov hefur búið sér heimili í
yfirgefinni verksmiðju í Berlín. Ljósmyndari Reuters heimsótti Mitko í verksmiðjuna sem er
öll þakin veggjakroti, eða graffiti-listaverkum. Verksmiðjan hefur staðið auð og yfirgefin
um nokkuð langt skeið. Heimili hústökumannsins er snyrtilegt segir ljósmyndarinn, teppi er
á rúminu hans og fötunum hans hefur verið komið haganlega fyrir. Hann hefur gaseldavél,
notar kerti til að lýsa upp og hefur hengt upp þvottasnúrur. Þá notar hann einnig gas til að
hita svæðið sem hann heldur til á innan verksmiðjunar, eða kveikir eld. Þegar hann fer út
læsir hann á eftir sér með stórum hengilás.