Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Síða 27
Vikublað 17.–19. desember 201330 Sport Skin og skúrir 2007 2008 2009 2010 2011 2013 28. apríl Leikur sinn fyrsta leik fyrir Cardiff og verður yngsti leik- maður í sögu félagsins. Júní Milljóna punda tilboði í hann er hafnað. Desember Skrifar undir sinn fyrsta atvinnu- mannasamning hjá Cardiff. 26. apríl Skorar sitt fyrsta mark fyrir Cardiff í deildinni í 3–3 jafn- tefli gegn Burnley. 10. júní Arsenal staðfestir kaup á Ramsey fyrir fimm millj- ónir punda. 13. sept. Spilar sinn fyrsta leik fyrir Arsenal í deildinni og leggur upp mark fyrir Emmanuel Adebayor. 22. ágúst Skorar sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni í 4–1 sigri á Portsmouth. 11. nóv. Valinn besti ungi leikmað- urinn í Wales fyrir árið 2009. 27. feb. Fótbrotnar illa í leik gegn Stoke. Júní Skrifar undir lang- tíma- samn- ing við Arsenal. 1. maí Ramsey skorar sitt fyrsta mark eftir fótbrotið í sigri á Manchest- er United. Maí Valinn leikmaður mánaðarins hjá Arsenal. Ágúst Skorar tvö mörk í 5–0 sigri á Fener- bach í forkeppni Meistara- deildar- innar. Hefur ekki litið um öxl síðan. F ramganga Aarons Ramsey, miðjumanns Arsenal, á yfir- standandi tímabili í ensku úr- valsdeildinni og Meistaradeild Evrópu hefur varla farið fram- hjá neinum knattspyrnuáhugamanni. Þessi 22 ára miðjumaður frá Wales hefur farið hamförum með toppliði Arsenal í vetur og skorað 13 mörk í 23 leikjum. Til samanburðar skoraði Ramsey 5 mörk í 91 leik síðustu tvö tímabil þar á undan með Arsenal. En hvers vegna hefur Ramsey blómstrað allt í einu í liði Arsenal? DV leitar svara við þeirri spurningu og skoðar feril þessa magnaða leikmanns sem skyndilega er kominn í hóp bestu miðjumanna Evrópu. Góður langhlaupari Ramsey fæddist þann 26. desember árið 1990 í bænum Caerphilly í Wales. Á hans yngri árum var ekki margt sem benti til þess að hann ætti eftir að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Rúbbí átti hug hans allan en auk þess stundaði hann frjálsar íþróttir þar sem hann var sterkastur í langhlaupum. Síðar meir einbeitti hann sér alveg að knattspyrnu þar sem hann virtist vera á heimavelli. Á unglingsárum sínum samdi Ramsey við Cardiff þar sem hann bætti sig heilmikið. Þann 28. apríl 2007, þegar hann var 16 ára og 124 daga gamall, kom stóra kallið þegar hann var kallaður inn í að- allið Cardiff fyrir leik gegn Hull í ensku Championship-deildinni. Nokkrum mínútum fyrir leikslok kom hann inn á sem varamaður fyrir Paul Parry og varð þar með yngsti leikmaður sögunnar til að spila fyrir aðal lið Car- diff. Hann bætti þar met sem John Tos- hack átti. Þessi ungi leikmaður vakti athygli liða í ensku úrvalsdeildinni og sumarið 2007 hafnaði Cardiff millj- óna punda tilboði frá ónefndu félagi í London. Þá var tilboði frá Everton einnig hafnað. Studdi Manchester United Á sínu öðru tímabili hjá Cardiff fékk Aaron fleiri leiki til að láta ljós sitt skína. Þetta tímabil, 2007–2008, lék hann samtals 21 leik og skoraði tvö mörk en hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning í des- ember 2007. Þetta tímabil komst Cardiff óvænt í úrslit ensku bikar- keppninnar þar sem liðið tapaði fyrir Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Portsmouth, 1–0. Ramsey þótti standa sig ágætlega í leiknum og var rætt um áhuga frá Manchester United á leik- manninum. Ramsey ólst upp sem stuðningsmaður Man chester United og voru fyrirmyndir hans þeir Ryan Giggs og Roy Keane og því hefði ekki komið á óvart ef Ramsey hefði farið til United. Skömmu síðar barst fimm milljóna punda tilboð frá Arsenal í Ramsey sem var of gott til að hafna. Talið er að Terry Burton, aðstoðarstjóri Cardiff á þeim tíma og fyrrverandi leikmaður Arsenal, hafi átt sinn þátt í félagaskiptunum en hann mælti með Ramsey við Arsene Wenger, stjóra Arsenal. Wenger getur væntanlega þakkað Burton fyrir ráðlegginguna enda er Ramsey í dag í hópi verðmæt- ustu miðjumanna heims. Slæmt fótbrot á Britannia Þann 10. júní 2008 var staðfest að Arsenal hefði fest kaup á leikmann- inum. Ramsey, sem þá var á átj- ánda aldursári, átti margt eftir ólært eins og átti eftir að koma í ljós. Byrj- un hans hjá Arsenal var enginn dans á rósum en hann fékk þó nokk- ur tækifæri í liði Arsenal á sínu fyrsta tímabili. Í heildina lék hann 22 leiki, þar af níu í úrvalsdeildinni. Ramsey fékk fleiri tækifæri á öðru tímabili sínu hjá Arsenal. Tímabilið hlaut snöggan endi hjá honum þann 27. febrúar 2010 þegar hann tvífótbrotnaði eftir eftir- minnilega og ruddalega tæklingu frá Ryan Shawcross á Britannia-vellinum. Þrátt fyrir að meiðslin væru alvarleg sýndi Wenger honum ákveðna tryggð þegar honum var boðinn langtíma- samningur í júní þetta ár. Wenger var ekki reiðubúinn að gefast upp á hon- um. Í október 2010 snéri Ramsey aftur til æfinga eftir brotið. Þar sem hann skorti leikform var hann lánaður til Nottingham Forest í nóvember og svo aftur til Cardiff í janúar 2011 þar sem hann dvaldi í mánuð áður en hann snéri aftur til Arsenal. Ramsey virtist vera búinn að hrista meiðslin af sér og þann 1. maí skoraði hann fyrsta mark sitt á tímabilinu þegar Arsenal lagði Manchester United að velli, 1–0. Hann var einnig valinn maður leiksins eft- ir sigurinn. „Þetta var mjög sérstakt augnablik fyrir mig. Það var alveg þess virði að bíða eftir þessu,“ sagði Rams- ey eftir leikinn. Allt í allt lék Ramsey 19 leiki þetta tímabil en framan af var augljóst að fótbrotið sat í honum. Stuðningsmenn efuðust Tímabilin 2011–2012 og 2012–2013 var Ramsey að mestu leyti heill heilsu og lék samtals 91 leik þessi tvö tímabil. Ramsey hlaut talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína enda skoraði hann einungis 5 mörk þessi tvö tímabil. Stuðningsmenn Arsenal vissu að hann hefði hæfileika en margir efuðust um Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is að hann væri nógu góður fyrir lið eins og Arsenal. En undir lok síðasta tímabils fengu stuðningsmenn að sjá brot af því sem koma skyldi. Hann var valinn leikmað- ur mánaðarins hjá Arsenal í maí af stuðningsmönnum félagsins og biðu margir spenntir eftir nýju tímabili. Óhætt er að segja Ramsey hafi sprung- ið út í vetur og hefur hann verið einn allra besti miðjumaður ensku úrvals- deildarinnar í vetur. Í 23 leikjum á þessu tímabili hefur hann skorað jafn mörg mörk og hann hafði gert allan sinn feril frá árinu 2006, eða í 131 leik. Spilaði út úr stöðu Einhverjir spyrja sig eflaust hvers vegna Aaron Ramsey hefur sprung- ið út í vetur. Blaðamaðurinn Sam Tighe hjá Bleacher Report er virtur leikgreinandi og birti hann á dögun- um ítarlega umfjöllun um um- breytinguna sem hefur orðið hjá Aar- on Ramsey. Á síðasta tímabili lék Ramsey 36 leiki í deild fyrir Arsenal og skoraði hann eitt mark. Tighe bendir á að hann hafi að mestu leyti verið lát- inn spila hægra megin á miðjunni þar sem Ramsey virtist ekki líða vel. Hann var í raun látinn spila út úr stöðu til að koma öðrum leikmönn- um fyrir í hans bestu stöðu, á miðja miðjuna. Um leið og Ramsey var færður inn á miðja miðjuna undir lok síðasta tímabils, í svokallað box- to-box- hlutverk, blómstraði hann. Líður best á miðri miðjunni Arsenal tapaði fyrir Aston Villa á heimavelli, 3–1, í fyrsta leik tímabils- ins. Aaron Ramsey og Jack Wilshire skipuðu miðjuna og áttu þeir engin svör við öflugri miðju Villa-liðsins. En tilkoma baráttujaxlsins Mathieu Flamini hefur hjálpað Ramsey og gef- ið honum örlítið frjálsara hlutverk í Arsenal-liðinu. Tíð hlaup hans inn í vítateig andstæðinganna og útsjónar- semi hans við að finna laus svæði hafa skilað honum mörgum mörkum í vetur. Sjálfstraust er þó alltaf lykill- inn að árangri og um leið og Ramsey fékk trú á eigin hæfileikum fór hann að spila vel. Sjálfur er Ramsey á þeirri skoðun að meiri festa og betur skil- greindara hlutverk hans í Arsenal- liðinu hafi verið lykillinn. „Í fyrra var ég um allan völl. Ég er miðjumaður og mér líður best á miðri miðjunni. Ég legg hart að mér og gefst aldrei upp. Núna er ég að spila í minni stöðu og hæfileikar mínir fá að njóta sín,“ sagði hann við Sky Sports á dögunum. Forvitnilegt verður að fylgjast með framvindu mála hjá þessum 22 ára Walesmanni. Eitt er víst og það er að framtíð hans liggur hjá Arsenal ef Arsene Wenger fær einhverju ráðið. „Við keyptum hann á fimm milljónir punda og við myndum ekki selja hann á 50 milljónir punda,“ sagði Wenger. n Fótbrotið Það var skelfileg sjón þegar Ramsey fótbrotnaði eftir tæklingu frá Ryan Shawcross. Bestur á einni nóttu n Ótrúlegur uppgangur Aarons Ramsey n Var efnilegur langhlaupari og studdi United Kunnugleg sjón Aaron Ramsey hefur fagnað ófáum mörk- unum á þessari leiktíð. Hann er þegar búinn að skora þrettán mörk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.