Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2013, Side 28
Vikublað 17.–19. desember 2013 Sport 31 VÖTN & VEIÐI Stangveiði á Íslandi 2013 Veiðisögur • Veiðisvæði • Veiðifréttir • Veiðimenn V Ö TN & V EIÐ I Sta n g ve ið i á Ísla n d i 2013 Fæst á flestum bóksölustöðum JólagJöf veiðimannsins Veiðisögur • Veiðisvæði • Veiðifréttir • Veiðimenn miklum forföllum n Óvíst með þátttöku tveggja lykilmanna n Aron bjartsýnn á gott gengi á EM Á standið var ekki gott í október en nú er að lifna svolítið yfir þessu,“ segir Aron Krist- jánsson landsliðsþjálfari í handknattleik í samtali við DV. EM í handbolta fer fram í Dan- mörku í janúar. Þar leika Íslendingar í riðli með Noregi, Ungverjalandi og heimsmeisturum Spánverja – þrem- ur mjög sterkum and- stæðingum. Eins og stundum áður er stað- an sú að óvíst er með þátttöku nokkurra lykil manna í íslenska liðinu. Spilar Alexander? Aron segir þó að þeir sem hafi verið meidd- ir séu smám saman að komast á ról. Stærsta spurningarmerkið er líklega hvort Alexander Petersson verði með Íslandi á mótinu. Hann hefur lengi glímt við meiðsli í öxl en spilar um þessar mundir mikið með félagi sínu, Rhein-Neckar Löwen. Aron segir að í næstu viku komi í ljós hvort hann geti leikið – en álag á leik- menn í stórmótum er allt annað og miklu meira en í deildar- keppnum, þar sem menn spila einn leik á viku. „Ég vona bara að menn komi í topp- standi til æfinga,“ segir Aron. Hann segir að menn á borð við Vigni Svavarsson og Aron Pálmarsson hafi glímt við meiðsli en séu allir að koma til, sérstaklega Aron sem hafi leikið stórt hlutverk með Kiel að undan- förnu. Vignir hafi verið í vandræðum og lítið spilað. Aron segir áhyggjuefni að nokkrir leikmenn hafi ekki leikið stór hlutverk í sínum félagsliðum að undanförnu. Ólafur Gústafsson hafi lítið leikið með stórliði Flensburg – sem séu vonbrigði – og sömu sögu megi til dæmis segja um Stefán Rafn Sigurmannsson, hjá Rhein-Neckar Löwen. Aðrir séu í stærri hlutverkum og spili mikið, svo sem Aron Pálmars- son og Guðjón Valur Sigurðsson. Þá sé Snorri Steinn Guðjónsson í góðu leikformi á meðan Ásgeir Örn Hall- grímsson og Róbert Gunnarsson hafi ekki spilað nógu mikið í París. Skyttur snúa aftur En jákvæð teikn eru líka á lofti. Leikmenn sem ekki hafi getað ver- ið með á síðasta stórmóti séu núna heilir. Þar megi nefna Arnór Atlason, Rúnar Kára- son og Ólaf Bjarka Ragnarsson. Þeir verði allir með. Ljóst má vera að endurkoma Arnórs Atla- sonar styrki liðið feiknar- lega. Aron segir hins vegar að nokkur óvissa sé uppi um varnarleikinn. Hugsan leg fjarvera Vignis geti haft í för með sér að óreyndari leikmaður muni þurfa að leika stórt hlutverk á móti Sverre Jakobs- syni í hjarta varnar- innar, til dæmis Bjarki Már Elís son eða Ólafur Gústafsson. Það sé auðvitað ekki ákjósanleg staða, þó þeir séu góðir leikmenn. Reynsla geti skipt sköpum. Hann vonast þó til að Vignir muni hrista af sér meiðslin. Knappur tími Aron fær lítinn tíma til að stilla saman strengi liðsins fyrir mótið í Danmörku. Hópurinn kem- ur saman milli jóla og nýárs. Fyrsti leikurinn verður gegn Noregi 12. jan- úar. Á þeim tíma heldur Aron tíu æf- ingar og liðið spil- ar þrjá æfingar leiki; á sterku fjögurra liða móti í Þýskalandi. Þar mætir Ísland heima- mönnum, Rússum og Austurríkismönn- um. „Það er gott að fá leikina í Þýskalandi. Við fáum nokkra daga heima eftir leik- ina til að vinna úr þeim áður en við förum til Danmerkur.“ Ásgeir reynslunni ríkari Ásgeir Örn Hallgrímsson var eina örvhenta skyttan í íslenska hópnum á síðasta stórmóti. Eftir að Ólafur Stefánsson lagði skóna á hilluna hefur hann verið í stóru hlutverki. Hann átti erfitt uppdráttar á mótinu og lék ekki nógu vel á köflum. Aron segir að nú sé jákvætt að Rúnar sé heill heilsu, auk þess sem hann von- ist til að Alexander verði með. Ásgeir Örn verði því ekki einn um stöðuna eins og síðast. „Ég held að mótið í jan- úar hafi kennt Ásgeiri mikið, þar sem hann var í mjög stóru hlutverki. Þetta gaf honum reynslu og hann er sterk- ari fyrir vikið. Rúnar er óreyndari leikmaður en ég er mjög ánægður með að hann skyldi færa sig um set í Þýskalandi, frá Löwen til Hannover. Nú fær hann meira að spila; hann er heill og er í ágætu formi.“ Aron segir að forföll síðustu missera hafi eflt og bætt þá leikmenn sem hlaupið hafi í skörðin. Það sé jákvætt. Aron segir aðspurður að nokkrir leikmenn hafi tekið skref upp á við, á árinu sem nú er að líða. Ólafur Gúst- afsson, Rúnar og Stefán Rafn hafi allir verið að æfa og spila eitthvað með mjög sterkum félags liðum og þeir séu á réttri leið. Þá sé virkilega ánægjulegt hvað Aron leiki stórt hlutverk með Kiel, aðeins 23 ára gamall. Hann sé frábær leikmaður með leikskilning í hæsta gæðaflokki. „Það gleymist stundum en hann er virkilega góður varnarmaður líka. Aron er heilsteypt- ur leikmaður sem verður bara betri og betri. Hann á framtíðina fyrir sér.“ Ógnarsterkir andstæðingar Aron viðurkennir að riðillinn verði afar erfiður. Um sé að ræða fjórar sterkar þjóðir. Hann segir að það sé ekkert víst að fyrsti leikurinn, við Nor- eg, verði lykilleikur fyrir gengi Íslands í keppninni. Í Serbíu, fyrr á þessu ári, hafi liðin unnið hvort annað á víxl. Íslendingar hafa undanfarin ár staðið Norðmönnum framar á hand- knattleiksvellinum. En hvernig eru Ungverjar í dag, liðið sem sló Ís- land út á ögurstundu á síðustu Ólympíuleikum, með þungbærum hætti? „Ungverjar eru eiginlega með sama lið. Markvörðurinn hjá þeim er hættur en þeir eru með góða menn þar samt. Ungverjar eru með mjög sterkt lið – en samt lið sem ég tel að við getum unnið, ekki spurning. Það er ljóst að við stefnum á það.“ En hvernig metur landsliðsþjálf- arinn möguleika Íslands? „Við eigum fína möguleika á að komast upp úr þessum riðli. En við megum ekki við of miklum forföllum. Ef allir eru með þá erum við mjög sterkir og með þokka- lega breidd. Það er stóra málið.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Riðlarnir á EM A-riðill n Danmörk n Tékkland n Makedónía n Austurríki B-riðill n Spánn n Ísland n Ungverjaland n Noregur C-riðill n Serbía n Frakkland n Pólland n Rússland D-riðill n Króatía n Svíþjóð n Hvíta-Rússland n Svartfjallaland Árangur á EM 2001 16-liða úrslit 2003 7. sæti 2005 Riðlakeppni 2007 8-liða úrslit 2009 Ekki með 2011 6. sæti 2013 16-liða úrslit „Við eigum fína möguleika á að komast upp úr þessum riðli. Megum ekki við Stóra stundin nálgast Ísland mætir Noregi í fyrsta leik á EM í Danmörku. Riðill Íslands er afar erfiður. MynD ReuteRS Snúinn aftur Endurkoma Arnórs styrkir liðið til muna. Jaxl Óvíst er hvort Alexander Petersson geti tek ið þátt á EM í janúar. Í eldlínunni Aron Kristjánsson hefur knappan tíma til að undir- búa liðið. MynD eyþÓR ÁRnASon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.