Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 27.–29. maí 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Geirfuglsegg að gjöf
Veiðifélag Bjarnareyjar í Vestmannaeyjum færir Náttúruminjasafni gjöf
V
eiðifélag Bjarnareyjar í Vest-
mannaeyjum færði Náttúru-
minjasafni eftirlíkingu af geir-
fuglseggi að gjöf í síðustu viku.
Eggið er nákvæm eftirlíking af eina
raunverulega geirfuglsegginu sem til
er hér á landi og er varðveitt á Nátt-
úrufræðistofnun. Eggið verður nýtt við
sýningarhald á safninu. Frá þessu er
sagt á vef safnsins, nmsi.is.
Það var breski fuglaáhugamað-
urinn Stewart Smith sem fékk hug-
myndina að gjöfinni ásamt félögum
í veiðifélagi Bjarnareyjar en Stewart
hefur komið til Vestmannaeyja
undanfarin 15 ár og dvalið í Bjarnar-
ey á vorin. Stewart hafði samband
við samlanda sinn og listamann,
Tony Ladd, sem hefur sérhæft sig
í endurgerð fuglseggja. Þorvaldur
Björnsson, hamskeri og starfsmaður
Náttúrufræðistofnunar, var veiðifé-
laginu einnig innan handar við verk-
ið sem og Erling Ólafsson, líffræðing-
ur á Náttúrufræðistofnun.
Geirfuglarnir voru eftirsótt bráð
á öldum áður vegna stærðar sinn-
ar en þeir voru um 70 sentímetrar
að hæð og nærri 5 kíló. Ekki hjálpaði
það geirfuglinum í þeirri baráttu að
vera ófleygur og hægfara á landi. Síð-
asta geirfuglsparið er talið hafa verið
drepið við Eldey 3. júní 1844.
Geirfuglinn sem er í vörslu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands var drep-
inn árið 1821 við Hólmsberg á
Miðnesi að því fram kemur í frétt á
vef nmsi.is. Danski greifinn Raben
er sagður hafa veitt honum bana-
högg með bátsár en fuglinn var í eigu
Raben-fjölskyldunnar þar sem Finn-
ur Guðmundsson keypti hann á upp-
boði Sothesby's í London fyrir 9.300
pund árið 1971. Sú upphæð var á
þeim tíma andvirði þriggja íbúða. n
asgeir@dv.is
Nákvæm eftirlíking Gísli I. Þorsteinsson
Bjarnareyingur afhendir Hilmari J. Malmquist,
forstöðumanni Náttúruminjasafnsins,
geirfuglseggið. MyNd NáttúruMiNjasafN ÍslaNds
Hraðbraut fær ekki
peninga frá ríkinu
n Skuldajöfnun á milli Hraðbrautar og ráðuneytisins n Verða að veita leyfi
Þ
að eru engin fjárframlög.
Þetta er bara leyfi sem við
verðum að veita samkvæmt
lögum,“ segir Þorgeir Ólafs-
son, upplýsingafulltrúi
menntamálaráðuneytisins, aðspurð-
ur um að til standi að opna Mennta-
skólann Hraðbraut á ný í haust eftir
tveggja ára hlé. Skólinn hætti starf-
semi eftir að menntamálaráðuneytið
ákvað að stöðva fjárveitingar til hans.
Ólafur Hauksson sendi frá sér til-
kynningu í síðustu viku þar sem hann
fjallaði um leyfisveitinguna. Orð-
rétt sagði hann þar: „Ráðherra hefur
staðfest að umsókn skólans uppfylli
skilyrði og jafnframt veitt skólanum
skriflega viðurkenningu til kennslu til
stúdentsprófs á náttúruvísindabraut
og hugvísindabraut.“
arðgreiðslur og lán
Ástæðan fyrir því að skólanum var
gert að hætta var svört skýrsla Ríkis-
endurskoðunar um starfsemi skól-
ans. DV hafði þá greint frá því að
Ólafur Johnson hefði greitt sér tug-
milljóna króna arð út úr skólanum,
að hann hefði fengið ofgreiddar á
annað hundrað milljónir króna frá ís-
lenska ríkinu og að 50 milljóna króna
lán hefði verið veitt út úr rekstrinum.
Þetta þýðir að Hraðbraut verður
nú alfarið fjármagnaður með skóla-
gjöldum og engu opinberu fé líkt og
hann var áður. Komið hefur fram op-
inberlega að stjórnendur skólans ætli
sér að innheimta 890 þúsund krónur
í skólagjöld á hverju ári eftir að hann
verður opnaður á ný. Ástæðan fyr-
ir þessu er auðvitað sú að Hraðbraut
fær enga fjármuni frá ríkinu.
synjað um þjónustusamning
Í mars síðastliðnum var Hraðbraut
synjað um nýjan þjónustusamning
við menntamálaráðuneytið, líkt og
DV greindi frá. Í bréfinu frá mennta-
málaráðuneytinu til stjórnenda
Hraðbrautar sagði orðrétt: „Áætlun
vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2015
veitir ekki svigrúm til fjárveitinga
vegna nýrra þjónustusamninga við
einkaskóla á framhaldsskólastigi.
Með vísan til þess að ráðuneytið ráð-
gerir ekki að veita auknu fé til nýrra
þjónustusamninga við framhalds-
skóla á árinu 2015 er beiðni yðar um
viðurkenningu og þjónustusamning
hafnað.“
Leyfið sem skólinn fær nú er veitt
í kjölfar þessarar synjunar og í raun
afleiðing af henni. Leyfið fyrir starf-
semi skólans er einungis viðurkenn-
ing á því að skólinn verði starfræktur
sem einkarekinn skóli. Með leyf-
inu fylgir það skilyrði að Hraðbraut
lagi starfsemi sína að aðalnámskrá.
„Leyfið er veitt með fyrirvara að þau
lagi námskrá sína endanlega að aðal-
námskránni,“ segir Þorgeir.
skuldajafnað á móti nemendum
Ein af þeim spurningum sem hefur
komið varðandi Hraðbraut er hvort
Ólafur hafi greitt til baka þá fjármuni
sem voru ofgreiddir frá íslenska rík-
inu. Samkvæmt svari frá Þorgeiri var
uppgjörið á þessum fjármunum með
þeim hætti að Hraðbraut og mennta-
málaráðuneytið skuldajöfnuðu kröf-
um sem þessir aðilar áttu hvor á
annan. Menntamálaráðuneytið átti
kröfu á Hraðbraut vegna þess að
skólinn hafði fengið of mikið greitt
frá íslenska ríkinu og svo átti Hrað-
braut kröfu á menntamálaráðuneytið
vegna nýrra nemenda sem tekn-
ir höfðu verið inn í skólann eftir að
Hraðbrautarmálið kom upp án þess
að skólinn hefði fengið greitt fyrir þá
sérstaklega. „Þessu var bara skulda-
jafnað,“ segir Þorgeir. n
ingi freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Þessu var bara
skuldajafnað
fær leyfi frá ráðuneytinu
Ólafur Johnson, eigandi og skólastjóri
Menntaskólans Hraðbrautar, hefur
fengið leyfi frá menntamálaráðuneytinu
fyrir því að opna skólann á ný.
Fótbrotnaði í
hjólreiðaslysi
Karlmaður á fertugsaldri fót-
brotnaði þegar reiðhjól sem
hann var á og bifreið skullu
saman. Í dagbók lögreglu kem-
ur fram að slysið hafi orðið rétt
eftir klukkan 21 á sunnudags-
kvöld á gatnamótum Reykja-
víkurvegar og Flatahrauns.
Lögreglan sinnti fleiri verkefn-
um á sunnudagskvöld og að-
faranótt mánudags. Rétt eftir
klukkan 22 var akstur bifreiðar
stöðvaður á Hjallabraut. Tveir
karlar voru í bílnum í annarlegu
ástandi, en í bifreiðinni fund-
ust fíkniefni. Ökumaðurinn var
færður til sýnatöku en farþeg-
inn, sem lét ófriðlega, var látinn
gista í fangageymslu lögreglu.
Lokað vegna
gruns um
kynferðisbrot
Starfsemi sumardvalarheimilis fyr-
ir fatlaða sem nú er til rannsóknar
vegna gruns um gróf kynferðisbrot
gegn tveimur fötluðum konum
sem þar dvöldu hefur verið hætt.
Þetta kemur fram í bréfi frá Grími
Hergeirssyni, lögmanni rekstrar-
aðila heimilisins. Greint var frá
því á sunnudag að bæjaryfirvöld
í Árborg stæðu ráðþrota frammi
fyrir því að ekki væri hægt að loka
heimilinu þrátt fyrir grun um kyn-
ferðislegt ofbeldi. Sveitarstjórnar-
yfirvöld geta ekki lokað slíkum
heimilum þar sem þau eru ekki
starfsleyfisskyld. Lögreglan á Sel-
fossi hefur haft til rannsóknar kyn-
ferðisbrot gegn konum sem eru á
fertugs- og fimmtugsaldri. Þær eru
báðar þroskaskertar og önnur með
aðra fötlun að auki og hafa dvalið á
heimilinu yfir sumartímann. Mað-
urinn, sem er tengdur rekstraraðila
heimilisins fjölskylduböndum,
neitar sök.