Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Blaðsíða 12
Vikublað 27.–29. maí 201412 Fréttir „er skrifaður inn í eitthvert leikrit“ n Hilmar ætlaði að hjálpa fjölskylduvini n Safnaði liði til að útkljá málið A ðspurður segist Hilm- ar Leifsson tvisvar sinn- um hafa lent í útistöðum við sama manninn. Í fyrra skiptið var um að ræða líkamsárás sem Hilmar varð fyrir á kaffihúsinu Mílanó í Reykjavík. Í seinna skiptið hitti hann manninn á N1 við Ártúnshöfða. „Þar mætti hann með hnúajárn,“ segir Hilmar sem segir að ákveðið hafi verið að hittast á Geirsnefi í kjölfarið. „Hann vildi hitta mig á Geirsnefi, þá söfnuð- um við fyrst liði. En þegar við komum þangað þá var fullt af fólki, hunda- eigendum og bílum. Þá bauð ég hon- um að koma frekar upp í brekku, þarna á Rjúpnahæð, þá værum við ekki að trufla aðra,“ segir Hilmar um mynd af sér og fleiri mönnum. Hilm- ar segist hafa viljað flytja sig um set þar sem þeir gætu útkljáð þetta í friði fyrir öðrum. „Það er ekkert hægt að bjóða fólki upp á annað,“ segir hann. „Hann vildi stríð – hann bauð í stríð þarna á Geirsnefi. En það gengur ekki að láta svoleiðis innan um fólk.“ „Karlmennska að leysa málið“ „Þetta er hans taktík. Hann er frægur fyrir að kýla menn og hlaupa í burtu. Hann er algjör „sucker puncher“,“ segir Hilmar um manninn sem réðst á hann á Mílanó og mætti honum á N1. „Það er ekki ég sem bauð upp í þennan dans – alls ekki. Það er enginn að fara að kýla mig í hnakk- ann og hlaupa í burtu og komast upp með það,“ segir Hilmar. „Þetta var stútfullur staður [innsk. blm. Mílanó] af fólki og börnum,“ segir hann en sjálfur var Hilmar þar með konu sinni og barni. „Ég er skrifaður inn í eitthvert leikrit. Þessi aðgerð er ekki mín,“ segir hann en segist hafa stóran hóp af mönnum í kringum sig sem séu reiðubúnir að leggja honum lið. „Þessi maður á sér svo marga haturs- menn,“ segir hann til útskýringar. „Ég læt ekki kýla mig eitthvað og hann kemst bara upp með það,“ segir hann. „Það er bara karlmennska að leysa málið. Gera út um þetta.“ „Það er ekki ég sem er að biðja um þetta. Alls ekki. Ég geri það sem karl- maður þarf að gera, alveg þar til það er búið. En það er ekki óskastaða fyr- ir fjölskyldumann að standa í þessu.“ „Þetta var engin innheimta“ Hilmar segist hafa farið á bílasöluna til þess að ræða við mennina fyr- ir fjölskylduvin sem hann hefur þekkt frá barnæsku. „Þetta er góð- ur og vammlaus maður. Hann bað mig ekkert að nefna þetta neitt. Bílasalinn startar þessu í rauninni og maðurinn sem vinnur hjá hon- um er lygaskunkur. Hann hefur svik- ið alla. Það er slóð eftir hann. Ég fór þarna því ég taldi bílasalann vera vin minn. Ég bað þá um að gera eitthvað fyrir þennan fjölskylduvin. „Ég bað hann að gera eitthvað í þessu,“ seg- ir hann. Þá neitar Hilmar því að Dav- íð Smári hafi slegið manninn. „Þetta var engin innheimta. Það er málið. Það var enginn að rukka einn eða neinn. Ég viðurkenni það að ég fór og talaði við hann. Ég taldi mig vera að ræða við vin og kunningja. Ég hélt að ég gæti rætt þetta. Sannarlega voru bílaviðskipti þarna sem ann- ar maður þarf að borga fyrir,“ segir hann. „Þá sagði hann bara nei, hann myndi ekki borga neitt.“ Spurður um það hvort hann myndi borga það „með löppunum“ á manninum seg- ir Hilmar: „Hann gerir ekkert sitjandi á rassgatinu. Þú drullast á lappir og gerir eitthvað. Menn þurfa að borga skuldirnar sínar – það þurfa allir að gera það,“ segir hann. Aðspurður um hvað gerist ef skuldin verði ekki greidd segir hann: „Það er ekki mitt mál og ekki mitt að fylgja því eftir. Ég bað hann bara að leysa þetta. Þeir eru svo kærandi út um allt í staðinn fyrir að laga þetta, en mér skilst að það sé eitthvað verið að laga þetta.“ Sannleikurinn „Sannleikurinn og sagan um Hilm- ar Leifsson er tvennt ólíkt. Sagan um Hilmar Leifsson, ég er hræddur við hana sjálfur. Ég hef alið upp börnin „Já, það þótti sniðugt á þeim tíma sem við vorum í Fáfni,“ hafði MBL.is eftir Hilmari Þór Leifssyni úr Héraðsdómi Reykjavíkur 25. nóvember á síðasta ári, þar sem hann var spurður hvort hann hefði verið með merki Vítisengla á hjóli sínu. Hilmar Þór stefndi ritstjórum DV, Reyni Traustasyni og Jóni Trausta Reynissyni, fyrir dóm vegna umfjöllunar í tekjublaði DV í ágúst árið 2012. Var Hilmar ósáttur við að vera bendlaður við Vítisengla vegna veru sinnar í mótorhjólasamtökunum Fáfni og stefndi ritstjórunum fyrir meiðyrði. Hilmar var í mótorhjólasamtökunum Fáfni sem síðar fengu inngöngu í Vítisengla. „Ég hætti þegar þeir fóru í þetta inngönguferli. Það var í kringum 2007,“ hafði MBL.is eftir Hilmari í réttarhöldunum og sagðist hann hafa prófað að ganga í Fáfni því hann hafði gaman af akstri mótorhjóla. „Ég hafði hins vegar ekki áhuga á frekari samskiptum og alls ekki að tengjast Hells Angels.“ Hilmar fór fram á tvær milljónir í miska- bætur vegna umfjöllunar í tekjublaði DV og hins vegar vegna sömu umfjöllunar á DV.is. Ritstjórar DV voru sýknaðir af kröfum hans en Hilmar áfrýjaði málinu til Hæstaréttar. Honum var gert að leggja fram málskostnaðartryggingu áður en áfrýjun var samþykkt. Afneitaði Vítisenglum Mótorhjól Hilmars var með merki Hells Angels mín og þurft að útskýra sögurn- ar um mig sem þau heyra um pabba sinn. Ég er bara að sinna mínu. Þetta er ekkert klíkustríð, þetta er bara einn þöngulhaus ásamt vitleys- ingum,“ segir Hilmar. Þegar blaðamaður spyr hvort fólk eigi að vera hrætt við hann segir hann: „Nei, alls ekki. En þegar fólk lemur mig innan um fjölskyldur, þar sem ég þarf að sinna barni og konu alblóðugur, það er ekki í lagi. Hann kom þang- að til þess að meiða mig. Ásetningurinn var ljótur,“ segir hann. n Boðað til slagsmála Tveir hópar ætluðu að hittast og leysa málin sín á milli í Breiðholti. Þessa mynd sendu Hilmar og félagar á meðlimi hins hópsins. Þegar hinn hópurinn mætti á svæðið voru þeir hvergi sýnilegir fyrr en sérsveitin kom líka á svæðið en þá komu þeir úr felum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.