Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Blaðsíða 22
Vikublað 27.–29. maí 201422 Umræða
Umsjón: Henry Þór BaldurssonHail Mary Pass
við fréttir DV í vikunni
Vinsæl
ummæli
P
úað var á fulltrúa Rússlands
í Eurovisionkeppninni. Það
máttu hinar 17 ára tvíbura-
systur þola. Að auki fannst
mér athugasemdir íslenska
kynnisins hæðnar og ósmekklegar.
Væntanlega voru þær illa ígrund-
aðar. Komið hefur í ljós að þær tóku
púið mjög nærri sér enda væntanlega
óharnaðar þótt þær væru fulltrúar
stórveldisins Rússlands.
Væntanlega hefur umrætt pú
tengst bæði átökunum í Úkraínu og
rússnesku lögunum sem vestræn-
ir fjölmiðlar hafa kallað „Anti-Gay“.
Hér ætla ég einungis að fjalla um
það síðarnefnda og hvernig fjölmiðl-
ar hafa mótað umræðuna og viðhorf
almennings. Ekki bara almennings,
heldur ráðamanna, listamanna og
fleiri.
„Anti-Gay“ umræðan hefst
í N.Y. Times
Mikið var fjallað um umrædd lög
í kringum vetrarólympíuleikana í
Sochi. Þau komu til framkvæmda
með undirskrift Pútíns 29. júní 2013.
Það sem markaði sporin í umfjöllun-
inni um lögin var grein í N.Y. Times
þrem vikum síðar, 21. júlí. Höfund-
urinn var Harvey Fierstein, þekkt-
ur sérfræðingur um málefni Rúss-
lands. Greinin var tilfinningaþrungin
og ónákvæm, uppfull af öfgakennd-
um ályktunum. Hún var greinileg-
ur útúrsnúningur á lögunum. Þetta
kemur fram í skýrslu bandaríska
rannsóknarblaðamannsins, Brian
M. Heiss. Hann er sjálfur hommi og
mikill baráttumaður fyrir réttindum
samkyn-, tvíkynhneigðra og kynskipt-
inga (LGBT). Hann sökkti sér niður í
rannsóknir á lögunum, fyrst og fremst
til að sanna að myndin sem fjölmiðl-
ar drógu upp af þeim væri rétt. Annað
kom á daginn og honum til furðu var
hvergi hægt að nálgast enska þýðingu
laganna. Hann fékk því sérfræðing,
með fullkomið vald á rússnesku, til að
þýða lögin fyrir sig. Skýrslan nefnist;
„Russian Federation Anti-Gay Laws:
An Analysis & Deconstruction“. Heiss
tekur það skýrt fram að hann hafi
ekki þegið neina greiðslu fyrir skýrsl-
una svo trúverðugleiki hennar haldist
óskertur.
Samanburður í Bandaríkjunum
og í Rússlandi
Í lögum þessum er hvergi minnst
á homma né lesbíur. Hins vegar er
nokkrum sinnum minnst á börn,
eða sex sinnum, lög nr. 135-FZ: Um
áróður óhefðbundinnar kynhegðun-
ar gagnvart börnum. Skýrslan leiðir
margt athyglisvert í ljós. Ég vitna hér
í nokkur atriði úr skýrslunni þar sem
höfundur notar upplýsingar frá hinni
virtu og óháðu greiningar- og upplýs-
ingamiðstöð, SOVA Center í Moskvu:
1) Hatursglæpir gegn samkyn-
hneigðum fyrir árið 2012 voru 12 í
Rússlandi en 1.376 í Bandaríkjunum.
2) Árið 2003 fengu samkynhneigð-
ir að gegna herþjónustu í Rússlandi
en árið 2011 í Bandaríkjunum.
3) Í Rússlandi er brottrekstur úr
starfi bannaður vegna kynhneigðar
en ekki í Bandaríkjunum.
4) Síðan árið 1993 hefur samkyn-
hneigð verið lögvernduð í Rússlandi
meðan hún er ólögleg og glæpsamleg
í 12 ríkjum Bandaríkjanna.
Fleira er hægt að tína til eins og
réttinn til að gefa blóð. Þann rétt hafa
bæði sam- og tvíkynhneigðir karl-
ar síðan 2008 í Rússlandi en ekki í
Bandaríkjunum.
Barnavernd gegn skemmtana-
iðnaðinum en ekki gegn samkyn-
hneigðum
En um hvað snúast þá lögin? Jú, um
barnavernd, gegn upplýsingum eða
áróðri sem skaðað getur heilsu og
þroska barna. Fjölmiðlar hafa full-
komlega flaskað á aðalatriði laganna
sem er að vernda börn gegn kynlífsá-
róðri en hefur ekkert með kynhegðun
fullorðinna að gera. Hvergi er minnst
á það í lögunum, að samkynhneigð
eða þeir sem ásakaðir eru um hana,
megi handtaka í Rússlandi.
Hvers vegna hefur ríkisstjórn
Bandaríkjanna og fjölmiðlar stuðl-
að að villandi upplýsingum um bann
Rússlands gegn áróðri óhefðbund-
innar kynhegðunar gagnvart börn-
um? Svarið gæti legið í því gegn hverj-
um lögin beinast.
Til varnar skemmtanaiðnaðinum
– Viacom
Lögunum er fyrst og fremst beint
gegn alþjóðlegum fjölmiðlasam-
steypum, gegn lágu siðgæði banda-
ríska skemmtanaiðnaðarins eins og
Viacom, eins stærsta kvikmynda-
og dreifingarétthafa heimsins. Þessi
réttur nær m.a. til MTV Films, Nickel-
edeon Movies, Paramount Ani-
mation, Parmount Pictures og Vi-
acom International. Möguleg brot
gegn lögunum gæti þýtt allt að einni
milljón rúblna sekt (30.572$) fyr-
ir hvert brot. Enn fremur þýddi brot
bann við allri starfsemi í Rússlandi í
90 daga. Slíkt yrði tilfinnanlegt, sér-
staklega þar sem rússneski markað-
urinn hefur vaxið mest allra.
Færu bandarísk stjórnvöld ásamt
fjölmiðlum, sem allir eru undir al-
þjóðlegum samsteypum, í áróður-
sstríð gegn rússnesku lögunum, til
að verja þessi fyrirtæki gegn skaða?
Heiss svarar þessari spurningu ját-
andi. Níutíu daga starfsbann þýddi að
áætlaðar tekjur Viacom lækkuðu er
leiddi síðan til lægra hlutabréfaverðs
og neikvæðra áhrifa lykilþátta banda-
rísks efnahags. n
Eru réttindi samkynhneigðra betur
tryggð í Bandaríkjunum en í Rússlandi?
Ari Tryggvason
starfar á geðdeild LSH og strætó bs.
Kjallari
Má ekkert lengur?
S
tundum er lífið bara of flók-
ið fyrir Svarthöfða. Íslendingar
eru meistarar í að flækja hlutina
og ekki skánaði það með til-
komu internetsins, þar sem allir þurfa
að tjá sig um allt, alltaf.
Er Svarthöfði var fremstur með-
al jafningja í heimsveldinu var ekkert
internet. Ótrúlegt en satt þá voru Face-
book, Twitter og öll þessi kommenta-
kerfi ekki til í heimsveldinu. Helsti
samskiptamátinn voru heilmynda-
flutningar sem leyfðu mönnum að
spjalla saman líkt og í raunheimi, þótt
þeir væru fleiri ljósár í burtu.
Það voru engir snjallsímar, ekk-
ert Snapchat og svo sannarlega ekk-
ert Youtube. Lífið var því einfaldara.
Svarthöfði vorkennir valdamönn-
um nútímans, þar sem hættan á
PR-slysi er handan við hvert horn.
Svarthöfða raunar hryllir við að
hugsa til þess hvernig líf hans væri ef
hann væri við völd.
Svarthöfði átti það til dæmis til
að kyrkja menn með notkun Mátt-
arins í gegnum símtöl og stund-
um í persónu. Þannig drap hann að
minnsta kosti tíu starfsmenn í mötu-
neyti Helstirnisins, af ýmsum sökum
sem þættu léttvægar í dag. Ef ein-
hver hefði sett status um það á Face-
book, hvernig Svarthöfði kyrkti Jón-
atan matsvein fyrir að hella upp á
robusta-kaffi í morgunsárið, þá hefði
líklegast verið illt í efni.
Hvert áfallið á fætur öðru hefur
dunið á Framsóknarflokknum. PR-
slysin hrannast upp og það er engu
öðru um að kenna en stefnuleysi og
kaos í tæknivæðingunni. Svarthöfði
lét byggja risastóra leysa sem gjör-
eyðilögðu plánetur. Ekki einhvern
fjandans iPhone. Ef framsóknar-
menn missa eitthvað út úr sér núna
þá er það strax komið út um allt,
Facebook, Twitter og meira að segja
á Bing.com.
Ónefndur oddviti Framsóknar
má ekki ýja að því að það eigi að út-
rýma múslímum, þá verður allt brjál-
að. Annar framsóknarmaður má ekki
láta alífugla berjast til bana sér til
skemmtunar. Þá verður allt brjálað.
Hugur Svarthöfða er hjá þeim.
Ef fólk brjálast út af smá hanaati og
smá moskuhatri þá er varla að spyrja
hver viðbrögðin yrðu ef það hefði til
dæmis ratað á Youtube er Svarthöfði
sprengdi plánetuna Alduin í tætlur. n
Svarthöfði
„Andstæðingar
Framsóknar eiga
bara að taka
því rólega og leyfa þeim
að tala óáreittum, oddvita
Framsóknar í Reykjavík og
Vigdísi Hauksdóttur. Á meðan
heldur fylgi Framsóknar
áfram að hrynja.“
Eiður Svanberg Guðnason,
fyrrverandi sendiherra, tjáir sig
um netdeilur Egils Helgasonar
og Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur,
oddvita Framsóknar og flugvallarvina í
Reykjavík.
11
„Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir,
oddviti
Framsóknarflokksins í
Reykjavík, hefur hárrétt fyrir
sér. Bygging mosku í hjarta
Reykjavíkur er svo brennandi
heitt mál að atkvæðagreiðsla
á meðal borgarbúa er eðlileg
og sjálfsögð krafa.“
Eiríkur Stefánsson er sammála
Sveinbjörgu Birnu, oddvita
Framsóknar og flugvallarvina,
að borgarbúar kjósi um það hvort úthluta
ætti lóð undir mosku í Reykjavík.
14
„Þá er ekkert
annað í stöðunni
en að kæra
manninn fyrir brot á ýmsum
lagaákvæðum hverjum sum
liggur þung refsing við.“
Lögfræðingurinn Árni Stefán
Árnason, með dýravernd sem
sérsvið, tjáir sig um orð Sigurðar
Inga Jóhannssonar landbúnaðarráðherra
þess efnis að hann ætli ekki að beita sér
fyrir tafarlausri stöðvun á ólöglegum
geldingum á grísum.
20
„Sjáið bara
húsnæðisverð,
fyrir 20 árum gat
láglaunafólk keypt sér hús,
núna er fátt annað í boði en
rándýrt leiguhúsnæði. Núna
safnar fólk sér ekki fyrir húsi,
heldur þarf að safna fyrir
þau „forréttindi“ að fá að
leigja hús á uppsprengdu
verði með litlum réttindum.“
Brot úr athugasemd Sveins
Sigurðar Ólafssonar um
stöðuna á húsnæðismarkaði á
Íslandi. Sveinn skrifaði athugasemd við
frétt sem fjallaði um skuldaniðurfellingar
Framsóknarflokksins.
8