Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2014, Síða 32
32 Menning
Í
myndinni X-Men: First Class frá
2011 vorum við stödd á hinu lit-
skrúðuga ári 1962, frú Draper
striplaðist um á undirfötunum
og Kúbudeilan var í hámarki.
Nú erum við komin til 1973, Nixon
er orðinn forseti og allir eru klædd-
ir eins og hórumangarar. Í þetta
sinn eru einnig sögulegir viðburð-
ir í bakgrunni, friðarviðræður um
Víetnam í París, en á meðan First
Class var nokkurs konar Bond-
mynd í dulargervi er þessi mynd
hrein og tær X-Men.
Tvær kynslóðir X-manna
Mikið er í lagt, fengnar eru tvær
kynslóðir X-Manna og stórleik-
ararnir Ian McKellen og Michael
Fassbender leika báðir Magneto.
Upphafsatriðið er með þeim betri í
geiranum, í Moskvu framtíðarinnar
geisar stríð á milli manna og stökk-
brigða og flestar meginpersónur
eru drepnar strax í upphafi mynd-
ar. Söguþráðurinn virðist í fyrstu
full flókinn fyrir tveggja tíma bíó-
mynd, Jarfurinn fer aftur í tímann
og inn í eigin líkama til að breyta
gangi sögunnar, en þetta tekst án
þess að flækja málin um of.
Sú besta
Sé allt talið með er þetta sjö-
unda X-Men-myndin og ein sú
besta. Með svo mikla sögu að baki
er stöðugt verið að vísa í eldri
myndir sem gleður aðdáendur,
X-Men-kvikmyndirnar eru orðn-
ar eigin heimur utan við blöð-
in. Allar persónur fá vel að njóta
sín, engin ein er í aðalhlutverki og
rósin í hnappagatinu er síðan Pet-
er Dinklage úr Game of Thrones í
hlutverki skúrksins.
Bætt upp fyrir Wolverine
En það er auðveldara að byrja of-
urhetjumyndir heldur en að enda
þær. Það er nánast skylda að leggja
ameríska stórborg í rúst en hér er
farið varlega í sakirnar og menn
láta sér nægja Hvíta húsið og einn
íþróttaleikvang. Það er gott að fá
Bryan Singer aftur sem leikstjóra,
en hann hætti með X-Men á sínum
tíma til að gera Superman Returns
og hefði líklega betur sleppt því.
Hér er bætt upp fyrir Wolverine-
mynd síðasta árs og vel það. X-Men
eru aftur komnir á rétt ról, en eftir
síðustu Superman-mynd fer mað-
ur að verða úrkula vonar um að sú
persóna muni nokkurn tímann aft-
ur hefjast á flug. n
Vikublað 27.–29. maí 2014
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
X-Men: Days of
Future Past
Leikstjóri: Bryan Singer
Aðalhlutverk: Hugh Jackman, James McAvoy
og Michael Fassbender
Handrit: Simon Kinberg og fleiri
Ofurhetjumynd og samsæristryllir
Ef maður berst fyrir Bandaríkjastjórn, er maður þá endilega í réttu liði?
E
f maður berst fyrir Banda-
ríkjastjórn, er maður þá endi-
lega í réttu liði? Ein fyrsta hetju-
myndin til að spyrja þessarar
spurningar var Quantum of Solace
með James Bond, sem hlaut blendnar
viðtökur. Hér tekst betur til. Fyrri hluti
myndarinnar er samsærismynd í anda
8. áratugarins, og sjálfur Robert Red-
ford, sem þá lék í Three Days of the
Condor og All the President‘s Men, er í
stóru hlutverki.
Þessi blanda af ofurhetjumynd
og samsæristrylli heppnast afar vel á
þessum tíma stórfelldra njósna NSA.
Kafteinninn er fæddur 1918 og tilheyr-
ir því sem Bandaríkjamenn kalla „The
Greatest Generation,“ sem tókst á við
bæði heimskreppu og nasisma og fór
með sigur af hólmi. Hvernig myndi
hetju þeirrar kynslóðar reiða af í dag,
þar sem erfitt er að vera með hreinan
skjöld í skítugum heimi. Getum við
treyst stjórnvöldum sem vita allt um
okkur, og vill sá sem berst fyrir frelsi og
réttlæti endilega vera þeim megin?
Russo-bræðurnir stóðu á bak við
hina frábæru Arrested Development-
þætti og standa sig vel hér. Það að fylgj-
ast með Kafteininum takast á við nýja
tækni og nýja tíma býður upp á húmor
sem var fjarverandi í fyrri myndinni og
aksjónsenurnar eru líka í hressara lagi.
Ef maður heldur að maður þurfi aldrei
að sjá annan bílaeltingaleik gerir þessi
mynd sitt besta til að telja manni hug-
hvarf. Og það er einnig tilbreyting að
hinir gullfallegu aðalleikarar ákveða
að vera bara vinir.
Þetta er afar ferskt innlegg í ofur-
hetjugeirann og sem fyrsta stórmynd
sumarsins setur hún standard sem
maður vonar að aðrar slíkar nái að
standa undir. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmynd
Captain America:
The Winter Soldier
IMDb 8,2 RottenTomatoes 89% Metacritic 70
Leikstjórn: Joe og Anthony Russo
Aðalhlutverk: Chris Evans, Scarlett Johan
sen og Robert Redford
Handrit: Christopher Markus og Steven
McFreely
136 mínútur
Ferskt innlegg Þetta er afar
ferskt innlegg í ofurhetjugeir
ann og sem fyrsta stórmynd
sumarsins setur hún standard
sem maður vonar að aðrar
slíkar nái að standa undir.
RAX slær
í gegn
Í Frakklandi kemur út á næst-
unni safn ljósmynda Ragnars
Axelssonar í ritröðinni Photo
Poche hjá Actes Sud-útgáf-
unni. Photo Poche-ritröðin hef-
ur komið út síðan árið 1982 og
er hugarfóstur Robers Delpire,
myndritstjóra og útgefanda.
Markmiðið er að hægt sé að
nálgast úrval bestu ljósmynda
sögunnar í ódýrum útgáfum.
„Þeir sem komið hafa út í
Photo Poche eru sannarlega í
hópi mikilvægustu ljósmyndara
sögunnar,“ segir Kristján B.
Jónas son, eigandi Crymogeu, um
mikilvægi útgáfunnar fyrir ljós-
myndun á Íslandi. „Íslendingar
hafa hér með opinberlega eign-
ast einn af mikilvægustu ljós-
myndurum sögunnar. Ragnar er
aðeins fjórði Norðurlandabúinn
til að fá um sig sérbók í Photo
Poche-röðinni á eftir Svíunum
Christer Strömholm og Anders
Petersen og Finnanum Pentti
Sammallathi.“
Leikmynd flutt
á milli landa
Leikhúsupplifunin, Kraft-
birtingarhljómur guðdómsins,
verður frumsýnd hinn 28. maí
nk. Verkið er sagt vera leikhús án
leikara; verk sem drifið er áfram
einvörðungu af magnaðri tón-
list Kjartans Sveinssonar og sér-
stæðum sviðs- og leikmyndum
Ragnars Kjartanssonar. Verkið
var sett upp í fyrsta sinn í hinu
virta Volksbühne-leikhúsi í Berlín
í febrúar síðastliðnum og leik-
myndin er svo fyrirferðarmikil að
heilmikið tilstand hefur verið að
flytja hana hingað til lands.
n Myndinni er leikstýrt, af Bryan Singer
og er framhald af bæði XMen: The last
stand frá árinu 2006 og myndinni frá
árinu 2011, XMen: First Class.
n Sögusviðið er lauslega byggt á
myndasögu frá 1981 Days of Future Past
eftr þá Chris Claremont og John Byrne
þar sem flakkað er á milli tveggja tíma og
Wolverine er sendur aftur til ársins 1973
til að bjarga mannkyni.
n Í myndinni leika Hugh Jackman, James
McAvoy, Michael Fassbender, Jennifer
Lawrence, Halle Berry, Anna Paquin,
Ellen Page, Nicholas Hoult, Shawn
Ashmore, Peter Dinklage, Ian McKellen
and Patrick Stewart. Handrit skrifa þau:
Simon Kinberg, Matthew Vaughn og Jane
Goldman.
n Tökur hófust í aprílmánuði í fyrra í Mel's
Cité du Cinema í Montreal, Canada og
þeim lauk í ágústmánuði sama ár. Tökur
fóru einnig fram á Ólympíuleikvanginum
í Montreal og McGill hásk´lanum. Kvik
myndin er sú fyrsta af Xmen myndunum
sem er tekin í þrívídd.
n Samkvæmt Calgary Herald er kvik
myndin sú önnur dýrasta framledd af
kvikmyndaverinu 20th Century Fox á eftir
myndinni Avatar frá árinu 2009.
Nixon og
ofurhetjurnar
„Sé allt talið
með er þetta
sjöunda X-Men myndin
og ein sú besta
n X-Men eru aftur komnir á rétt ról n Bætt upp fyrir Wolverine
Góður í hlutverki
skúrksins Ein aðal
stjarna myndarinnar
er stjarnan góðkunna
úr Game of Thrones,
Peter Dinklage.
Staðreyndir um X-men
Sú önnur dýrasta frá Fox
Tveir vinir
með tónleika
Á morgun, miðvikudaginn 28.
maí, munu tónlistarmennirnir
Siggi Björns og Pálmi Sigurhjart-
ar halda tónleika í félagsheimil-
inu Stað á Eyrarbakka.
Þeir félagar munu halda
nokkra tónleika á næstu vikum
en þeir lofa að gömul og ný lög
fái að heyrast, auk skemmtilegra
sagna, sem eru þó missannar.
Einnig gáfu þeir félagar nýlega út
diskinn Tveir vinir.
Tónleikarnir í Stað hefjast
klukkan 21.00.