Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1974, Qupperneq 8
6*
Verzlunarskýrslur 1972
i annarri skránni ætti sér „mótnúiner“ með nákvæmlega sama innihaldi
í hinni. Dró þetta úr notagildi skrárinnar og hagskýrslugerð á þessu sviði
torveldaðist, en þetta var lagfært, með því að bætt var áður nefndum
rúmlega 200 undirliðum við Brtissel-skrána, jafnframt því sem ýmsar
breytingar voru gerðar á tölfræðilegu vöruskránni. Komust þessar tvær
skrár þar með í fullt samræmi hvor við aðra.
I Brussel-skránni eru á 14. hundrað vörunúmer að meðtöldum áður
nefndum 200 undirliðum. í hinni endurskoðuðu tölfræðilegu skrá (Stand-
ard International Trade Classification Revised), sem gefin var út af
Sameinuðu þjóðunum, New York 1961, voru 1312 vörunúmer. í islenzku
tollskránni eru nú um 2100 vörunúmer, eða um 800 fleiri en í Brussel-
skránni. Þessi viðbót stafar af skiptingu á sumum númerum alþjóðlegu
skrárinnar.
Hin endnrskoðaða vöruskrá liagstofu Samcinuðu þjóðanna er þannig
uppbyggð: í 625 undirflokkum („subgroups", táknaðir xxx.x) á hver vara
í milliríkjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 278 skiptir
þannig að 944 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við
625-1-278 númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1312, eins og
áður segir. Hinir 625 undirflokkar skiptast á 177 vöruflokka („groups",
táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 56 vörudeildir („divisions“, táknaðar
xx), sem að lokum mynda vörubálka („sections“, táknaðir x).
Verzlunarslcýrslur fyrir árið 1972 eru með sömu tilhögun og Verzl-
unarskýrslur undanfarinna ára.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð. Aðaltafla útflutn-
ings, tafla V, var frá og með Verzlunarskýrslum 1970 sett í röð nýrrar
vöruskrár Hagstofunnar fyrir útflutning, sem tekin var í notkun í ársbyrj-
un 1970. Töflu III var breytt til samræmis við þetta, og eru því útfluttar
vörur í henni í sömu röð og í töflu V, en saman dregnar, þannig að
verðmætistölur svara til 2ja fyrstu stafa hinnar 6 stafa tákntölu hvers
vöruliðs i vöruskrá útflutnings. Hér vísast að öðru leyti til liðs 3 í skýr-
ingum við töflu V, á bls. 188. — Að öðru leyti eru aðaltöflur að mestu
óbreyttar frá þvi, sem verið hefur.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og
útflutnings (V) visast að öðru leyti til skýringa i upphafi hvorrar töflu.
Einkum er vísað til liða 3—5 í skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í Verzl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru i útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan í Verzlunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði i nokkrum töflum. Svo er nú í töfl-
um I og IV og i 2. yfirliti í inngangi. — í þeim kafla inngangsins, sem
fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verð-
mæti innflutningsins og mismun þcss og cif-verðinætisins.