Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1974, Síða 42
40
Vcrzlimarskýrslur^l972
5. Viðskípti við einstök lönd.
External trade by countries.
í töflum II og IV er innflutningurinn sundurgreindur á lönd, i fyrr
nefndu töflunni eftir ca. 175 vöruflokkum hinnar endurskoðuðu vöruskrár
hagstofu Sameinuðu þjóðanna, en i síðar nefndu töflunni eftir hverju ein-
stöku tollskrárnúmeri.
í töflum III og V er útflutningurinn sundurgreindur á lönd, i fyrr-
nefndu töflunni nokkuð samandreginn, en í siðar nefndu töflunni
eftir dýpstu sundurgreiningu útfluttra vara.
í 8. yfirliti í inngangi er sýnt, hvernig verðmæti innfluttra og út-
fluttra vara hefur skipzt siðustu þrjú árin eftir löndum. Síðari hluti
töflunnar sýnir þátt hvers lands hlutfallslega i utanríkisverzlun Islands
samkvæmt verzlunarskýrslum.
Það er framleiðsluland, ekki innkaupsland, sem tekið er i innflutn-
ingsskýrslur. Oftast fer þetta saman. Á aðflutningsskýrslu skal tilgreina
bæði framleiðsluland og innkaupsland. Vanti hið fyrr nefnda, er innkaups-
landið Lekið sem framleiðsluland, nema ástæða sé til að ætla, að varan
sé ekki framleidd í innkaupslandinu. Svo er oft um t. d. ávexti, og þunga-
vöru, svo sem olíu, benzín, salt o. fl. Er þá reynt að afla upplýsinga um
framleiðsluland, ef ekki er þegar vitað um það. Hins vegar kveður óhjá-
kvæmilega eitthvað að þvi, að á skýrslu sé tekið innkaupsland í stað fram-
leiðslulands. — Á hliðstæðan hátt er það notkunarland útfluttrar vöru,
en ekki söluland, sem tekið er í útflutningsskýrslur. Eitthvað er um það,
að notkunarland vöru sé annað en landið, þar sem kaupandi er. Ivomi
notkunarland ekki fram á útílutningsskýrslu, er sölulandið tekið á
skýrslu, nema ástæða sé til að ætla, að endanlegt móttökuland sé annað
en sölulandið. Er þá reynt að bæta úr þessu. Fyrir kemur, — eins og við
er að búast — að á skýrslu sé tekið söluland í stað notkunarlands, enda
er úlflytjanda sjálfuin stundum ókunnugt um notkunarland, og auk þess
kemur hér sitt hvað annað til.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by places of customs clearance.
Töflu VI á bls. 204 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru
eftir tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þess-
arar töflu eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er
að bæta úr. T. d. kveður talsvert að þvi, að farmar og einstakar vöru-
sendingar séu tollafgreiddar — og þar með taldar fluttar inn — i öðru toll-
umdæmi en þar, sem innflytjandi er búsettur. Eins og vænta má, er það
aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar eru inn
af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið