Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1974, Síða 47
Verzlunarskýrslur 1972
45*
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af þvi,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavik, annast sölu og útflutning
á sumum helztu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðal-
lega ísuð síld og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr i töflu VI allur
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu voru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og þvi var þessu breytt frá og með
Verzlunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú í sérstökum lið i
töflu VI.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lílið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavik. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslur.
I töflu VI kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geymsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu í Reykjavik (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
með háum tolli, sem færðar eru í tollvörugeymslu. -— Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur i vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru
færðar i tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins í farmrými skips
eða flugvélar, eða í pósti, — en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar
eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytjanda. — í júlí 1970 tók
til starfa Almenna tollvörugeymslan hf. á Akureyri. Vörur, sem fara um
hana, eru teknar i innflutningsskýrslur á sama hátt og vörur, sem fara
um tollvörugeymslu i Revkjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum
vörum á árinu 1972.
Hið sérstaka innflutningsgjald á benzíni hélzt óbreytt í kr. 7.87 á
litra, sbr. lög nr. 98 28. desember 1970. Gjald af hjólbörðum og gúmmi-
slöngum hélzt óbreytt, kr. 36,00 á kg.
Með reglugerð nr. 69 4. apríl 1972 var, með heimild í 16. og 35. gr.
laga nr. 4/1960, ákveðið innflutningsgjald á öllum bifreiðum, nema
sjúkrabifreiðum og snjóbifreiðum og vissum öðrum bifreiðum til sér-
stakra nota. Var hér um að ræða endurupptöku gjalds, sem hafði verið
fellt niður frá 1. marz 1970. Gjald þetta er 25% af cif-verði (var áður
reiknað af fob-verði), og tók upphaflega jafnt til vörubifreiða og almenn-