Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1978, Blaðsíða 11
Verslunarskýrslur 1977
9
um útflutning og innflutning eftir mánuöum, sem birtist í hverju blaði
Hagtíðinda.
Miðað við miðgengi dollars var um að ræða 12,3% hækkun á gengi
hans gagnvart krónunni frá árslokum 1976 til ársloka 1977, en það sam-
svarar 11,0% lækkun á gengi krónunnar gagnvart dollar. Samsvarandi
hækkun á gengi allra erlendra gjaldmiðla, vegin með hlutdeild þeirra i
gjaldeyriskaupum og -sölu (dollar meðtalinn) er, samkvæmt útreikning-
um hag'fræðideildar Seðlabanka íslands, 14,1% á kaupgengi og 15,4% á
sölugengi. Árið 1977 var meðalgengi dollars gagnvart krónunni kr. 198,78
kaup og kr. 199,29 sala, og er um að ræða 9,3% hækkun frá meðalgengi
dollars 1976, miðað við miðgengi. Samlcvæmt útreikningum hagfræði-
deildar Seðlabanka íslands er hækkun frá 1976 til 1977 á ársmeðalgengi
allra erlendra gjaldmiðla, vegin með lilutdeild þeirra í gjaldeyriskaupum
og -sölu, 9,7% á kaupgengi og 11,1% á sölugengi. Þótt ýmsir fyrirvarar
komi hér til, mun þetta hlutfall komast næst því að sýna áhrif gengisbreyt-
inga á verðmætistölur Verslunarskýrslna 1977. Hér skal á það bent, að
mikið kveður að því, að innflutningur -— og í enn ríkara mæli útflutn-
ingur — sé verðskráður og greiddur í gjaldmiðli annars lands en þess, sem
selur hingað eða kaupir héðan vöru.
Sú regla gildir almennt, að verðmæti utanríkisverslunar eru tekin
á skýrslu á því gengi, sem gildir hverju sinni, er vörur eru tollafgreiddar
inn i landið eða út úr því. Við meiri háttar gengisfellingu er vikið frá
jiessu, en um slíka var ekki að ræða 1977.
í árslok 1977 var skráð gengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri
sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Ðandaríkjadollar i 212,80 213,40
Sterlingspund i 404,80 405,90
Kanadadollar i 194,10 194,60
Dönsk króna 100 3 682,70 3 693,10
Norsk króna 100 4 136,30 4 148,00
Sænsk króna 100 4 548,20 4 561,00
Finnskt mark 100 5 286,20 5 301,10
Franskur franki 100 4 519,10 4 531,90
Belgískur franki 100 646,20 648,00
Svissneskur franki 100 10 594 80 10 624,80
Gyllini 100 9 344,50 9 370,90
Vestur-þýskt mark 100 10 090,20 10 118,80
Líra 100 24,34 24,41
Austurrískur schilling 100 1 405,70 1 409,70
Escudo 100 532,00 533,50
Peseti 100 262,70 263,40
Yen 100 88,61 88,86
Dollargengið var eins og áður segir 12,3% hærra í árslolc 1977 en í
árslok 1976, en gengi eftirtalinna gjaldmiðla hærra sem hér segir: Sterl-
ingspunds 25,8%, danskrar krónu 12,3%, norskrar krónu 12,7%, sviss-
nesks franka 36,8% og vestur-þýsks marks 25,6%. Gengi sænskrar krónu
var 1,0% lægra í árslok 1977 en í árslok 1976, enda var hún verðfelld i
ágúst 1977.
Innflutningstölur verslunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í
íslenskar krónur á sölugengi, en útflutningstölur eru miðaðar við kaup-
gengi.