Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1978, Blaðsíða 18
16*
Verslunarskýrslur 1977
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob
og cif eflir vörudeildum nýendurskoðaðrar vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna. í töflu II á bls. 4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins
eftir vöruflokkum sömu skrár með skiptingu á lönd.
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram:
Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá út-
flulningsstaðnum ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, ur ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá
erlendri útflutningshöfn til íslands, heldur er í suinum tilfellum líka um
að ræða farmgjöld með járnbrautum eða skipum frá sölustað lil þeirrar
útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Iíem-
ur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta eftir því, við hvaða stað
eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður að því, að vörur
séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. I slíkum tilfellum er tilsvar-
andi fob-verð áællað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1977 þarf innflutningur frá landi að
nema minnst 500 þús. kr., til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í
töflu IV — nema um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cif og fob eftir
vörudeildum. Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti
innflutnings 1977 alls 100 287 059 þús. kr., en cif-verðið 110 112 075 þús.
kr. Fob-verðmæti innflutnings 1977 að undanskildum skipum og flug-
vélum var þannig 91,1% af cif-verðmætinu. — Ef litið er á einstaka
flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs er mjög mismun-
andi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef litið er á ein-
stakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiptist á vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað
1% af cif-verði flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04, 06, 08,
og 56, þar er tryggingaiðgjald reiknað 0,83% af cif-verði. Svo er
einnig á kolum (32). Tryggingaiðgjald á timbri í vörudeildum 24 og 63
er reiknað 0,94% af cif-verði, á salti (í 27. vörudeild) 0,55%, og á olíum
og bensíni (í 33. vörudeild) 0,55%. Á bifreiðum i 78. vörudeild er trygg-
ingaiðgjald reiknað 2,75% af cif-verði. — Að svo miklu leyti sem trygg-
ingaiðgjald kann að vera of hátt eða of lágt í 2. yfirliti, er flutningskostn-
aður o. fl. talið þar tilsvarandi of lágt eða of hátt.
Innflntningsverðmæti 26 skipa, sem flutt voru inn 1977 (tollskrárnr.
89.01.40, 89.01.51—53 og 89.03.00), nam alls 10 046 202 þús. kr„ og fer
hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Innflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
1. Ólafur Jónsson GK-404 frá Póilandi, skuttogari ................... 488 536 200
2. Bjarni Herjólfsson ÁR-200 frá Póllandi, skuttogari................ 488 535 492
3. Klakkur VE-103 frá Póllandi, skuttogari........................... 488 546 810
4. Gullberg NS-11 frá Noregi, skuttogari ............................ 299 549 700
5. Maí IIF-346 frá Norcgi, skuttogari ............................... 302 627 010
6. Jóliann Gíslason ÁR-42 frá Noregi, flskiskip...................... 217 61 909
7. Þorsteinn RE—303 frá Noregi, fiskiskip............................. 12 H 537
8. Reykjaborg RE-25 frá Bretlandi, fiskiskip ......................... \\ 19 621
9. Lárus Sveinsson SH-126 frá Frakklandi, skuttogari................. 339 276 848
10. Dalborg EA-317 frá Ítalíu, skuttogari ............................ 279 196 952
11. Háifoss frá Danmörku, farskip ............................ 1 599 426 069