Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 3
Vikublað 15.–17. júlí 2014 Fréttir 3
„Þetta er alveg
stórfurðulegt“
Höfundur tölvupóstsins skilur ekki hvað Davíð Oddssyni gekk til
V
ið konan mín hlógum mik-
ið að þessu um helgina,“
segir Tryggvi Gunnarsson
kennari, sem sendi fjöl-
miðlum, stjórnmálamönn-
um og forseta Íslands afrit af harð-
orðum tölvupósti hinn 30. janúar. Á
laugardaginn var svo vitnað í tölvu-
póstinn í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins og fullyrt að sendandinn
væri alnafni kennarans, Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Al-
þingis og fyrrverandi nefndarmað-
ur í rannsóknarnefnd Alþingis um
bankahrunið.
Sendi Hannesi bréfið
„Ég skil ekki hvernig Davíð gat
dottið í hug að umboðsmaður Al-
þingis væri að senda bréf til fjöl-
miðla, forseta og stjórnmálamanna.
Þetta er alveg stórfurðulegt og dóm-
greindarleysið algjört,“ segir bréfrit-
arinn. Tölvupósturinn sem Morgun-
blaðið vitnaði í var sent DV, Vísi, Stöð
2, RÚV, forsetanum og formönnum
stjórnmálaflokka hinn 30. janúar.
Morgunblaðið fékk ekki bréf-
ið á þessum tíma, en Tryggvi segist
hins vegar hafa sent Hannesi Hólm-
steini Gissurarsyni stjórnmálafræði-
prófessor sama tölvupóstinn fyr-
ir aðeins örfáum dögum. „Það
hlýtur að vera þess vegna sem rit-
stjóri Morgunblaðsins er að vitna í
bréfið núna,“ segir Tryggvi sem tel-
ur líklegt að prófessorinn hafi afhent
Davíð tölvupóstinn.
„Svo er vægast sagt sérkenni-
legt að Davíð skuli tala um að aðr-
ar fréttastofur hafi legið á þessum
tölvupósti. Ætli hann haldi þá að
fjölmiðlar séu í einhverju samsæri?
Þagi um tölvupósta sem umboðs-
maður Alþingis sendir? Þetta er al-
veg furðulegt mál,“ segir Tryggvi sem
jafnframt undrast að Mbl.is skuli
halda því fram að tölvupósturinn sé
falsaður. Í tölvupóstinum, sem send-
ur er af netfanginu tryg49@hotmail.
com, er hvergi gefið í skyn að bréfrit-
ari sé umboðsmaður Alþingis.
Samhengi hlutanna
Alnafni bréfritara hefur gegnt emb-
ætti umboðsmanns Alþingis frá ár-
inu 1999 og hefur Davíð áður gert
atlögu að honum. Hinn 14. maí árið
2004 greindi DV frá óhefðbundnum
samskiptum Davíðs Oddssonar við
Tryggva. Davíð var á þessum tíma
forsætisráðherra og settur dóms-
málaráðherra í fjarveru Björns
Bjarnasonar. Í byrjun mánaðarins
hafði Davíð tekið við áliti umboðs-
manns þar sem athugasemdir voru
gerðar við skipan Ólafs Barkar Þor-
valdssonar, frænda hans, í embætti
hæstaréttardómara. Davíð hringdi
þá í Tryggva Gunnarsson og hafði í
hótunum við hann. DV gerði mál-
inu ítarleg skil en Davíð þverneitaði
að svara fyrir það á þingi.
Rúmlega fjórum árum síðar, 30.
desember árið 2008, voru aðstæð-
ur á Íslandi breyttar; Davíð Odds-
son hafði fært sig af ráðherrastóli
og komið sér fyrir í Seðlabanka Ís-
lands. Íslenska fjármálakerfið var
á hliðinni, Ísland einangrað á al-
þjóðavettvangi og Seðlabankinn
tæknilega gjaldþrota. Þennan dag
skipaði forsætisnefnd Alþing-
is þrjá menn í rannsóknarnefnd
um aðdraganda og orsakir banka-
hrunsins, þeirra á meðal Tryggva
Gunnarsson. Skýrslunni var skilað
hinn 12. apríl árið 2010, en í henni
er meðal annars fullyrt að Dav-
íð Oddsson hafi sem bankastjóri
Seðlabanka Íslands sýnt af sér van-
rækslu í starfi í aðdraganda banka-
hrunsins. n
„Ég skil ekki hvernig
Davíð gat dottið í
hug að umboðsmaður Al-
þingis væri að senda bréf
til fjölmiðla, forseta og
stjórnmálamanna.
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Ruglaðist Í Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins var umboðsmaður
Alþingis ranglega sagður höfundur
tölvupósts sem sendur var fjölmiðl-
um og stjórnmálamönnum í janúar.
Fúll vegna frænda Davíð Oddsson hafði,
sem settur dómsmálaráðherra, afskipti af
umboðsmanni Alþingis þegar gerðar voru
athugasemdir við skipan Ólafs Barkar Þor-
valdssonar sem hæstaréttardómara.
Rannsakaði hrunið Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis, sat í rann-
sóknarnefnd Alþingis um bankahrunið.
Safnar fyrir börn með sérþarfir
Sjálfboðaliði í Suður-Afríku leitar að styrktarfé
Þ
essi drengur er yfirleitt kom-
inn í þessa stöðu nokkrum
mínútum eftir að hann er
settur í stólinn sinn. Í stað ör-
yggisbeltis er hann kirfilega bund-
inn í stólinn með hálsbindi sem
rennur upp undir rifbeinin á honum
þegar hann sígur niður í stólnum.
Mig langar mikið að bæta úr þessu!“
Þetta skrifar sjálfboðaliðinn Sólveig
María Sigurbjörnsdóttir undir með-
fylgjandi mynd á fjáröflunarsíðu til
styrktar suður-afrískum skóla fyrir
börn með sérþarfir.
Sólveig er stödd í Höfðaborg í
Suður-Afríku þar sem hún starfar
sem sjálfboðaliði í skóla sem ber
heitið Elundini og er fyrir börn með
fatlanir, bæði líkamlegar og and-
legar. Samtökin sem hjálpa þessum
skóla heita SAVE og eru suður-afrísk.
Á Facebook-síðu fjáröflunarinnar
segir Sólveig að aðstæður í skólanum
séu mjög bágar – kennslustofurn-
ar litlar og kaldar og útileiksvæðið
ekkert nema malbik. Þá segir hún að
hjálpartækin sem börnin noti séu úr
sér gengin og skítug.
„Þar sem svo margt vantar upp
á til að Elundini-skólinn og aðbún-
aður hans verði mannsæmandi er
það ósk mín að geta safnað fé, sem
fer í það að kaupa ný hjálpartæki og
annað það sem skólann vantar,“ seg-
ir Sólveig á fjáröflunarsíðunni. Hún
segir stefnuna setta á að safna hund-
rað þúsund krónum en nú þegar hafa
safnast fjörutíu þúsund krónur. Pen-
ingarnir munu meðal annars renna
í göngugrind handa 3–4 ára gamalli
stúlku sem og aukahluti í hjólastóla,
svo sem sessur, vatnsheldar hlíf-
ar á sessur og öryggisbelti. Þeir sem
vilja styrkja verkefnið geta lagt pen-
ing inn á eftirfarandi reikning – 0344-
26-007836 – sem er á kennitölu Sól-
veigar – 221185-2269. n
jonbjarki@dv.is
Vill bæta aðstöðuna Sjálfboðaliðinn
Sólveig María Sigurbjörnsdóttir leitar að
fjármagni til þess að kaupa ný hjálpartæki
fyrir börn með sérþarfir í Suður-Afríku.
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS