Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 10
Vikublað 15.–17. júlí 201410 Fréttir F ramtíð íslensku geitarinn- ar er í bráðri hættu. Rekstur geitabús Jóhönnu Bergmann Þorvaldsdóttur, langstærsta geitfjárræktanda landsins, er á leiðinni í þrot. Arion banki hefur sent henni tilkynningu þess efnis að fasteign hennar að Háafelli í Hvítár- síðu, þar sem hún stundar geitabú- skap og heldur heimili, verði boðin upp og seld hæstbjóðanda í byrjun september næstkomandi til lúkn- ingar 46 milljóna skuldar búsins við bankann. Það þýðir að 22 pró- sent íslenska geitfjárstofnsins og 96 prósent hins kollótta hluta stofnsins – 200 geitur í heildina – eru að lík- indum á leiðinni í sláturhúsið. „Ég tapa jörðinni í september, og öllum geitunum með, ef ekkert gerist,“ seg- ir Jóhanna í samtali við DV en hún hefur stundað geitfjárrækt frá árinu 1999 án teljandi aðstoðar frá hinu opinbera. Hvorki Arion banki né stjórnvöld hafa sýnt nokkurn áhuga á að hlaupa undir bagga með búinu, að sögn Jóhönnu. „Okkur er neitað um frekari frest,“ segir hún og eigin- maður hennar, Þorbjörn Oddsson, bætir við: „Ég fer bráðum að smala þessu í sláturhúsið bara. Það er ekk- ert annað sem liggur fyrir.“ 80 þúsund á ári Sem kunnugt er njóta sauðfjár- og kúabændur ríkulegra styrkja frá stjórnvöldum. Sem dæmi má nefna að sauðfjárbóndi með tvö hundruð gripi fær um tvær milljónir árlega í beingreiðslu frá hinu opinbera. Geitabóndar sitja við allt annað borð. „Ég fæ áttatíu þúsund krón- ur á ári í landbúnaðarstyrk.“ Fyr- ir hverja geit? „Nei, fyrir allt heila klabbið. Það er heildarupphæðin sem ég fæ. Landbúnaðarkerfið virð- ist einfaldlega ekki hafa pláss fyrir geitur.“ Þrátt fyrir þetta hefur Jóhanna ekki látið neinn bilbug á sér finna og haldið ræktuninni til streitu og skrimt. Til þess hefur hún þurft að taka lán, til dæmis fyrir byggingu fjóss á bænum. „Upphaflega voru skuldirnar 24 milljónir – fyrir hrun. En þær eru orðnar 46 milljónir núna, og það ræður þessi innkoma ekki við. Ég hef lagt allt í þetta, unnið launalaust. Börnin mín fengu ekki allt það sem vinum þeirra fannst sjálfsagt; þetta hefur verið stöðug- ur lífróður, “ segir Jóhanna og bætir við: „Ef ég væri á sléttu fjárhagslega þá myndi reksturinn standa undir sér, ef við tökum túristaheimsókn- Íslenska geitin í bráðri hættu n Geitabú Jóhönnu í þrot n Stórum hluta stofnsins slátrað n Ráðherra hyggst ekki bjarga búinu Baldur Eiríksson baldure@dv.is „Ég tapa jörðinni í september, og öll- um geitunum með, ef ekkert gerist Gjaldþrota geitabóndi Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir hefur helgað íslensku geitinni líf sitt. Nú er búið henn- ar, langstærsta geitaræktun landsins, á leið á hausinn. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.