Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 12
Vikublað 15.–17. júlí 201412 Fréttir NeyðarástaNd á leigumarkaði n Húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu í ólestri n Félagslega kerfið sprungið n Konur slíta síður ofbeldissamböndum n Einstæðum foreldrum ráðlagt að leigja saman H úsnæðismál í Reykjavík eru í miklum ólestri. Leigu- verð er í hæstu hæðum og fasteignaverð hækkar frá mánuði til mánaðar. Fjöl- margir greiða þorra ráðstafanatekna sinna í leigu á mánuði en stand- ast þrátt fyrir það ekki greiðslu- mat á lánum sem bera lægri af- borganir. Þau lán sem bjóðast bera háa greiðslubyrði miðað við þró- un launa og á sama tíma er skortur á húsnæði sem hentar tekjulægstu hópunum, bæði á leigu- og kaup- markaði. Hátt leiguverð hefur keðjuverkandi áhrif sem gerir það ómögulegt fyrir marga að leggja til hliðar fé til íbúðarkaupa. DV leitaði eftir frásögnum fólks á leigumarkaði en staðan er slæm hjá stórum hópi fólks. Fólk lýsir ástandinu eins og „frumskógi“ eða „villta vestrinu“. Fólk á öllum aldri og úr ólíkum starfsstéttum sendi DV sögu sína. Fæstir treystu sér til að koma fram undir nafni. Sumir af ótta við að missa núverandi hús- næði. Félagslegar afleiðingar Félagslegar afleiðingar versn- andi aðstæðna á leigumarkaði eru gríðarlegar. Hátt leiguverð kemur meðal annars í veg fyrir að konur slíti ofbeldissamböndum, því þær hafa ekki efni á því að standa á eig- in fótum. Öryrki á sjötugsaldri, sem missti leiguíbúðina sína og hefur gist á legubekk í bókaherbergi vin- konu sinnar í rúmt ár, er ekki met- inn í brýnni húsnæðisþörf og þá er einstæðum foreldrum ráðlagt að leigja saman íbúðir því einar tekjur duga einfaldlega ekki fyrir leigu. Þá eru 856 á biðlista eftir fé- lagslegu húsnæði í Reykjavík, 329 í Hafnarfirði og 237 í Kópavogi. 810 eru á biðlista hjá Stúdentagörðum og á enn eftir að vinna úr yfir 100 umsóknum sem gætu skilað sér inn á þann lista. Bólumyndun á markaði Fjárfestingarsjóðurinn GAMMA hefur á undanförnum misserum keypt upp íbúðir á höfuðborgar- svæðinu í stórum stíl sem hefur leitt til hækkandi fasteignaverðs og hækkandi leiguverðs en félagið hef- ur verið nefnt sem stór áhrifavaldur í þróun á leigumarkaði. Formaður Fasteignafélags Íslands hefur meðal annars gagnrýnt félagið í fréttum og sagt það hafa bólumyndandi áhrif á húsnæðismarkaði. Í maí síðastliðn- um átti félagið um 350 íbúðir á höf- uðborgarsvæðinu og í samtali við Vísi sagði Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA, að til stæði að kaupa 850 íbúðir til viðbótar á næstu þremur árum. Þá sagði Jóhann Már Sigur- björnsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið að dæmi væri um að 500 manns hefðu sótt um að leigja sömu íbúðina. Þá sagði hann stór leigufélög nýta sér ástandið og hækka leigu íbúða um allt að 30.000 krónur á einu bretti. Engin lausn í bráð Engin lausn virðist vera á næsta leiti. Reykjavíkurborg hyggst byggja á bil- inu 2.000–3.000 íbúðir á næstu árum og mun það líklega hafa dempandi áhrif til lengri tíma litið. Í maí skilaði verkefnisstjórn um framtíðarskip- an húsnæðismála skýrslu til Eygló- ar Harðardóttur, félags- og húsnæð- ismálaráðherra. Þar var lagt til að fjármögnun húsnæðislána verði breytt, húsnæðissparnaður festur í sessi og leigumarkaðurinn efldur með margvíslegum aðgerðum. Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra er í sumarfríi um þessar mundir en samkvæmt Matthíasi Imsland, að- stoðarmanni ráðherra, hófst vinna að frumvörpum byggðum á tillögun- um strax og þær bárust. Vonir standa til að þau verði lögð fyrir á komandi haustþingi. Konur slíta síður ofbeldissamböndum „Við vitum fjölmörg dæmi þess að konur veigri sér við því að slíta of- beldissamböndum því þær hafa ekki efni á að búa einar. Þetta er líka ástæða þess að þær fara aftur heim eftir dvöl í Kvennaathvarfinu.“ Þetta segir Sigþrúður Guðmundsdótt- ir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, í samtali við DV. Hún segir erfiðar aðstæður á leigu- markaði verða til þess að konur sjá sér þann kost skástan að búa áfram við ofbeldi. Þetta blandist síðan inn í aðrar ástæður þess að erfitt er að slíta ofbeldissambandi. „Þær ýmist fá ekki leiguhúsnæði eða leiguhús- næðið sem býðst er svo dýrt að það kostar allar tekjur þeirra,“ segir Sig- þrúður. Hrekjast á milli skammtímahúsnæða Sigþrúður segist óttast þróunina í húsnæðismálum hér á landi. „Við horfum upp á það á hverjum ein- asta degi hvað það er ofboðslega erfitt að koma sér í nýtt húsnæði. Við sjáum konur, sem fara frá okk- ur, hrekjast á milli skammtímahús- næðis. Þetta þýðir til dæmis enda- laus skipti á skólum og umhverfi fyrir börnin, einmitt á tímum sem þau þyrftu að búa við stöðugleika og ró. Okkar konur kaupa sér yfir- leitt ekki húsnæði, heldur leigja sér húsnæði, eftir að þær fara frá okkur. En leigumarkaðurinn hefur verið al- veg gríðarlega erfiður. Hann er bæði dýr og óvilhallur okkar konum, sem eru oft erlendar konur eða konur úti af vinnumarkaði. Einnig konur sem eru giftar en búa samt sem einstæð- ar mæður. Þær eiga til dæmis ekki rétt á húsaleigubótum.“ Ýtir undir misrétti Sigþrúður segir ástandið einnig ýta Ásgeir Jónsson Áslaug K. Jóhannsdóttir asgeir@dv.is / aslaug@dv.is „Þær ýmist fá ekki leiguhúsnæði eða leiguhúsnæðið sem býðst er svo dýrt að það kostar allar tekjur þeirra. Leigumarkaðurinn óvilhallur okkar konum Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Gríðarlegur fjöldi á biðlista H já Félagsstofnun stúdenta eru 810 manns á biðlista en 116 umsóknir eru enn í vinnslu. Alls hafa því 926 manns sótt um íbúð á Stúdentagörðum í haust. Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FS, segir athygl- isvert að fjöldi umsókna er í takt við fjölda um- sókna síðustu ára, þrátt fyrir að þrjú hundruð nýjar íbúðir hafi verið teknar í notkun í fyrra. „Við höfum aukið framboðið okkar um 37 pró- sent en samt linnir ekki fjölda umsókna. Því mið- ur búum við við það að vera með of lítið framboð og þess vegna höfum við þurft að setja takmark- anir. Ákveðnir hópar hafa því forgang,“ seg- ir Guðrún. Hjá Byggingafélagi námsmanna eru 1.440 skráningar á biðlista, en möguleiki er á að vera á fleiri en einum biðlista þar sem þeir skipt- ast á milli hverfa og tegund húsnæðis. „Ég myndi áætla að það væru á bilinu 500 til 600 einstak- lingar og fjölskyldur á biðlista hjá okkur,“ segir Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri Byggingafé- lags námsmanna. Hann segir eftirspurnina eft- ir stúdentaíbúðum meiri en undanfarin ár. „Þá er einnig minni hreyfing. Námsmenn sem eru komnir inn fara ekki mikið annað meðan á námi stendur. Núna er verðmunurinn orðinn það mikill, og úrræðin á almenna markaðnum færri, þannig að námsmenn sitja í íbúðunum meðan á námi stendur.“ Hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalags- ins, eru 288 á biðlista. Björn Arnar Magnússon, framkvæmdastjóri Brynju, segir fjölda umsókna hafa aukist töluvert á síðasta ári og að fjöldi fólks á biðlista hafi aldrei verið meiri en nú. „Vandinn er mikill og sveitarfélögin virðast ekki vera að bregðast við honum af fullum þunga. Mesti vandinn er hérna í Reykjavík,“ segir Björn Arnar. Biðlistar eru víða að lengjast hjá sveitar- félögunum á höfuðborgarsvæðinu. Talsverð fjölgun hefur til að mynda verið á biðlista eft- ir félagslegu leiguhúsnæði hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar undanfarin ár. Í dag eru 856 manns á biðlista eftir leiguíbúðum hjá Reykja- víkurborg sem er aukning um 5,8 prósent frá síðasta ári. Þá eru 218 á biðlista eftir þjónustuí- búðum og 184 á biðlista eftir sértækum búsetu- úrræðum. Alls bíða því 1.258 manns eftir hús- næði hjá Reykjavíkurborg. Þá eru 237 manns á biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Kópavogsbæ. Í Hafnarfirði bíða 329 eftir félagslegu húsnæði og 26 í Garðabæ. Níu eru á biðlista hjá Mosfellsbæ auk fjögurra sem eru í félagslegu húsnæði á vegum sveitarfélags- ins en bíða eftir stærra húsnæði. Fjögur mál eru óafgreidd. Fjórir eru á biðlista á Seltjarnarnesi. Félagsstofnun stúdenta 810 Byggingafélag námsmanna 500–600 Brynja, hússjóður ÖBÍ 288 Reykjavík 856 Kópavogsbær 237 Hafnarfjörður 329 Garðabær 26 Mosfellsbær 9 Seltjarnarnes 4 Um 1.750 manns á biðlistum eftir að fá félagslegt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.