Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Page 25
Vikublað 15.–17. júlí 2014 Neytendur 25 Gerðu Góð kaup á sumarútsölunum n Sumarútsölurnar í fullum gangi n Allt að 80 prósenta afsláttur n Hér getur þú gert góð kaup ir fullorðna. Í Polarn O.Pyret er 30–50 prósenta afsláttur en þar er meðal annars að finna úlpur og snjógalla á afslætti. Í Name it er sömuleiðis 30– 50 prósenta afsláttur á útsöluvörum og hjá Englabörnunum er hægt að fá flíspeysur og yfirhafnir á börnin á 50 prósenta afslætti. Víða er hægt að fá skó á góðu verði. Hjá Kaupfélaginu er 40 pró- senta afsláttur af völdum vörum, Steinar Waage býður upp á 30–40 prósenta afslátt af völdum vörum og þá er 30–50 prósenta afsláttur af völdum skóm hjá GS skóm. Útivistar- og íþróttavörur eru jafn- an dýrar og því ekki úr vegi að nýta sér sumarútsölurnar. Sem dæmi má nefna að Útilíf býður upp á 30– 70 prósenta afslátt af völdum vör- um í verslunum sínum og þá er 25– 50 prósenta afsláttur í Cintamani í Kringlunni. n Ábending til verslunareigenda Neytendastofa hefur vakið athygli á eftirfarandi atrið- um sem verslanir verða að gæta að í tengslum við útsöl- ur. Verslanir þurfa að taka skýrt fram í auglýsingum og á sölustöðum hvaða vörur eru seldar á lækkuðu verði. Útsölu, tilboð og lækkað verð má einungis auglýsa þegar um raunverulega verðlækkun er að ræða og skýrt þarf að koma fram hvert sé fyrra verð vörunnar. Varan þarf að hafa verið seld á því verði sem er tilgreint sem fyrra verð áður en útsalan byrjaði þannig að það má ekki hækka verð í þeim eina tilgangi að geta lækkað það á útsölu. Þegar vara hefur verið seld á lækkuðu verði í sex vikur þá er útsölu- eða tilboðsverðið orðið venjulegt verð vörunnar. Það er því ekki leyfilegt að hafa vörur á útsölu eða tilboði allan ársins hring því þá er ekki um að ræða betri kjör til neytenda en gengur og gerist. Neytendastofa hefur eftirlit með því að verslanir fari eftir þeim reglum sem gilda um útsölur og fylgir eftir ábendingum frá neytendum telji þeir reglurnar brotnar. Brjóti verslanir gegn lögunum er stofnuninni heimilt að beita þær stjórnvaldsviðurlögum. Vegfarendur á flakki í Kringlunni  Félagarnir Viktor Freyr og Svanur Þór gáfu sér tíma til að ræða við blaðamann á rölti um Kringluna. Viktor Freyr hafði fundið sér takkaskó á tilboði en Svanur Þór hafði enn ekki fundið neitt. Hann ætlaði samt að halda áfram að skoða. „Það var ekkert svakalegur afsláttur af þessum skóm. Eiginlega enginn,“ segir Viktor Freyr í samtali við DV sem lét það ekki aftra sér við kaupin.  „Nei, ég er ekki að skoða útsölurnar,“ segir Þórhildur í samtali við DV. „Ég er bara að versla fyrir afmælið mitt. Ég var að koma frá útlöndum, annars myndi ég örugglega kaupa mér eitthvað.“  „Við erum bara að flýja rigninguna. Ég er ekki búin að kaupa mér neitt,“ segir Einhildur en hún er stödd í Kringlunni ásamt tveimur systrum sínum sem vildu ekki vera með á mynd. „Við fórum bara í Kringluna að skanna útsölurnar af því að það er svo mikil rigning.“  „Við komum nú ekki hingað til að fara á útsölurnar. Við vorum búnir að ákveða hvað við ætluðum að kaupa áður en við komum,“ segir Karl sem er staddur í Kringlunni ásamt syni sínum, Kristjáni Helga. „Ég fékk takkaskó og legghlífar en við fengum 30 prósent afslátt af legghlíf- unum,“ segir Kristján Helgi.  „Já, ég keypti mér háhæl-aða skó og er rosalega ánægð með þá. Fékk þá með 40 prósent afslætti,“ segir Eva Björk sem er greinilega hæstánægð með kaupin. „Nú er ég að leita mér að naglalakki í stíl við fótsnyrtinguna sem ég fékk mér í morgun.“ Eva sagðist ekki ætla að nýta útsölurnar til að kaupa jólagjafirnar, enda væri mjög langt í jólin. Jólagjafakaup í júlí n Hagsýnir viðskiptavinir athugið Margir nýta tækifærið og byrja á jólagjafakaupum á sumarútsölum. Því fylgja bæði kostir og gallar. Kostirnir eru þeir að á útsölunum færðu vörur á töluvert lægra verði en í jólaösinni í desember. Einnig er gott fyrir sálarlífið að vera hagsýnn og eiga ekki eftir að kaupa allar gjafirnar korteri fyrir jól. Hins vegar fylgja hagsýninni nokkrir gallar. Skilafrestur verður til að mynda löngu runninn út þegar gjöfin verður opnuð á aðfangadag og því þarf að vanda valið vel. Barnabörnin gætu tekið vaxtarkipp í október og passa því ekki lengur í klæðin sem keypt voru sumarið áður. Því er gott að hafa í huga að kaupa frekar of stór föt á börnin í stað þess að reyna að hitta á rétta stærð. Ódýrt fyrir heimilið Undir 100 krónum í IKEA Útsalan er einnig í full- um gangi í IKEA en þar má finna ýmslegt nytsamlegt fyrir heimilið á góðu verði. Sjaldgæft er núorðið að fá eitthvað á undir hund- rað krónum en það er hægt í IKEA. Þar er til dæmis hægt að fá garðkönnu á 45 krónur, mjúkdýr fyrir börn- in á 95 krónur og drykkj- arkönnur, diska, skálar og ísmolabakka á 95 krónur. Einnig er hægt að fá húsgögn á góðu verði. Sem dæmi má nefna tveggja sæta sófa sem kostaði áður 179.900 krónur en kostar nú 129.900 krónur, rúmgrind á 17.950 krónur en kostaði áður 30.950 krónur og fallegan skenk sem hefur lækkað um tíu þúsund krónur og kostar nú 29.950 krónur. Garðhúsgögn á afslætti í Rúmfatalagernum Útsölur eru mjög árstíða- bundnar. Á sumarútsöl- um er yfirleitt hægt að gera bestu kaupin á sumarvör- um á borð við reiðhjól, golf- vörur og sumarfatnað. Í Rúmfatalagernum er til að mynda 40–50 prósenta af- sláttur af öllum garðhús- gögnum og sessum. Hægt er að fá garðhúsgagnasett, sem inniheldur borð, fjóra stóla og sessur, á 79.990 krónur en það kostaði áður 129.990 krónur. Húsgögn eru einnig með miklum af- slætti hjá Rúmfatalagernum en Dixie-tungusófinn þeirra hefur til að mynda lækkað um hundrað þúsund krónur og kostar nú 129.950 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.