Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 27
Vikublað 15.–17. júlí 2014 Lífsstíll 27 S amkvæmt nýrri rannsókn offita ekki skammtastærð að kenna. Í rannsókninni kemur fram að þótt Bandaríkjamenn séu mun þyngri í dag en þeir voru árið 1988 sé það ekki vegna þess að þeir borði meira í dag. Ástæðan sé sú að þeir sitji meira í dag en áður. Í ljós kom að kalóríuinntaka hefur verið nánast sú sama frá ár- inu 1988 til 2010. Hins vegar hækk- aði tala þeirra sem sögðust ekk- ert hreyfa sig úr 19 prósentum upp í 52 prósent á meðal kvenna og úr 11 prósentum í 43 prósent á meðal karla. Þetta kemur fram í Los Ang- eles Times. Aðrir vísindamenn hafa gagn- rýnt rannsóknina og segja kalóríu- fjölda vissulega skipta máli. „En við verðum að skoða hreyfinguna líka. Vandamálið liggur ekki aðeins í matnum. Ótrúlegur fjöldi hreyfir sig aldrei, keyrir í vinnuna og vinn- ur sitjandi.“ Hlutfall of þungra einstaklinga á tímabilinu hækkaði úr 25 prósent- um í 35 prósent á meðal kvenna og úr 20 prósentum upp í 35 prósent á meðal karla. Ritstjóri tímaritsins American Journal of Medicine seg- ir baráttuna við offitu alls ekki svo einfalda að það dugi að segja fólki að standa upp úr sófanum. „Ef all- ur tími og orka fólks fer í að þræla fyrir kaupi svo fjölskyldan geti lifað mannsæmandi lífi er ekki skrítið að hreyfing og líkamsrækt sitji á hakan- um.“ Í viðtali við Guardian tjáir sér- fræðingur hjá World Obesity Feder- ation sig um rannsóknina. Hann segir matarvenjur þurfa að breyt- ast í takt við kyrrsetulífsstíl nútím- ans. „Þótt það sé hægt að auka við hreyfingu svo hún vegi á móti matn- um sem þú borðar er það allt ann- að en auðvelt. Skilaboðin verða enn þá að vera „minnkaðu kalóríufjöld- ann“ eða kannski enn frekar, „láttu kalóríufjöldann vega á móti hreyf- ingunni“.“ n indiana@dv.is Ekki skammtastærð að kenna Kyrrseta er stærsti þátturinn þegar kemur að offitu Ipad er líka fyrir ketti n Forrit fyrir afþreyingu katta n Ekki bara fyrir mannfólk Þ eir sem eiga ketti líta gjarn- an á þá sem börnin sín og vilja þeim allt það besta. Mannfólk vill því eft- ir fremsta megni að kettir þeirra njóti lífsins og hafi gaman af tilvist sinni. Í heimi þar sem tækni er orðin helsta afþreying mannfólks- ins, er engin ástæða til að gera ketti undanskilda. Til er fjöldinn allur af forritum í Ipad sem eru hugsaðir fyr- ir ketti, eða forrit sem bæði mann- fólk og kettir hafa gaman af. 1 Magic Piano Forritið Magic Piano var uppruna- lega búið til fyrir mannfólk en hefur notið mikilla vinsælda meðal katta. Hægt er að stilla á mörg lög og setja á ýmsar stillingar þar sem smádrop- ar flökta um skjáinn fyrir kisurn- ar að ná. Einnig er hægt að stilla á hefðbundna píanóstillingu og getur kötturinn búið til skemmtilegt lag með því að ýta á takkana. 2 Cat fishing 2 Friskies hef-ur gefið út nokkur forrit sem sérstaklega eru ætluð köttum. Cat fishing 2 er afar einfaldur og hentar fyrir hvaða kött sem er. Fiskar í skær- um litum synda um skjáinn og það er verkefni kattarins að ná þeim til þess að safna stigum. Friskies held- ur úti alþjóðlegri samkeppni þar sem kettirnir með mesta stigafjöld- ann fá verðlaun. Það sinnir þó frekar keppnisskapi eigenda, enda eru veraldlegar samkeppnir ekki efstar í huga katta dagsdaglega. 3 Happy Wings Happy Wings er einnig gert af Friskies og sérstaklega fyrir ketti. Kötturinn hefur takmarkaðan tíma í hverju borði til þess að ná fyrirbærun- um sem fljúga yfir skjáinn eins oft og hann getur. Í hverju borði kem- ur nýtt fyrirbæri, ýmist skordýr eða fugl. Í hvert sinn sem kötturinn snertir fyrirbærið fyllist skjárinn af glimmeri sem kisa á til með að finn- ast afar spennandi. 4 Game for Cats Þetta forrit inniheldur í raun tvo leiki með möguleika á fleirum. Fyrsti leik- urinn inniheldur laserljós sem fær- ist yfir skjáinn svo kötturinn geti elt. Í seinni leiknum eltir kötturinn mús um skjáinn. Ef það nægir ekki, er hægt að borga 2 dollara til þess að fá aðgang að fleiri borðum. Ef köttur- inn fær fljótt leiða á leikjunum er þetta forrit tilvalið fyrir fjölbreytni. Kósí Músaborðið í Game for Cats er skemmtilegt. Magic Piano Þessi leggur allt undir í Magic Piano. Stórsniðugt Ýmis spjaldtölvuforrit eru sérhönnuð fyrir ketti. www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu VILTU YNDIS- LESTUR? Spaugileg, pirrandi og ástrík samskipti NOTALEG SUMARLESNING ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.