Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Side 28
Vikublað 15.–17. júlí 201428 Lífsstíll Þ egar Anna, sem átti Fríðu frænku, hvíslaði því að mér og eiginkonu minni, Haf- dísi Þorleifsdóttur, að hús- ið væri til sölu þá vissi ég bara að við yrðum að opna Stof- una hérna,“ segir Haukur Ingi Jóns- son, einn eigenda Stofunnar, sem nýlega var opnuð í Hlaðvarpan- um þar sem verslunin Fríða frænka var áður. Auk Hauks og Hafdísar eiga þau Ása Dýradóttir og Ragn- ar Hrólfsson hlut í Stofunni. Þau hafa unnið hörðum höndum að því undanfarna mánuði að gera hús- næðið kaffihúsavænt. Nýttu gamalt byggingarefni „Þetta voru tveir mánuðir í hreinni byggingarvinnu,“ segir Ragn- ar. Gólfið var styrkt töluvert, veggir rifnir niður og sett upp klósett og eldhús svo eitthvað sé nefnt. Við endurbæturn- ar var mikið endurnýtt af því byggingarefni sem rifið var niður. „Borðin eru til dæmis gólfþjalir úr risinu sem voru sagaðar niður og pússaðar og síðan gerðar að borðplöt- um,“ segir Ragnar. „Panellinn á veggjunum eru svo fjalirn- ar úr loftinu þannig að flest byggingarefnið er úr húsinu sjálfu,“  segir Ragnar. „Síðan komu í ljós þessir múrstein- ar undir veggjunum þegar við rifum þá niður og við leyfðum þeim að halda sér,“ segir Hauk- ur og bendir á múrsteinana á veggnum. Mublur með sál Stemningin á Stofunni er einkar heimilisleg og skemmtileg og hana prýða gamlar mublur með sál. „Við erum búin að vera út um allan bæ, á nytjamörkuðum, Bland. is og svo er fullt af þessu líka frá Fríðu frænku sem var hér áður í hús- inu,“ segir Haukur en þau leggja mikið upp úr að hafa stemninguna nota- lega. Margir fastakúnnar Búið er að vera fullt út úr dyrum síðan opnað var á nýja staðnum. „Við ákváðum bara að opna þótt það væri ekki alveg allt tilbúið og við höf- um ekki verið með neitt formlegt opnunarpartí enn þá en þetta gekk allt vonum framar,“  segir Hauk- ur. „Eiginlega miklu betur en við bjuggumst við, það er búið að vera fullt út úr dyrum síðan við opnuð- um. Það er þrefalt meira að gera eiginlega,“ segir Ása. „Það er fullt sem við höfum ekki haft tíma til að klára en það er bara gott og kemur bara,“ bætir Haukur við. Fjölmargir fastakúnnar fylgdu yfir á nýja staðinn. „Þeir komu með okkur, reyndar fluttu þeir sjálfir sum húsgögn yfir og svo eru komn- ir alveg rosalega margir nýir kúnn- ar,“ segir Ragnar. Draugagangur Húsið sem hýsir Stofuna var byggt um miðja nítjándu öld og hef- ur hýst ýmsa starfsemi. Er enginn draugagangur í húsinu? „Jú, en það eru góðir draugar!“ segir Ása og vís- ar í atvik sem hún lenti í á dögun- um. „Ég var fyrir utan og sá þá mann niðri, ég hélt að annar hvor þeirra væri kominn inn og ég kom inn rosa hress og kallaði hæ! En það var enginn inni, ég endaði með rör inni á baði því ég hélt það hefði ein- hver brotist inn en þá var enginn hérna,“  segir hún. „En það er bara góður andi hérna, það finna það allir sem koma,“ segir Haukur. n Heimilisleg stemning og smá draugagangur n Notaleg stemning á Stofunni í nýju húsnæði n Bara góðir draugar Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is „Þetta voru tveir mánuðir í hreinni byggingarvinnu. Endurnýtt Græni panellinn í loftinu er endurnýttur úr risi hússins. Mublur með sál Eigendurnir hafa verið á fullu út um allan bæ að sanka að sér gömlum húsgögnum með sál. Nóg um að vera Ása með súpuna sína sem er gerð eftir sérstakri leyniuppskrift. Heimilisleg stemning Eins og sést er stemningin heimilisleg enda lagt upp úr því við hönnunina. MyNDir Sigtryggur Ari Eigendurnir Ása, Haukur og Ragnar. Þau skipta með sér verkum og segja samstarfið ganga vel. Faldir múrsteinar Múrsteinarnir á veggjunum komu í ljós eftir að veggplötur voru rifnar af. Þeir voru pússaðir upp og gefa hlýlegt y firbragð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.