Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 30
Vikublað 15.–17. júlí 201430 Sport
HM 2014: Það besta og versta
n Eftirminnilegu stórmóti lokið n Mótið gert upp n Skúrkurinn, efnilegasti leikmaðurinn, leikur mótsins og besti leikmaðurinn
Skúrkurinn
Luis Suarez
n Augu margra fyrir mótið beindust að Luis Suarez, leikmanni Úrúgvæ, einum allra besta leikmanni heims í
vetur. Eins og flestum er kunnugt hefur Suarez gengið í gegnum súrt og sætt á undanförnum árum; staðið sig
frábærlega inni á vellinum en inn á milli misst stjórn á skapi sínu. Suarez hafði sýnt margar af sínum bestu hliðum
áður en að leiknum gegn Ítölum í lokaleik D-riðils kom. Hann skoraði til dæmis tvö mörk gegn Englendingum
sem að lokum fleyttu liðinu í 16 liða úrslit. Það vita allir hvað gerðist í leiknum gegn Ítölum. Hann var dæmdur í
fjögurra mánaða bann fyrir að bíta Giorgio Chiellini og hann missti af leiknum gegn Kólumbíu í 16 liða úrslitun-
um. Hann varð ekki bara sjálfum sér til skammar með hegðun sinni heldur gerði hann svo gott sem út um vonir
Úrúgvæ um að komast langt í keppninni.
Leikur
mótsins
Brasilía 1-7 Þýskaland
n Undanúrslitaleikur Brasilíu og
Þýskalands fór í sögubækurnar og
mun hans verða minnst um ókomna
tíð. Áður en að leiknum kom bjuggust
margir við jöfnum og spennandi leik
enda tvö stórlið að mætast. Þjóðverjar
höfðu ef til vill spilað betur en Bras-
ilíumenn á mótinu en þar sem Brassar
voru á heimavelli bjuggust margir við
því að liðið myndi bræða þýska stálið.
Raunin varð önnur – allt önnur. Staðan
eftir tæpan hálftíma var 5-0 fyrir
Þýskaland og fór svo að liðið landaði
ótrúlegum 7-1 sigri. Margir bráðfjörugir
leikir fóru fram á mótinu í ár en það er
einfaldlega ekki hægt að líta framhjá
þessum ótrúlega undanúrslitaleik.
Flopp
mótsins
Spænska landsliðið
n Spænska landsliðið eins og það
leggur sig fær þann heiður að vera
flopp mótsins. Heims- og Evrópumeist-
ararnir voru ólíkir sjálfum sér á mótinu
í Brasilíu og byrjuðu á að tapa 5-1 gegn
Hollandi. Á eftir fylgdi tapleikur gegn
Chile áður en liðið vann skyldusigur
á Ástralíu í lokaleik riðlakeppninnar.
Spænska liðið sat eftir í riðlinum með
sárt ennið og olli gríðarlegum von-
brigðum á mótinu. Stjörnur spænska
liðsins voru eins og sprungnar blöðrur
og sáu aldrei til sólar á mótinu.
Áhorfandinn
Axelle Despiegelare
n Margir litríkir stuðningsmenn settu svip sinn á
heimsmeistarakeppnina í Brasilíu. Einn vakti þó meiri
athygli en aðrir, en það var hin sautján ára Axelle
Despiegelare, stuðningsmaður belgíska landsliðsins.
Þessi unga stúlka var mynduð í bak og fyrir á áhorf-
endapöllunum á leikjum belgíska liðsins og fyrir helgi
bárust fréttir af því að henni hefði verið boðið fyrir-
sætustarf hjá snyrtivöruframleiðandanum L'Oreal.
Síðar bárust svo fréttir af því að L'Oreal hefði sagt
upp samningi sínum við hana. Hvað sem öllu þessu
líður var Axelle glæsileg á pöllunum í Brasilíu.
Litríkasti
þjálfarinn
Miguel Herrera
n Þjálfari mexíkóska landsliðsins, Miguel Herrera,
setti skemmtilegan svip á keppnina í ár. Þessi 46
ára fyrrverandi landsliðsmaður Mexíkó er ekki bara
öflugur þjálfari heldur einnig frábær karakter. Her-
rera fagnaði hverju einasta marki mexíkóska liðsins
innilega og voru fjölmörg skemmtileg myndbönd
sett á netið þar sem sjá mátti stuðið og stemn-
inguna hjá Herrera á hliðarlínunni. Mexíkóska liðið
kom nokkuð á óvart á mótinu og var mjög nálægt
því að slá hollenska liðið úr keppni í 16 liða úrslitum.
Tvö mörk frá Hollendingum á lokamínútum gerðu
þó út um drauma Herrera og félaga.
Athyglis-
verðasta
hárgreiðslan
Rodrigo Palacio
n Tískulöggur vissu vart hvort þær ættu að
hlæja eða gráta þegar þeir sáu hárgreiðsluna
sem Palacio bauð upp á í Brasilíu. Leikmaðurinn
mætti til leiks burstaklipptur en með langt hang-
andi, örþunnt, skott aftan í hnakkanum, öðrum
megin. Skottið var fléttað, svo úr varð einhver
sérkennilegasta hárgreiðsla sem sést hefur á
knattspyrnuvellinum lengi. Ólíklegt verður að
telja að hann hafi lært þetta á Ítalíu.
Versta
frammi staðan
David Luiz
n Frammistaða David Luiz á móti Þýskalandi verður lengi í
minnum höfð. Luiz hafði við hlið Thiago Silva átt frábært mót
og hafði vaxið í hverjum leiknum. En á móti Þýskalandi, í
undanúrslitum, brást allt sem brugðist gat. Luiz verður
ekki kennt um að leikurinn tapaðist 7-1 en hann var
engu að síður afleitur í vörninni. Hann var aldrei í
stöðu, var gjörsamlega á hælunum og var and-
lega ekki í neinu standi til að eiga við leikmenn
Þjóðverja. Hann gerði hver mistökin á fætur
öðrum og vissi það sjálfur, enda brast hann
í grát eftir leik, eins og margir liðsfélagar
hans. Erfitt var í þessum leik að sjá að Luiz
væri 50 milljón punda virði, en það er
kaupverðið sem PSG greiddi Chelsea fyrir
leikmanninn í sumar.