Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Síða 32
32 Menning Vikublað 15.–17. júlí 2014 Kaleo orðin að gulli Fyrsta plata íslensku hljómsveit- arinnar Kaleo er orðinn að gull- plötu en hún hefur selst í yfir 5.000 eintökum. Platan er sam- nefnd hljómsveitinni sem kemur frá Mosfellsbæ. Í henni eru fjór- ir ungir menn og urðu þeir fyrst vinsælir með tökulaginu Vor í Vaglaskógi. Hljómsveitin hefur spilað er- lendis en í maí á þessu ári fór Kaleo í tónleikaferð til Danmerk- ur, Eistlands og Lettlands. Kom sveitin meðal annars fram í ein- um stærsta sjónvarpsþætti Eista ásamt fjölda útvarpsþátta. Hlómsveitin er þegar byrjuð að vinna að næstu plötu og kem- ur smáskífa af þeirri tilvonandi plötu út núna í sumar. Glæpsamlega vannýtt risaeðlugeimvélmenni Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmynd Transformers: Age of Extinction IMDb 6,3 RottenTomatoes 17% Metacritic 32 Leikstjóri: Michael Bay Aðalhlutverk: Mark Wahlberg og Stanley Tucci Handrit: Ehren Kruger 165 mínútur M ark Wahlberg, sem áður hef- ur vingast við bæði apa og bangsa, þarf nú að takast á við geimvélmennin. Hann býr á bóndabæ ásamt Megan Fox þessa árs, en tvistið er að sú er ekki kærasta hans heldur dóttir. Uppeld- isaðferðir hans eru í anda talíbana og hann er misheppnaður uppfinninga- maður, sem kemur ekki frekar við sögu nema að einn bíllinn sem hann er að fást við reynist geimvélmenni. Um tíma virðist sem við séum hér komin með lágstemmda Trans- formers-mynd, enda tekur hún sinn tíma í að komast í gang. Áður en yfir lýkur er þó búið að leggja Hong Kong í rúst, og þarna er Michael Bay kom- inn eins og við þekkjum hann. Um tíma var ég undrandi yfir því hvers vegna Transformers-myndirn- ar uppskera svo mikið hatur gagn- rýnenda á meðan ofurhetjumyndir eru almennt lofaðar. Við hverju býst fólk eiginlega frá myndum sem eru byggðar á leikföngum frá 9. áratugn- um? Kannski er þetta vegna algers skorts á persónusköpun á alla bóga. Vélmennin eru öll þreytandi hörku- tól svo engan mun má sjá á milli, og mannlegu persónurnar ekki mik- ið skárri. Það er helst Stanley Tucci sem, eins og Alan Rickman í Robin Hood, gerir sér grein fyrir að hann er staddur í skelfilegri mynd og reyn- ir að hafa gaman af þessu. Öðru máli gegnir um Kelsey Grammer, sem er, ólíkt öðrum persónum hans, ill- menni sem er alveg laus við húmor. Eða kannski er það díalogurinn, sem fær mann á stundum til að óska þess að Transformers 4 væri þög- ul mynd. Eða kannski er það plottið, sem fer út um allt og vont fólk ger- ir eitthvað vont og gott fólk reyn- ir að þvælast fyrir þeim. Uppruna- sagan um útrýmingu risaeðlnanna lofar góðu en gleymist fljótt, og risa- eðlugeimverurnar, sem eru einn helsti sölupunkturinn hér, eru van- nýttar mjög. Við þurfum ekki að fara út í kynjapólitíkina, sem nær hápunkti sínum þegar faðir afhendir nýjum manni eignarhald yfir dóttur sinni. Síst af öllu áttar maður sig á því hvers vegna myndin er tveir og hálfur tími á lengd. Með svo langan sýningartíma hefði þurft að ráða dugandi hand- ritshöfund til starfa. Slagsmálasen- urnar eru þó, sem endranær, talsvert fyrir augað og Hong Kong er ágætis tilbreyting frá stórborgum Norður- Ameríku. Sem er jafnframt það frum- legasta við myndina. n Ný plata frá Grísalappalísu Hljómsveitin Grísalappalísa hef- ur vakið mikla athygli undanfar- ið. Hljómsveitin var að gefa út nýja plötu sem ber nafnið Rökrétt framhald. Nýtt lag af plötunni er komið í spilun á útvarpsstöðvum landsins en lagið ber nafnið Ný- lendugata-Pálsbæjarvör-Grótta og vísar til ósýnilegrar almenn- ingssamgönguleiðar. Samkvæmt fréttatilkynningu frá hljóm- sveitinni þá dregur textinn fram „mynd af mannlífinu við Reykja- víkurhöfn, skærlituðum skokkur- um, vinnuvélum etc.“ en lagið er óður til Bruce Springsteen. „Lifnar mikið yfir bænum“ n Listahátíðin LungA er í fullum gangi n Haldin í fimmtánda sinn M arkmið hátíðarinnar hefur frá upphafi verið að kynna menningu og listir fyr- ir ungu fólki,“ segir Aðal- heiður Lóa Borgþórsdótt- ir, framkvæmda- og fjármálastjóri Listahátíðarinnar LungA, í sam- tali við DV. Hátíðin, sem hófst um helgina, er nú haldin í fimmtánda sinn og mun Seyðisfjarðarkaupstað- ur iða af lífi og listum alla vikuna. Mikil aðsókn Aðalheiður er gjarnan kölluð „mamma LungA“, enda hefur hún staðið að skipulagningu listahá- tíðarinnar frá upphafi, en hátíðin var einmitt hugarfóstur hennar og dóttur hennar, Bjartar Sigfinnsdóttur. Að- alheiður segir aðsóknina á hátíðina aukast með hverju árinu. „Það seldist upp í listasmiðjurn- ar á fjórum dögum. Það hafa ver- ið endalausar fyrirspurnir og lang- ur biðlisti í smiðjurnar,“ segir hún og bætir við að fjölbreytileikinn sé mikill, en auk listasmiðjanna er boð- ið upp á svokölluð ungmennaskipti þar sem erlend ungmenni koma til landsins á vegum Evrópu unga fólks- ins til að taka þátt í LungA. „Í ár heitir verkefnið You, Me and Society og snýst um að skoða hvern- ig þú getur haft áhrif á þitt samfélag og hvernig samfélagið hefur áhrif á þig. Þátttakendur eru alls staðar að úr heiminum. Þetta er mjög breiður hópur og fólkið í ungmennaskipti- hópunum kemur frá listaháskólum víðs vegar um heim; Bretlandi, Nor- egi, Danmörku og Íslandi svo eitt- hvað sé nefnt.“ Breytilegt eftir árum Í ár er boðið upp á sjö smiðjur og kennir þar ýmissa grasa. Í smiðjunni RAFALVAF verður rafsorp til dæm- is skoðað í nýju ljósi og því fundinn nýr tilgangur. Þá verður boðið upp á danssmiðju, vídeósmiðju og gjörn- ingasmiðju svo eitthvað sé nefnt. „Venjulega er verið að fást við eitthvert grunnelement og listasmiðjurnar eru flestar byggðar upp þannig að það er mjög mikil til- raunamennska,“ útskýrir Aðalheiður. „Þetta er mjög breytilegt eft- ir árum og það er regla hjá okkur að hafa aldrei sama leiðbeinandann oft- ar en þrjú ár í röð, það er algjört há- mark. Og við skiptum þeim mjög oft út.“ Góð áhrif á bæjarlífið Hátíðinni lýkur með uppskeruhá- tíð og tónleikum á laugardaginn, þar sem fram koma Retro Stefson, Hermigervill, Moses Hightower, Cell 7, Sin Fang og Prins Póló. „Það er lögð áhersla á að vera svo- lítið í jaðrinum og kynna unga tón- listarmenn,“ segir Aðalheiður um tónlistarvalið en bætir við að þó séu gjarnan þekktari tónlistarmenn í bland við þá nýrri, líkt og nú er raun- in. „Yfirleitt er fullt hús á öllum við- burðum hátíðarinnar. Þetta eru um 3.500 til 4.000 gestir yfir alla vikuna og á laugardeginum hafa verið að koma um þúsund manns á lokatón- leikana.“ Aðalheiður segir hátíðina hafa góð áhrif á bæjarlífið á Seyðisfirði. „Þetta er mjög skemmtilegt og það lifnar mikið yfir bænum sem fyllist af ungu fólki.“ n Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is Listsköpun Í ár er boðið upp á sjö ólíkar listasmiðjur. MynD ALísA KALyAnoVA stuð og fjör Á laugardaginn lýkur hátíðinni með glæsilegum tónleikum. MynD ALísA KALyAnoVA Sirkusinn farinn vestur Sirkus Íslands hefur slegið í gegn undanfarið en um 9.500 manns hafa séð sýningar hóps- ins á Klambratúni undanfarn- ar þrjár vikur. Nú hefur Sirkus- inn pakkað saman og heldur á vit nýrra ævintýra. Næst er ferðinni heitið á Ísafjörð. Næstu áfanga- staðir þar á eftir eru Akureyri, Selfoss, Reykjanesbær og svo aftur Reykjavík. Sirkusinn sam- anstendur af 25 sirkuslistamönn- um sem ganga í öll störf er snúa að sirkusnum og eru sýndar þrjár sýningar; S.I.R.K.U.S, Heima er best og Skinnsemi – fullorðins- sirkus.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.