Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2014, Qupperneq 33
Menning Sjónvarp 33Vikublað 15.–17. júlí 2014
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Þriðjudagur 15. júlí
16.30 Ástareldur
17.20 Músahús Mikka (20:26)
17.40 Violetta (10:26) e
18.25 Táknmálsfréttir
18.35 Melissa og Joey 7,1 (1:21)
(Melissa & Joey IV)
Bandarísk gamanþáttaröð.
Stjórnmálakonan Mel situr
uppi með frændsyskini
sín, Lennox og Ryder, eftir
hneyksli í fjölskyldunni og
ræður mann að nafni Joe til
þess að sjá um þau. Aðal-
hlutverk leika Melissa Joan
Hart, Joseph Lawrence og
Nick Robinson.
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir Íþróttir dagsins í
máli og myndum.
19.35 Hefðarsetur (1:2) (Great
Houses with Julian
Fellowes)
20.25 Hið ljúfa líf (1:6)
20.45 Hefnd (1:13) (Revenge III)
Bandarísk þáttaröð um
unga konu, Amöndu Clarke,
sem sneri aftur til The
Hamptons undir dulnefninu
Emily Thorne með það
eina markmið að hefna
sín á þeim sem sundruðu
fjölskyldu hennar. Meðal
leikenda eru Emily Van
Camp og Max Martini.
21.30 Golfið (1:7) Í þáttunum
fjallar Hlynur Sigurðsson og
hinar ýmsu hliðar golfiðk-
unar á Íslandi.Dagskrár-
gerð: og Hlynur Sigurðsson
og Bendikt Nikulás Anes
Ketilsson.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Góða nótt, mín kæra
(1:3) (God natt, elskede)
Norskur sakamálaþáttur
um mann sem verður vitni
að morði en í stað þess að
afhenda lögreglu málið
tekur hann það í sínar eigin
hendur. Aðalhlutverk: Gard
B. Eidsvold, Stig Henrik
Hoff og Linn Skåber. Atriði í
þátttunum eru ekki við hæfi
ungra barna.
23.20 Víkingarnir 8,6 (8:9) (The
Vikings) Ævintýraleg og
margverðlaunuð þáttaröð
um víkinginn Ragnar
Loðbrók, félaga hans og
fjölskyldu. Aðalhlutverk:
Travis Fimmel, Clive
Standen og Jessalyn Gilsig.
Leikstjóri: Michael Hirst.
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi ungra barna. e
00.05 Leynimakk (3:4) (Hidden)
Breskur sakamálaflokkur
um lögmann sem þarf
að horfast í augu við
vafasama fortíð sína. Atriði
í þáttunum eru ekki við
hæfi barna. Meðal leikenda
eru Philip Glenister, Thekla
Reuten, Anna Chancellor og
David Suchet. e
01.05 Fréttir Endursýndar
Tíufréttir.
01.15 Dagskrárlok
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
07:00 Pepsímörkin 2014
08:15 Pepsímörkin 2014
14:55 Pepsí deildin 2014
(Stjarnan - FH)
16:45 Pepsímörkin 2014
18:00 Sumarmótin 2014
18:40 KR - Celtic B
21:00 IAAF Diamond
League 2014
23:00 KR - Celtic
13:45 HM 2014 (Brasilía -
Kólumbía)
15:25 HM 2014 (Argentína - Sviss)
17:45 Premier League Legends
18:15 HM 2014 (Leikur um 3.
sætið)
20:05 HM 2014 (Úrslitaleikur)
22:00 HM Messan
23:00 Premier League Legends
23:30 Football Legends
23:55 HM Messan
17:45 Strákarnir Sveppi, Auddi
og Pétur halda uppteknum
hætti og sprella sem aldrei
fyrr með óborganlegum
uppátækjum.
18:15 Friends (5:24)
18:40 Seinfeld (8:22)
19:05 Modern Family (8:24)
19:30 Two and a Half Men (3:24)
19:50 Léttir sprettir
20:10 Hæðin (2:9)
21:00 Breaking Bad
21:50 Rita (8:8)
22:30 Lærkevej (6:12)
23:10 Chuck (2:22)
23:55 Cold Case (11:23)
00:40 Léttir sprettir
01:00 Hæðin (2:9)
01:50 Breaking Bad
02:35 Rita (8:8)
03:15 Lærkevej (6:12)
03:55 Tónlistarmyndbönd frá
Popptíví
12:00 Straight A's
13:30 Working Girl
15:20 13 Going On 30
17:00 Straight A's
18:30 Working Girl Skemmtileg
gamanmynd um Tess
McGill sem er einkaritari og
staðráðin í að nota gáfur
og hæfileika til að afla sér
fjár og frama. En yfirmaður
hennar, glæsikvendið
Katherine Parker, er
útsmogin og hikar ekki
við að leggja stein í götu
stúlkunnar. McGill er hins
vegar stúlka sem lætur ekki
slá sig út af laginu.
20:20 13 Going On 30
22:00 The Lucky One
23:40 Wanderlust
01:20 Another Earth
02:55 The Lucky One
18:35 Romantically Challenged
19:00 Grand Designs (12:12)
19:50 Hart Of Dixie (22:22)
20:35 Pretty Little Liars (21:25)
21:15 Nikita (22:22)
22:00 Terminator: The Sarah
Connor Chronicles (7:22)
22:45 Revolution (19:22)
23:30 Tomorrow People (21:22)
00:10 Grand Designs (12:12)
01:00 Hart Of Dixie (22:22)
01:45 Pretty Little Liars (21:25)
02:25 Nikita (22:22)
03:10 Terminator: The Sarah
Connor Chronicles (7:22)
03:55 Tónlistarmyndbönd frá
Popptíví
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (8:24)
Endursýningar frá upphafi
á þessum sívinsælu gam-
anþátttum um Ray Barone
og furðulegu fjölskylduna
hans.
08:25 Dr. Phil
09:05 Pepsi MAX tónlist
16:35 Design Star (1:10)
17:20 Dr. Phil
18:00 Katie The Science of
Seeing Framhald af
heimildamynd um Katie
sem varð fyrir fólskulegri
sýruárás. Læknar hafa
þegar unnið kraftaverk á
andliti hennar en flóknara
gæti reynst að veita henni
sjón á nýjan leik. Nýjustu
tækni í augnlækningum var
beitt til að fá sem besta
niðurstöðu.
18:50 Kirstie (1:12)
19:15 Men at Work (1:10) Þræl-
skemmtilegir gamanþættir
sem fjalla um hóp vina sem
allir vinna saman á tímariti
í New York borg. Þeir lenda
í ýmiskonar ævintýrum
sem aðallega snúast um
að ná sambandi við hitt
kynið. Tyler kemur með
þá snilldarhugmynd að
skapa hina fullkomnu konu
fyrir Milo með því að hjálpa
honum að finna ástina á
netinu. Gibbs kynnist nýrri
hlið á Neal.
19:40 Happy Endings (5:22)
Bandarískir gamanþættir
um vinahóp sem einhvern-
veginn tekst alltaf að koma
sér í klandur. Það er róman-
tík í loftinu en það er erfitt
að líta vel út þegar maður
þarf að vera með hjálm út
af nýlegum heilahristingi.
20:05 30 Rock (3:22)
20:30 Catfish (4:12)
21:15 King & Maxwell (1:10)
22:00 Nurse Jackie (4:10)
22:30 Californication (4:12)
23:00 The Tonight Show
23:45 Royal Pains (13:16)
00:35 Scandal (3:18) Við höldum
áfram að fylgjast með
fyrrum fjölmiðlafulltrúa
Hvíta hússins Oliviu Pope
(Kerry Washington) í þriðju
þáttaröðinni af Scandal.
Fyrstu tvær þáttaraðirnar
hafa slegið í gegn og
áskrifendur beðið eftir
framhaldinu með mikilli
eftirvæntingu. Scandal
þættirnir fjalla um Oliviu
sem rekur sitt eigið al-
mannatengslafyrirtæki og
leggur hún allt í sölurnar til
að vernda og fegra ímynd
hástéttarinnar. Vandaðir
þættir um spillingu og yfir-
hylmingu á æðstu stöðum í
Washington.
01:20 Nurse Jackie 7,6 (4:10)
Margverðlaunuð bandarísk
þáttaröð um hjúkrunar-
fræðinginn og pilluætuna
Jackie.
01:50 Californication (4:12)
02:20 The Tonight Show
03:05 Pepsi MAX tónlist
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:25 Extreme Makeover:
Home Edition (17:26)
09:10 Bold and the Beautiful
09:30 Doctors (15:175)
10:10 The Wonder Years (16:24)
10:35 The Middle (9:24)
11:00 Á fullu gazi
11:35 The Newsroom (5:10)
12:35 Nágrannar
13:00 Cold Feet (7:7)
13:50 American Idol (8:39)
14:35 Covert Affairs (15:16)
15:30 Sjáðu
16:00 Frasier (4:24)
16:20 The Big Bang Theory 8,7
(1:24) Stórskemmtilegur
gamanþáttur um Leonard
og Sheldon sem eru af-
burðasnjallir eðlisfræðingar
sem vita nákvæmlega
hvernig alheimurinn virkar.
Hæfileikar þeirra nýtast
þeim þó ekki í samskiptum
við annað fólk og allra síst
við hitt kynið.
16:45 How I Met Your Mother 8,6
(5:24) Sjöunda þáttaröðin
um þau Lily, Robin, Ted,
Marshall og Barney og
söguna góðu af því hvenig
Ted kynntist barnsmóður
sinni. Vinirnir ýmist styðja
hvort annað eða stríða, allt
eftir því sem við á.
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Pepsímörkin 2014
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:06 Veður
19:15 Back in the Game (4:13)
19:35 2 Broke Girls (5:24)
20:00 Heimur Ísdrottningarinnar
20:25 Anger Management
20:50 White Collar (6:16)
21:35 Orange is the New Black
22:35 Burn Notice (6:18)
23:20 Dallas (7:15)
00:05 Mistresses (5:13)
00:50 Believe (13:13)
01:35 Enlightened (2:10)
02:05 Bones (3:24)
02:50 Fringe (15:22)
03:35 Wrath of the Titans
Spennandi ævintýramynd
frá 2012 með Liam Neeson,
Ralph Fiennes, Bill Nighy og
Sam Worthington í aðal-
hlutverkum. Perseus, hinn
mannlegi sonur Seifs, hefur
reynt sitt besta til að draga
sig í hlé og lifir nú rólegu lífi
í litlu sjávarþorpi. Á meðan
hefur ólgan á milli guðanna
og risanna farið vaxandi á
ný og það er valdabarátta
í aðsigi.
05:10 How I Met Your Mother
05:35 Fréttir og Ísland í dag
Fréttir og Ísland í dag
endursýnt frá því fyrr í
kvöld.
Tökur á Blóðbergi hefjast í ágúst
Vesturport framleiðir kvikmynd Björns Hlyns
Listrænt
bootcamp í
Tjarnarbíói
Standa fyrir opinni sviðsþjálfun einu sinni í viku
Í
meðgöngu verður maður að
ganga í níu mánuði þangað til
barnið verður til, og það sama
gildir um sviðslistir, allt þarfnast
undirbúnings,“ segir Hrefna Lind
Lárusdóttir, sem nú stendur fyrir op-
inni sviðsþjálfun í Tjarnarbíói einu
sinni í viku. Verkefnið nefnist Sam-
ferða og er samstarfskona hennar
Halldóra Mark, sem er nýútskrifuð
úr Kvikmyndaskólanum.
Yfirstíga hindranir
„Þessi þjálfun sem við erum að
standa fyrir er ákveðin grunnvinna
til þess að búa til leikverk. Við sköp-
um rými fyrir leikarann til þess að
yfirstíga hindranir sínar, skapa flæði
milli hugar og líkama, gefa leikar-
anum tækifæri á því að leyfa sam-
félagslegum grímum að renna af
sér og komast sem næst sjálfum sér,
hlusta á frumhvatann og bregðast
við augnablikinu,“ segir Hrefna sem
sjálf lærði í Boulder í Colorado, en
er á leið til starfa í New York. Hall-
dóra er hins vegar að læra að verða
kundalini-jógakennari og kenn-
ir líka í hinum nýstofnaða Sirkus
Reykjavíkur.
Þær hafa báðar sótt leikhóp
sem er staðsettur á bóndabæ í
Massachussettes og nefnist Dou-
ble Edge, en hópurinn sækir mjög
í kenningar pólska leikstjórans
Grotowski. Trausti Ólafsson kenn-
ir leikhúsfræði við Háskóla Íslands,
meðal annars kenningar Grotowski,
og lætur sig ekki vanta í Tjarnarbíó.
Hann hefur einnig verið á námskeiði
Double Edge:
„Þegar ég var í sveitinni lærði ég
hvað gerist þegar maður yfirstígur
hindranir. Ég var hjá aðalleikkonu
Grotowskis sem er nú orðin 78 ára
gömul. Við vorum lokuð inni í hlöðu
klukkutímum saman og ég upplifði
hvernig röddin frelsaðist.“
Hrefna segir sömu sögu: Ég
heyrði rödd sem ég hafði aldrei
heyrt áður og vissi ekki að væri hluti
af sjálfri mér.“
Jóga og leiklist
Bæði Hrefna og Halldóra stunda
jóga, en Grotowski sótti einmitt mik-
ið í austrænar hugmyndir.
„Hugleiðsla og jóga snýst um að
hugurinn verði kyrr og elti kyrran
líkamann, en hér er það öfugt, lík-
aminn á að elta hugann,“ segir Hr-
efna. Og hér er allt gert í hópum.
„Maður sér sitt rétta sjálf, en ekki
aðeins hugmyndina um sjálfan sig,
með því að tengjast annarri mann-
eskju.“
„Ég næ líka flæði í hversdagsleik-
anum með því að hafa verið í þessari
þjálfun,“ bætir Halldóra við. „Ég verð
„spontant“ og sjálfsörugg, ég fer að
treysta öðrum fyrir mér og fer sjálf-
krafa að hjálpa öðrum.“
„Dagsdaglega er maður svo upp-
tekinn af því að segja og gera ekki
eitthvað vitlaust, en svo kemst mað-
ur að því að það er bara allt í lagi,“
segir Trausti.
„Eftir lengri tíma þá fer leikarinn
að slaka meira á, treystir sjálfum sér
og mótleikaranum betur,“ segir Hr-
efna, „og saman upplifur hópurinn
eitthvað nýtt og stundum mynd-
ast svokölluð töfraaugnablik þar
sem hvorki leikendur né áhorfend-
ur vita hvað gerist næst, enda þurfa
þeir það ekki því allir eru fyllilega
til staðar í rýminu. Markmiðið með
þjálfuninni er að koma hópnum á
þann stað að þessi augnablik geti átt
sér stað.“ Hrefna hefur einnig unnið
út frá leikbókmenntunum, svo sem
Shakespeare í stykkjatali sem var
sýnt á ArtFart árið 2010.
Kynntust í frystiklefa
Hrefna og Halldóra kynntust í frysti-
klefa á Snæfellsnesi á hátíðinni Rifi,
en sóttu síðan um að vera með nám-
skeið í Tjarnarbíói þar sem starfsem-
in hefur verið með miklum blóma
undanfarið. Á hverjum miðvikudegi
klukkan sex er opið hús þar sem
gestir og gangandi fá að taka þátt,
og það er ótrúlegt til þess að hugsa
að sumir hérna hafi komið beint inn
af götunni, svo samstilltur er hópur-
inn. 15 manns koma að jafnaði, þar
af helmingur nýr í hvert sinn.
Felix frá Þýskalandi er einn
þeirra sem hafa rambað inn þenn-
an daginn, hann er nýbúinn að klára
leiklistarskóla í Köln og langaði til að
sjá eitthvað á sviði hér. „En þetta var
enn betra,“ segir hann.
„Litla barnið í mér vill vera með,
og það er gaman að leyfa öðrum að
vera með,“ segir Halldóra. „Hér er að
verða til vísir að samfélagi.“ Það er
miklu styttra í barnið í fólki en marg-
ur heldur,“ segir Trausti.
Listrænt bootcamp
Svokallað Sleepover verður haldið í
stóra salnum hinn 25. júlí sem byrj-
ar á miðnætti þar sem fólk getur
mætt og stokkið inn í þjálfun, og það
verða líka myndbönd og hljóðverk.
Auðunn Lúthersson sér um tón-
listina. „Þetta verður nokkurs kon-
ar listrænt bootcamp,“ segir Hrefna.
„Og svo er þetta miklu betra en að
mæta í ræktina,“ bætir Halldóra við.
n valurgunnars@gmail.com
„Maður sér sitt
rétta sjálf,
en ekki aðeins hug-
myndina um sjálfan
sig, með því að tengjast
annarri manneskju
Leikið
Skemmtileg
upplifun. MYND
GABRIELLE MOTOLA
T
ökur á fyrstu kvikmynd Björns
Hlyns Haraldssonar, Blóð-
berg, hefjast hinn 5. ágúst
næstkomandi. Þær Rakel
Garðarsdóttir og Ágústa M. Ólafs-
dóttir framleiða myndina fyrir Vest-
urport í samvinnu við 365 miðla og
Pegasus. Erlingur Cassata stjórnar
kvikmyndatökum og Lilja Snorra-
dóttir hjá Pegasus meðframleiðir.
Handritið byggist á fyrsta leik-
riti Björns Hlyns, Dubbeldusch, sem
Vesturport sýndi við miklar vinsæld-
ir fyrir nokkrum árum.
Myndin er gamansöm með alvar-
legum undirtón um venjulegt fólk
í mjög óvenjulegum aðstæðum.
Myndin fjallar um hefðbundna ís-
lenska fjölskyldu sem býr í úthverfi
Reykjavíkur. Fjölskyldufaðirinn
skrifar sjálfshjálparbækur til hjálpar
samlöndum sínum á meðan móð-
irin vinnur sem hjúkrunarfræðing-
ur á spítala og bjargar mannslífum.
En hvorugt þeirra hefur kjark til að
bjarga sjálfu sér. Þó að allt virðist slétt
og fellt á yfirborðinu þá býr undir
niðri gamalt leyndarmál sem bankar
einn daginn upp á og þá breytist allt.
Myndin verður öll tekin á Reykja-
víkursvæðinu og í henni verða stór-
ar hópsenur sem vantar fjölda
aukaleikara í. Þeir sem hafa áhuga
á því að leika í myndinni geta sent
mynd á blodberg@vesturport.is og
fylgst með á www.vesturport.com. n
Blóðberg Björns Hlyns Myndin byggist
á fyrsta leikriti Björns Hlyns, Dubbeldusch.