Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 2
Helgarblað 18.–21. júlí 20142 Fréttir Lögbann á gjaldtöku Sýslumaðurinn á Húsavík hefur lagt lögbann við gjaldtöku við Leirhnjúk og hverasvæðið austan Námaskarðs. Sautján aðilar eiga hlut í Landeigendafélaginu í Reykja- hlíð. Hluti þeirra, alls sjö að- ilar, fór fram á að gjaldtakan yrði stöðvuð á svæðinu en hún hófst um miðjan júní. Taka átti gjald við Dettifoss, á hverasvæði austan Námaskarðs og við Leir- hnjúk. Fallið var frá áformum um gjaldtöku við Dettifoss eftir að samningar náðust við Vatnajök- ulsþjóðgarð um uppbyggingu við Dettifoss. Félög al-Thanis gjaldþrota Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði á fimmtudag Q Iceland Finance og Q Iceland Holding, fjárfestingafélög í eigu Katarans Mohammed Bin Khalifa Bin Hamad al-Thani, gjaldþrota. Hið fyrrnefnda félag er það sem keypti rúm- lega fimm prósenta hlut í Kaupþingi stuttu fyrir hrun. Þau kaup voru ákæruefnið í svokölluðu al-Thani máli þar sem niðurstaðan var sú að kaupin voru einungis blekking og markaðsmisnotkun. Q Iceland Finance var í eigu Q Iceland Holding, en al- Thani situr í stjórn þess ásamt viðskiptafélaga sínum. Ósk- uðu þeir eftir því í Héraðs- dómi Reykjavíkur á miðviku- dag að félögin yrðu tekin til gjaldþrotaskipta Samkvæmt nýjasta ársreikningi Q Iceland Finance, frá árinu 2012, skuld- aði félagið sex milljarða og 750 milljónir króna. Skilanefnd Kaupþings samdi um skuldauppgjör við al-Thani í febrúar í fyrra. Efni samningsins hefur ekki verið opinberað og er hann sagður vera trúnaðarmál. S ilja Dögg Gunnarsdóttir, þing- kona Framsóknarflokksins, er ekki tilbúin að lýsa yfir stuðn- ingi við Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, ráðherra samstarfsflokksins í ríkisstjórn. „Ég ætla ekki að tjá mig um þetta, en mér finnst mjög óheppilegt að ráðuneyti yfir höfuð sé til lögreglu- rannsóknar,“ segir hún í samtali við DV og bætir við: „Það er þingflokks- fundur eftir einhverjar vikur og þá verður þetta kannski rætt. Það er ansi leiðinlegt hvernig málin í ráðuneyti Hönnu Birnu hafa þróast.“ Silja Dögg segist ekki vita hvað hún myndi sjálf gera ef hún væri í sömu stöðu og Hanna Birna. „Ég get ekki sett mig í hennar spor,“ segir Silja. Svör hennar eru frábrugðin þeim sem DV fékk nýlega frá Þorsteini Sæ- mundssyni og Willum Þór Þórssyni, þingmönnum sama flokks. Þorsteinn sagðist á miðstjórnarfundi Fram- sóknarflokksins ekki hafa áhyggj- ur af fordæminu sem er sett með því að ráðherra sitji áfram meðan ráðu- neyti sætir lögreglurannsókn. „For- dæmi lifa ekki endalaust,“ sagði hann og benti á að ekki væri hefð fyrir því á Íslandi að stjórnmálamenn öxluðu persónulega ábyrgð. Aðspurður hvað hann myndi gera í sporum Hönnu Birnu sagðist hann vera óviss, enda aldrei verið ráðherra. „En að sjálfsögðu myndi ég íhuga vel hvar ég væri staddur ef eitthvað svona lagað kæmi upp.“ Willum Þór sagðist telja að ef Hanna Birna væri ráðherra í Danmörku þyrfti hún að segja af sér. Aðrir siðir væru hins vegar við lýði á Íslandi. Þorsteinn og Willum voru óvissir um hvort Hanna Birna hefði sagt Alþingi satt um trúnaðarbrotið gagnvart hælisleitendunum og hugð- ust kynna sér málið betur. n Óviss hvort ráðherra sé sætt „Leiðinlegt hvernig málin í ráðuneyti Hönnu Birnu hafa þróast“ Silja Dögg Þingkona Framsóknarflokksins vill ekki taka afstöðu til þess hvort ráðherra samstarfsflokksins sé sætt í embætti. MynD HornafjorDur.iS Vildi drottningarviðtal við forstjóra Landsnets n Almannatengill bað um jákvæða umfjöllun S æll Bjarni. langaði að kanna möguleika á að koma for- stjóra Landsnets í „drottn- ingarviðtal“ í blaðinu 20. mars nk.“ Þannig hefst tölvu- póstur sem almannatengillinn Árni Þórður Jónsson, sem starfar hjá fyr- irtækinu Athygli ehf., sendi ritstjóra Viðskiptablaðsins fyrr á þessu ári. Af- rit af tölvupóstinum barst öllum fjöl- miðlum fyrir slysni. Í skeytinu lýsir almannatengill- inn því hvernig hann vill að viðtalið við Þórð Guðmundsson, forstjóra Landsnets, verði. Tilefnið var op- inn kynningarfundur fyrirtækisins á Hilton Nordica. „Ég sæi fyrir mér að mætti fara vítt um sviðið, taka afkomuna, 2,2 milljarðar hagnað- ur 2013, stöðuna almennt nú þegar styttist í að Landsnet verði 10 ára gamalt (1. jan. 2005),“ skrifar Árni og bætir við að mikil þörf sé á upp- byggingu til að anna orkuflutning- um austur og norður. Lítið hafi verið um nýframkvæmdir hjá Landsneti, enda standi styr um mörg verkefni. „Þetta eru bara nokkrir punktar – er af nægu að taka og hægt að kasta upp fleiri hugmyndum ef þetta myndi hugnast ykkur!“ Ekkert viðtal í blaðinu Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskipta- blaðsins, svaraði á þá leið að reynt yrði að „gera eitthvað úr þessu eftir helgi“. Villtustu draumar almanna- tengilsins rættust þó ekki, enda birtist ekkert drottningarviðtal við forstjóra Landsnets í prentútgáfu Viðskiptablaðsins þann 20. mars. Hins vegar mætti blaðamaður á kynningarfundinn og tók stutt viðtal við forstjórann sem birtist í mynd- bandsformi á vefnum sama dag. Þar kallaði forstjórinn eftir skýrri stefnumörkun stjórnvalda hvað varðar flutningskerfi og jarðstrengja- mál. Jafnframt sagði hann náttúru- verndarsamtök hafa gefið villandi upplýsingar um áform fyrirtækisins en var ekki látinn útskýra staðhæf- ingar sínar. Veitti ekki af jákvæðri umfjöllun Athygli ehf. er á meðal elstu og stærstu almannatengslafyrirtækja landsins og er Árni einn af eigend- um þess. Vart þarf að taka fram að fjölmiðlum berast reglulega frétta- tilkynningar, tölvuskeyti og símtöl frá almannatenglum og fyrirtækjum sem vilja bæta ímynd sína eða koma tilteknum skilaboðum á framfæri án þess að greiða fyrir auglýsingar. Hins vegar er ekki algengt að almanna- tenglar misstígi sig og sendi fjölda- póst þar sem óskað er eftir drottn- ingarviðtali. Landsnet er að stærstum hluta í eigu Landsvirkjunar og starfar sam- kvæmt sérleyfi og annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins á Íslandi. Fyrirtækið hefur staðið í hatrömmum deilum við landeigend- ur og náttúruverndarsamtök vegna lagningar raforkulína og veitti ekki af jákvæðri fjölmiðlaathygli á þess- um tíma. Þann 19. mars, daginn fyrir kynn- ingarfundinn, voru undirritaðir samningar á milli Landsvirkjunar, United Silicon hf. og Landsnets um kaup og flutning raforku vegna kísil- versins sem rísa mun í Helguvík. DV sendi almannatenglinum tölvupóst og gaf honum kost á að tjá sig um efni þessarar fréttar. Ekkert svar hafði borist þegar blaðið fór í prentun. n „Sæi fyrir mér að mætti fara vítt um sviðið Árni Þórður jónsson almannatengill Átti að vera drottning Þórður Guðmundsson er forstjóri Landsnets. Almannatengill bað Viðskiptablaðið um að taka drottningarviðtal við hann. MynD af VEf LanDSnEtS Deilt um línur Mikill styr hefur staðið um raflínulagnir Landsnets. jóhann Páll jóhannsson johannp@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.