Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 15
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Fréttir 15 þau eru að koma undir sig fótunum. Jessica segir ákveðinn létti fylgja því að vita að þau séu að fara. „Við værum löngu farin til Noregs ef við hefðum vitað að það ætti að draga okkur svona á asnaeyrunum,“ segir hún og heldur áfram: „Þegar ég kom hingað fyrst þá áleit ég Ísland eitthvert besta land í heiminum til þess að setjast að á. Síðar kom í ljós að hér mátti Matti ekki giftast þeirri sem hann vildi giftast. Síðan mátti hann ekki búa í landinu sínu með eiginkonu sinni. Þegar við fundum svo út að ég var ófrísk þá kom í ljós að það skipti engu máli þótt þetta væri barnið hans. Það er ekki bara ég – útlendingurinn – sem verð fyrir þessu, heldur virðist hann engu máli skipta og engin réttindi hafa.“ n Bensínstöðin seld á bak við tjöldin Forstjóri N1 neitar að skýra söluna á bensínstöðinni á Ægisíðu F élagið er keypt af KPMG, bara autt félag eins og gengur og gerist. Ég kaupi það af þeim og skrái á mig,“ segir Örn Valdimar Kjartans son, fram- kvæmdastjóri fasteignafélagsins FÍ. DV greindi frá því fyrir mánuði síð- an að félagið Ægisíða ehf. hefði fest kaup á bensínstöð N1 á Ægisíðu. Þá var greint frá því að endurskoð- endafyrirtækið KPMG væri skráður hluthafi félagsins en Örn Valdimar Kjartansson væri stjórnarmaður. Samkvæmt Erni er hins vegar um að ræða persónuleg kaup hans á húsnæðinu. Einu stjórnarmenn fé- lagsins Ægisíðu ehf. eru Örn og son- ur hans, Arnór Pálmi. Kaupverð er sagt vera 260 milljónir króna. Salan fór ekki fram í opnu ferli og seg- ist Eggert Benedikt Guðmunds- son, forstjóri N1, í samtali við DV ekki geta sagt frá því nákvæmlega hvernig það kom til að Örn Valdi- mar keypti húsnæðið. Bæði félög í eigu lífeyrissjóða Örn er, líkt og fyrr segir, fram- kvæmdastjóri FÍ en það félag er í eigu lífeyrissjóðanna. N1 er sömuleiðis í meirihlutaeign ým- issa lífeyrissjóða landsins. „Þetta er náttúrlega bara íbúðaverkefni, pæl- ingin er að hafa þarna íbúðarhús- næði. Ég starfa í fasteignasjóð sem eingöngu snýr að fjárfestingum í atvinnuhúsnæði í langtímaleigu og ekkert íbúðarhúsnæði leyft í því máli. Þannig að þessi kaup eru ekkert tengd lífeyrissjóðunum að neinu leyti. Fjárfestingarstefna FÍ fasteignafélags er opinber og ein- göngu einskorðuð við atvinnuhús- næði,“ svarar Örn Valdimar spurð- ur um hvort lífeyrissjóðirnir tengist kaupunum. Lífeyrissjóðir stórtækir á leigumarkaði atvinnuhúsnæðis Fasteignafélagið FÍ hefur verið gífur lega stórtækt á íslenskum fast- eignamarkaði nýverið og hefur keypt fjöldann allan af stórum húsakynnum víðs vegar um Reykja- vík. Má þar helst nefna kaup á húsi Íslenskrar erfðagreiningar, húsnæði heilsugæslunnar í Glæsibæ, Ár- múla 1 og húsnæði þar sem þýska sendiráðið og enska eru til húsa. Í gegnum félagið hafa lífeyrissjóð- irnir því nýverið stækkað umsvif sín umtalsvert á íslenskum leigumark- aði atvinnuhúsnæðis. „Það var bara ekki gert“ Athygli vekur að þrátt fyrir að vera í meirihlutaeigu lífeyrissjóða þá var bensínstöðin við Ægisíðu ekki seld í opnu ferli. Raunar bárust fyrst tíð- indi af sölunni þegar hún var til- kynnt til Kauphallarinnar. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, segist ekki geta sagt hvers vegna salan hafi ekki farið fram í opnu ferli. „Já, það er góð spurn- ing. Það var bara ekki gert,“ svarar hann spurður um hvers vegna það hafi ekki verið gert. „Nei, ég held að það borgi sig ekkert,“ svarar hann spurður um hvort hann geti skýrt betur hvernig salan fór fram. Salan ekki auglýst „Niðurstaðan var að selja þessa fasteign,“ segir Eggert. Spurður um hvort hafi komið á undan, tilboð Arnar eða ákvörðun um að selja bensínstöðina, segist Eggert ekki geta svarað því. Hann segir að N1 auglýsi ekki endilega sölu á fast- eignum. „Nei, þetta var ekki aug- lýst. Við auglýsum ekkert endilega svona hluti opinberlega. Það er svo sem lítið um það að segja opinber- lega, við erum búnir að segja að búið sé að selja þetta og það er ljóst að það var ekki auglýst. Það var gert á einhvern annan hátt.“ n „Við erum búnir að segja að búið sé að selja þetta og það er ljóst að það var ekki auglýst Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Forstjóri N1 Eggert segist ekki geta skýrt frá orsakasamhenginu bak við söluna á bensínstöðinni. Hann segist ekki vita hvers vegna salan var ekki auglýst. Eignin Bensínstöðin við Ægisíðu verður væntanlega rifin til að koma fyrir íbúðarhúsnæði. Söluverð er 260 milljónir króna. myNd Hörður SvEiNSSoNS Tengdur lífeyrissjóðum Örn Valdimar segir að kaupin á bensínstöðinni séu sín einkaviðskipti. Hann hyggst byggja íbúðar- húsnæði á reitnum. Fleiri hjónum sundrað DV hefur undanfarið greint frá útlendingum sem ekki hafa fengið dvalarleyfi hér á landi þrátt fyrir að þeir hafi verið giftir íslenskum ríkisborgurum. Í öllum tilvikum hefur verið um hælisleitendur að ræða og eru málin því ekki algjörlega sambærileg máli þeirra Matthíasar og Jessicu. Hins vegar er áhugavert hversu mörg slík mál hafa komið upp að undanförnu. Þannig má nefna að eiginmanni Dagnýjar Alberts- dóttur, Samuel Eboigbe Unuko frá Nígeríu, var nýlega synjað um dvalarleyfi á Íslandi. Dagný hefur beðið um endurupptöku á málinu en Samuel fer huldu höfði í Svíþjóð. „Mér er algjörlega misboðið, ég er alveg búin að fá nóg,“ sagði Dagný í samtali við DV á dögunum. Þá var Hassan Al Haj, eiginmanni Margrétar Láru Jónasdóttur, vísað til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar í maí þrátt fyrir að þau væru gift. Hann er enn úti í Svíþjóð. Þekktasta dæmið er eflaust Izekor Osazee frá Nígeríu, en hún var tekin frá eiginmanni sínum, Gísla Jóhanni Grétarssyni, og færð í fangageymslur lögreglu þar sem senda átti hana úr landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Sú ákvörðun vakti upp mikil og hávær mótmæli með þeim afleiðingum að hún var dregin til baka. Eiga von á barni Matthías Enok Hannesson og Jessica Jacobs eiga von á barni í haust. Þeim finnst eins og þau hafi verið dregin á asnaeyr- unum á milli stofnana ríkisins síðasta árið. myNd Hörður SvEiNSSoN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.