Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Síða 20
Helgarblað 18.–21. júlí 201420 Fréttir Erlent þriðja stórsóknin á gaza sex árum n Ísrael beitir hátæknihergögnum gegn Hamas n Þúsundir á flótta á Gaza n Yfir 200 látnir n Spurt og svarað um Hamas n Heil öld af átökum Þ að er ekki ósk okkar að gera almennum borgurum illt, en þeir sem eru nálægt hryðju- verkamönnum Hamas eru í mjög óöruggum aðstæð- um.“ Þetta lét talsmaður IDF, sem er skammstöfunin fyrir ísraelska herinn, hafa eftir sér þegar Ísrael hóf hernað- araðgerðir á Gaza fyrir rúmri viku. Þar með hófst nýr kafli í deilum Ísraels og Palestínu-Araba, sem hefur staðið yfir í um eina öld. Engin varanleg lausn virðist vera í sjónmáli á þessari deilu, sem í raun snýst að stórum hluta um landsvæði og landamæri sem færst hafa til í öllum þeim átökum sem geisað hafa á svæðinu. Líta á Hamas sem hryðjuverkamenn Ísraelsmenn líta á liðsmenn Hamas- samtakanna, sem stjórna Gaza, sem hryðjuverkamenn og Hamas viður- kennir ekki tilvist Ísraels. Og enn og aftur er Gaza-landræman (álíka stór og Reykjanesskagi) miðdepill átak- anna milli Ísraels og Palestínu-Araba, í því sem kallað hefur verið „stríð án endis“. Um tvær milljónir manna búa við slæman kost á Gaza, enda hefur svæðinu verið líkt við stærsta fangelsi jarðar. Hamas hefur stjórnað þar frá árinu 2007. Undanfarna daga hefur flugskeyt- um rignt yfir Ísrael frá Gaza og Ísrael hefur svarað með loftárásum, stór- skotaliðsárásum og síðdegis á sunnu- dag fór landher Ísraels inn á Gaza. Þar með má segja að Ísrael hafi ráðist inn í Gaza. Ísraelsmenn hafa gríðarlegt forskot á Hamas í þessum átökum, enda her Ísraels búinn nýtísku vopn- um, meðal annars eldflaugavarnar- kerfi sem við getum kallað „Járn- skjöldinn“. Með þessum græjum hafa Ísraelsmenn undanfarna daga skot- ið niður fjölda eldflauga sem skotið hefur verið yfir landamærin frá Gaza og hafa fjölmiðlar meðal annars sýnt hvernig gagneldflaugar Ísraels hafa sprengt eldflaugar Hamas á lofti. Ræturnar liggja í mannránum og morðum Átökin að þessu sinni eiga rætur sín- ar að rekja til mannráns og morða á þremur ísraelskum drengjum hinn 12. júní síðastliðinn á Vesturbakkan- um, sem að nafninu til er stjórnað af palestínskum yfirvöldum, sem eiga rætur sínar í Fatah-hreyfingunni og Frelsissamtökum Palestínu (PLO). Yassir Arafat var leiðtogi þeirra fram til dauðadags í nóvember árið 2004, en oft hefur verið grunnt á því góða á milli Hamas og þeirra sem stjórna á Vesturbakkanum og reyndar kom- ið til átaka á milli þeirra, eins kon- ar bræðravíga. Samtökin náðu þó að semja frið sín á milli í Katar árið 2012. Ísraelsmenn og gyðingar blandast svo inn í þetta allt saman og eiga þau átök sér langa sögu, eins og fjallað er um hér á opnunni. Leiðtogi Palest- ínu-Araba á Vesturbakkanum er Mahmoud Abbas, forseti Palestínu- manna. Ísraelsmenn hafa ásakað Ham- as um morðin á drengjunum en Hamas neitað staðfastlega. Strax eft- ir ránið handtóku Ísraelsmenn um 350 liðsmenn Hamas vegna máls- ins og þá strax létust fimm Palest- ínumenn. Síðan hafa átökin færst í aukana og nú hafa um 200 manns látist í þeim, þar af 17 einstaklingar í sömu fjölskyldunni í eldflaugaárás Ísraelsmanna á Gaza síðastliðinn laugardag. Vel á annað þúsund manna hafa særst. Þúsundir manna eru á flótta undan aðgerðum Ísraels- manna. Öllum möguleikum haldið opnum „Við erum að meta alla möguleika og undirbúa allar mögulegar að- gerðir,“ sagði Benjamin Netanyahu, forætisráðherra Ísraels, í sjónvarps- ávarpi til ísraelsku þjóðarinnar hinn Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Öld af endalausum átökum n Bretar gáfu gyðingum land í Palestínu n Hamas með eyðingu Ísraels á stefnuskránni R ekja má upphaf átakanna í Ísr- ael/Palestínu að minnsta kosti um eitt hundrað ár aftur í tím- ann, eða til þess sem kallað er „Balfour-yfirlýsingin“. Það var í nóvem- ber árið 1917 sem þáverandi utanríkis- ráðherra Breta, Arthur James Balfour, sendi bréf til síonistans og barónsins Walter Rothschild, sem var persónu- legur vinur Chaim Weiszman, sem síðar varð fyrsti forseti Ísraels. Í þessu bréfi lýsir Balfour, fyrir hönd bresku ríkisstjórnarinnar, yfir velþóknun sinni á stofnun ríkis gyðinga á landsvæði Palestínu. Bankamaðurinn Rothschild hafði barist ötullega fyrir stofnun ríkis gyðinga, enda sjálfur af gyðingaættum. Setja má sögu átakanna upp í tímalínu með eftirfarandi hætti, en fjölmörg- um mikilvægum atburðum er sleppt til styttingar. 1897 Síonísk hugmyndafræði lítur dagsins ljós sem andsvar við gyðingahatri, sem viðgengist hefur í árhundruð víða um heim. 1919– 1939 Mikill fjöldi gyðinga flyst til Palestínu og spennan magnast milli Araba og gyðinga. 2. Nóvember 1917 Bretar senda frá sér Balfo- ur-yfirlýsinguna. Arabar og gyðingar litu á þetta sem loforð um þjóðarheimili gyðinga í Palestínu. Bretar ná Palestínu af Tyrkjum. 1939– 1945 Sex milljón- ir gyðinga eru myrtar af nasistum í helförinni í seinni heimsstyrj- öld. 1964 PLO stofnað – samtök sem berjast fyrir frjálsri Palestínu og vilja eyða Ísrael. Yassir Arafat leiðir samtökin, sem standa meðal annars fyrir hryðjuverkum og flugránum. September 1978 – Friðarsáttmáli undirritaður milli Egypta og Ísraelsmanna. Löndin háðu stríð árið 1967 og 1973, en Ísrael vann þau bæði. 1987 Hamas-sam- tökin stofnuð og setja sér markmið að eyða Ísraels- ríki og frelsa hertekin svæði, þar á meðal Gaza og Vesturbakkann. 1993 Osló-sátt- málinn kemur á friði milli Ísraels og PLO. 2002 Ísraelsmenn ráðast inn á Vesturbakk- ann í kjölfar sjálfs- vígsárása á Ísrael. 1982 Ísraelar ráðast inn í Líbanon og hrekja PLO frá landinu. Maí 1948 Ísraelsmenn lýsa yfir stofnun Ísraelsríkis og Bretar yfirgefa Palestínu. Nágranna- löndin Egyptaland, Sýrland, Írak, Líbanon, Jórdanía og Sádi-Arabía lýsa yfir stríði á hendur Ísrael. Í þessum átökum stendur Ísrael uppi sem sigurvegari og höfðu þeir hertekið 50 prósent meira landsvæði en þeir áttu að fá í upphafi þegar því lauk. Í kjöl- far stríðsins hrekjast 750.000 Palestínu- menn á flótta en gyðingar streyma til hins nýstofnaða ríkis. 1918 Fyrri heims- styrjöld lýkur og hið ottómanska Tyrkja- veldi hrynur. 1920 Þjóðarbanda- lagið (League of Nations) felur Bretum yfirráð yfir Palestínu. Fórnarlamb Þessi fjögurra ára stúlka, Shayma Al-Masri, liggur hér á sjúkrahúsi eftir loftárás á heimili hennar. Þá fórust móðir hennar og fleiri ættingjar. Það er lítil huggun þótt hún hafi dúkkuna sína hjá sér. Í átökunum á Gaza, sem staðið hafa yfir í meira en viku, hafa um 200 íbúar Gaza látist og þúsundir særst. Einn Ísraelsmaður hefur látist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.