Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Síða 22
Helgarblað 18.–21. júlí 201422 Fréttir Erlent Fegurðar- drottning Olgu líður vel í faðmi móður- fjölskyldu sinnar. Hún er fegurðar- drottning og ætlar að fara í læknanám. Sektin beint í vasa löggunnar Tveir danskir lögregluþjónar eru í vondum málum þessa dagana. Þeir eru sakaðir um að hafa sektað erlenda ferða­ menn vegna umferðarlaga­ brota, rukkað þá á staðnum og stungið peningunum í vasann. Eru skiptin sögð fimm talsins. Lögum samkvæmt má lögregla krefjast þess að erlendir ríkis­ borgarar sem gerast sekir um umferðarlagabrot greiði með reiðufé á staðnum. Að sögn dönsku lögreglunnar leikur grunur á að fleiri lögregluþjónar stundi þessa iðju. Stálu 300 þúsund lítrum af bjór Bíræfnir þjófar stálu 300 þúsund lítrum af bjór úr vöruhúsi í vestur hluta Þýskalands á dögun­ um. Verðmæti bjórsins sem stolið var nemur rúmlega tveim­ ur milljónum evra, 300 milljón­ um króna. „Hefur einhver tekið eftir óvenjulega miklu magni af bjór?“ spurði lögregla í tilkynn­ ingu á þriðjudag. Ekki liggur ná­ kvæmlega fyrir hvenær bjórnum var stolið. Vitni segjast hafa séð flutningabíla ferja bjórinn úr húsinu á fimmtudag í síð­ ustu viku en ekki komst upp um þjófnaðinn fyrr en á mánudag. Nokkra flutningabíla, eða alla­ vega nokkrar ferðir, hefur þurft í verkið enda dugar magnið til að fylla tíu meðalstóra flutninga­ bíla. B úið er að loka elsta vændis­ húsinu í Bangladess og hafa verktakar hafist handa við að rífa húsnæðið til að rýma fyrir nýrri byggingu. Starfsemi mun hafa verið í vændishúsinu í 200 ár. Líklega er vændishúsið eitt elsta sinnar tegundar á heimsvísu, en það var stofnað er Bretar réðu ríkjum í Bangladess. Þar störfuðu um 750 vændiskonur þegar starfsemin var lögð niður og eru þær nú flestar á vergangi. Vændis­ konunum var gert að yfirgefa húsið á mánudag og í kjölfarið var hafist handa við að bera út úr því alla muni og hús­ gögn. Á þriðjudag hófst niðurrifið. Segja má að um lítið vændisþorp hafi verið að ræða. Starfsemin var í mörgum litlum húsum í borginni Tangail. Stjórnmálamenn og klerkar kröfðust þess að húsinu yrði lokað og beittu eigendur miklum þrýstingi. Húsið þótti svartur blettur á borginni og starfsemi þess til skammar. Eigendurnir ákváðu að leggja niður starfsemina á endanum. Vændi er algengt á þessum slóðum og aðstæð­ ur vændiskvenna mjög bágbornar. Vændi er ólöglegt í Bangladess, en hefur þó fengið að líðast án afskipta stjórnvalda. Lokun vændishússins kom því mjög á óvart. Konurnar sem unnu í húsinu bjuggu þar. Þær eru því nú á ver­ gangi og líklegt að þær séu þó enn undir okri hórmangara. Konunum var hótað með ofbeldi kæmu þær sér ekki úr húsinu. Talskona þeirra segir að bæjar­ stjórinn í Tangail hafi sent unga menn til að henda konunum út. „Mennirnir voru vopnaðir bareflum og tilkynntu okkur að við hefðum klukkutíma til þess að taka dótið okkar og fara. Annars myndu þeir kveikja í húsinu,“ segir hún og seg­ ist óttast um hag kvennanna. Þær sem ekki náðu að fjarlægja eigur sín­ ar horfðu upp á mennina taka það og setja á vörubíla og flytja í burtu. „Þeir stálu því bara,“ segir hún. n astasigrun@dv.is Lokuðu 200 ára gömlu vændishúsi 750 konum var hótað með ofbeldi að koma sér í burtu Sautján ára í vændi Stúlkan á myndinni, í gula kjólnum, er sautján ára gömul og heitir Hashi. Hún starfaði í vændishúsinu. Þessi mynd er tekin árið 2012, en þá var algengt að hún þyrfti að sinna allt að 15–20 mönnum á dag og fékk að jafnaði greitt um 12 dollara fyrir daginn. Mynd ReuteRS „Ég var ekki ein af þeim“ þ egar Olga Romanovich var fjögurra ára gömul var henni rænt af mannræningjum frá fjölskyldu sinni. Hún var seld til sígaunafjölskyldu, eða Rómafólks, sem greiddi mann­ ræningjunum í gulleyrnalokkum fyrir hana. Nafni hennar var breytt og hjá nýju fjölskyldunni hét hún Maria Preyda. Hún segist hafa átt bæði góða og eðlilega barnæsku. Hún var þó alltaf meðvituð um að hún ætti fjöl­ skyldu annars staðar. Hún velti því fyrir sér hver móðir hennar væri, sem hún saknaði afar sárt. Í dag er Olga tvítug og með aðstoð Interpol hefur hún fundið móður sína og fjölskyldu í Hvíta­Rússlandi, sextán árum eftir að henni var rænt. Fékk nýtt nafn Lífið var ósköp venjulegt hjá fjöl­ skyldunni sem ól hana upp, seg­ ir Olga. Það var maður sem heit­ ir Igor Preyda sem tók hana að sér. Móðir hans sá helst um upp­ eldi Olgu og gerði það af mik­ illi alúð. „Mér var gefið nýtt nafn – Maria. Ég gat aldrei vanist því, ég hét auðvit­ að Olga. Ég fékk líka annað eftir­ nafn, Preyda eins og þau. Amma mín varð eins og önn­ ur móðir og sá til þess að barnæska mín var mjög eðlileg,“ segir Olga. Það tók hana tíma að aðlagast nýjum að­ stæðum. Fjölskyldan bjó í Moldóvu og með tíð og tíma lærði hún tungu­ mál Preyda­fjölskyldunnar sem og moldóvsku. „Ég fór líka í skóla og lærði rússnesku og fór í framhalds­ nám þar sem ég lærði hárgreiðslu og matreiðslu,“ segir hún. Þrátt fyrir það var hún alltaf utan garðs. elskaði þau „Ég elskaði fjöl­ skylduna sem tók mig að sér. Þau ólu mig upp eins vel og þau gátu. Þau vildu allt fyrir mig gera. En þegar ég varð eldri áttaði ég mig á því að þetta var ekki líf mitt. Ég var ekki ein af þeim eins og allir aðrir fjölskyldumeð­ limir. Ég var öðruvísi. Það kvaldi mig að vita ekki hvar raun­ verulega fjölskylda mín var,“ segir hún. „Spurningarnar voru svo margar. Ég velti því fyrir mér: Hver er ég, hvaðan kem ég og hvernig endaði ég hér?“ Þegar amma hennar veiktist ákvað Olga að spyrja hana spurninga um uppruna sinn. Gamla konan hafði fá svör en hvatti hana áfram. „Farðu og leitaðu að fólkinu þínu. Ef ég vissi eitthvað um móður þína hefði ég sagt þér það,“ sagði gamla konan. Olga komst í samband við lögreglumann hjá Interpol í gegnum krókaleiðir og þá fór boltinn að rúlla. Að lokum fannst fjölskylda hennar í Hvíta­Rúss­ landi. Plötuðu móður hennar Í ljós kom að Olga og móðir hennar, Tamara, voru nýfluttar til Hvíta­Rúss­ lands þegar Olgu var rænt. Móðir hennar hafði flúið þangað eftir erfið­ an skilnað. Einn daginn plataði hópur Rómamanna hana til þess að fara inn í verslun og kaupa sér tóbak. Þeir lofuðu að gæta telpunnar. Þegar Tamara kom út úr versluninni voru ræningjarnir og Olga á bak og burt. Móðir hennar leit­ aði til lögreglunnar sem rannsakaði ránið aldrei og Tamara fékk aldrei að vita hvað hefði orðið af dóttur hennar. Mannræningjarnir fóru með hana að bæ sem heitir Soroki í Moldóvu þar sem Olga var svo seld fyrir eyrna­ lokka úr gulli til Igors Preyda. Hann fór með hana heim. Ætlar í læknanám Olga býr nú hjá móðursystur sinni í Minsk, höfuðborg Hvíta­Rússlands, og hefur fjölskylda hennar tekið henni fagnandi. Þær mæðgur eru ekki í miklu sambandi og er Tamara mjög veik. Hvarf Olgu tók mjög á hana og hefur hún glímt við erfið líkamleg og andleg veikindi allar götur síðan. „Ég grét þegar við hittumst,“ segir Olga. Olga á þrjá hálfbræður sem móðir hennar eignaðist eftir hvarf henn­ ar. Þau systkinin hafa aldrei feng­ ið að hitta hvert annað þar sem að þeir voru teknir af móður hennar og á endanum ættleiddir til annarrar fjölskyldu. Fólkið sem ættleiddi þá óskaði eftir rannsókn á hvarfi Olgu, en sú rannsókn skilaði aldrei neinu. Til stendur að þau systkinin hittist á komandi mánuðum. „Ég er ekki reið yfir því sem gerðist. Ég ólst upp við ást og umhyggju. En þetta voru erfiðir endurfundir. Móð­ ir mín er mjög veik og hefur glímt við mjög margt. Það sem kom fyrir mig er ekki henni að kenna – þetta voru bara örlög okkar,“ segir Olga. Hún er fegurðardrottning og hefur tekið þátt í mörgum slíkum keppnum. Hún hyggst nú fara í læknanám. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Aðeins fjögurra ára Olga var fjögurra ára þegar henni var rænt frá móður sinni. n Olgu var rænt þegar hún var 4 ára n fann fjölskyldu sína þegar hún varð 20 ára

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.