Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Page 37
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Skrýtið Sakamál 37
Kaldrifjaður Kennari
n Sunnudagaskólakennarinn reyndist vargur í véum n Skaut eiginmanninn til bana
R
étt upp úr klukkan sex að
morgni fimmtudagsins 1.
febrúar 1988 var hringt í lög-
regluna í Durham í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum.
Á hinum enda línunnar var Bar-
bara Stager og sagði hún lögreglunni
að eiginmaður hennar væri dáinn
vegna slysaskots.
Sagði Barbara að eiginmaður
hennar, Russel Stager, hefði haft það
fyrir vana að sofa með skammbys-
su undir koddanum og að hún hefði
sennilega rekist í byssuna í svefnrof-
unum þennan morgun með þeim af-
leiðingum að skot hljóp úr byssunni.
Í fyrstu sá lögreglan ekki ástæðu
til að bera brigður á frásögn Bar-
böru; altalað var að hún var hugul-
söm móðir og eiginkona, kenndi í
sunnudagaskóla og allt hafði virst
vera í lukkunnar velstandi hjá þeim
hjónum. Russel virtist á þessum tíma
hafa hlotnast allt það sem gaf lífinu
gildi; hann var virtur hafnabolta-
þjálfari í menntaskólanum í Dur-
ham, átti ástríka eiginkonu og heil-
brigða fjölskyldu.
Lík í farteskinu
En síðan hljóp snurða á þráðinn hjá
Barböru því fyrri kona Russels, Jo
Lynn Snow, sem hann hafði skilið við
ári áður en hann kvæntist Barböru,
setti sig í samband við lögregluna og
hafði frá ýmsu að segja. Jo Lynn sagði
að Barbara væri eyðslusöm og laus í
rásinni og að dauða fyrri eiginmanns
hennar, Larrys Ford, hefði borið
að með svipuðum hætti og dauða
Russels.
Jo Lynn hafði haldið góðu sam-
bandi við Russel eftir skilnað þeirra
og hafði Russel sagt henni, tveimur
mánuðum fyrir dauða sinn, að hann
og Barbara glímdu við fjárhagsvanda
og hann grunaði Barböru um að
standa í framhjáhaldi. „Hann bað
mig, ef eitthvað kæmi fyrir hann, að
kanna það,“ sagði Jo Lynn.
Larry Ford lést af skoti í höfuðið
í mars, 1978, í Randolph-sýslu, og
hafði Barbara þá sagt svipaða sögu
og tíu árum síðar. Lögregluyfirvöld
komust að þeirri niðurstöðu að um
hörmulegt slys hefði verið að ræða
og ekkert sem síðar kom í ljós færði
sönnur á annað.
Slapp í fyrsta sinn
Saksóknarinn Eric Evenson, sem
hafði dauða Russels á sinni könnu,
var sannfærður um að Barabara væri
ekki öll þar sem hún var séð og eftir
að hann hafði kafað í málið var hún
ákærð fyrir morð.
Undir lok réttarhaldanna yfir Bar-
böru, 30. ágúst 1989, sat kviðdóm-
ur á rökstólum í 44 mínútur áður en
hann komst að þeirri niðurstöðu að
Barabara væri sek. Daginn eftir var
kveðinn upp dauðadómur yfir Bar-
böru en þeim dómi var síðar breytt
í lífstíðardóm með möguleika á
reynslulausn eftir tuttugu ára afplán-
un.
Jo Lynn fór ekki í grafgötur með
sitt álit á Barböru Stager. „Ég er þess
fullviss að Barbara er raðmorðingi,“
var haft eftir henni. Lögreglustjór-
inn í Durham var Jo Lynn sammála:
„Hún komst upp með fyrra morðið.
Hún hélt hún gæti endurtekið leik-
inn, en varð ekki kápan úr því klæð-
inu.“
„Hún er ill“
Tuttugu árum síðar blasti við sá
möguleiki að Barbara Stager gæti á
ný um frjálst höfuð strokið og ekki
hugnaðist öllum sú tilhugsun. Ricky
Buchanan, lögreglustjórinn í Dur-
ham, var í hópi þeirra og sagði um
það leyti um þennan fyrrverandi
sunnudagaskólakennara: „Hún er
burðarás samfélagsins á daginn, en
að baki luktra dyra að nóttu til er hún
allt önnur kona. Hún er ill.“ Sagði
Ricky Buchanan að Barböru reyndist
létt að ávinna sér traust annarra og
það gerði hana einstaklega hættu-
lega.
Jo Lynn Snow sagði að hún ótt-
aðist ekki aðeins um eigið líf ef Bar-
böru yrði sleppt úr fangelsi held-
ur óaði hana við því þegar dauði
Russels yrði reifaður í umfjöllun
vegna mögulegrar reynslulausnar
Barböru. „Í hvert sinn sem við tölum
um Russ eða sinnum málum sem
tengjast honum, stendur hann nán-
ast ljóslifandi fyrir framan okkur og
að því loknu er eins og við þurfum
að jarða hann enn og aftur,“ sagði Jo
Lynn.
Barbara fékk ekki reynslulausn. n
„Hún komst
upp með
fyrra morðið. Hún
hélt hún gæti
endurtekið leikinn,
en varð ekki kápan
úr því klæðinu
Í járnum Barbara
Stager eftir að kveðinn
var upp yfir henni
dómur fyrir morð.
Russell Stager
Var vel liðinn af þeim
sem þekktu hann.
Noriega í mál
vegna
tölvuleiks
Manuel Noriega, fyrrum einvald-
ur Panama, hefur höfðað mál
gegn útgefendum tölvuleiks-
ins Call of Duty: Black Ops II.
Ástæðan er sú að hann telur að
persóna hans hafi verið notuð í
leiknum og hann málaður upp
sem „mannræningi, morðingi
og óvinur ríkisins“ eins og það er
orðað í stefnunni.
Noriega réð ríkjum í Panama
á árunum 1983 til 1989 en það
var einmitt Bandaríkjastjórn sem
steypti honum af stóli. Hann var
sakaður um margvíslega glæpi;
þar á meðal morð, mannrán og
eiturlyfjasmygl. Hann var dæmd-
ur í 20 ára fangelsi í Bandaríkj-
unum. Þá sat hann einnig af sér
dóm í Frakklandi áður en hann
var fluttur til Panama árið 2011
þar sem hann situr í fangelsi.
Sprengdu upp
hraðbanka
Fimm karlmenn hafa verið
dæmdir í fangelsi í Bretlandi fyr-
ir að sprengja upp hraðbanka og
hafa talsverða fjármuni á brott
með sér. Hlutu mennirnir fimm
til sex ára fangelsisdóm hver. At-
vikið átti sér stað í Sevenoaks í
Kent í nóvember í fyrra. Komu
mennirnir fyrir öflugri sprengju
á hraðbankanum áður en þeir
sprengdu hann nánast í loft upp.
Þannig tókst mönnunum að
komast yfir 19 þúsund pund sem
voru í hraðbankanun, 3,7 millj-
ónir króna. Töluverðar skemmdir
urðu á húsi við hraðbankann.
Sá ræningjana
á Google Maps
Kona sem varð fyrir því að vera
haldið í gíslingu á meðan vopn-
aðir menn fóru ránshendi um
heimili hennar í Oklahoma í
Bandaríkjunum vonast til að
hægt verði að handtaka ógæfu-
mennina eftir að nýjar upplýs-
ingar komu fram í dagsljósið.
Konan kom auga á mennina
á dögunum þegar hún skoðaði
myndir úr hverfinu sínu á Google
Maps. Atvikið átti sér stað í júlí
2011 en lögreglu tókst ekki að
hafa uppi á mönnunum. Kon-
an segist í samtali við New York
Daily News enn þann dag í dag
upplifa óöryggi vegna ránsins.
Á meðfylgjandi mynd sjást
mennirnir og segist konan sann-
færð um að um sömu menn sé
að ræða og brutust inn á heim-
ili hennar. Lögregla rannsakar
málið.