Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Blaðsíða 43
Helgarblað 18.–21. júlí 2014 Sport 43
Chelsea
Tímabil í úrvalsdeild: 22
Uppaldir leikmenn: 10
n Chelsea hefur lengi talist í hópi stórliða í
ensku úrvalsdeildinni en það er áhyggju-
efni hversu fáir uppaldir leikmenn hafa
komist í aðalliðið. Staðan er í raun þannig
að ekki er hægt að stilla upp 11 manna byrj-
unarliðinu því fjöldi uppaldra leikmanna
sem leikið hafa fimm leiki eða fleiri í
úrvalsdeildinni er aðeins tíu. Þó að tilkoma
Romans Abramovich hafi sitt að segja var
Chelsea fyrsta félagið í úrvalsdeildinni til
að stilla upp 11 manna byrjunarliði, bara
með erlendum leikmönnum. Það gerðist
á öðrum degi jóla árið 1999. John Terry er
líklega eina stórstjarnan sem komið hefur
upp úr akademíu Chelsea á síðustu árum
en meðal annarra leikmanna sem komið
hafa upp úr akademíu félagsins má nefna
Carlton Cole, Michael Duberry og Jody
Morris. Þá má geta þess að Ryan Bertrand
var keyptur frá Gillingham og Scott Sinclair
var keyptur frá Bristol Rovers á sínum
tíma. Enginn markmaður úr akademíu
félagsins hefur leikið 5 leiki eða fleiri frá
stofnun úrvalsdeildarinnar.
Byrjunarlið:
Enginn markvörður
Sam Hutchinson (0714) Michael Duberry
(93-99) John Terry (98-) Jon Harley
(96-01)
Paul Hughes (94-00) Josh McEachran
(10-) Jody Morris (95-03)
Mark Nicholls (94-01) Carlton Cole (01-06)
Neil Shipperley (92-95)
Tottenham
Tímabil í úrvalsdeild: 22 Uppaldir leikmenn: 20
n Tuttugu leikmenn hafa komið úr unglingaakademíu Tottenham en aðeins einn
hefur leikið allan sinn feril með félaginu, Ledley King. King neyddist að vísu til að
leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla. Sol Campbell kom upp úr unglingaliði
félagsins en hann ákvað sem kunnugt er að ganga í raðir Arsenal, stuðningsmönnum
Tottenham til armæðu. Nick Barmby, sem síðar lék með Everton og Liverpool, kom úr
akademíu Tottenham sem og markvörðurinn Ian Walker sem að vísu lék sinn fyrsta
leik áður en úrvalsdeildin var stofnuð. Enginn annar markmaður úr unglingastarfinu
hefur leikið fimm leiki eða fleiri í úrvalsdeildinni. Af þeim leikmönnum sem í dag eru í
leikmannahópnum má nefna Andros Townsend en hann hefur verið sendur í lán til níu
félaga frá árinu 2009. Jake Livermore, sem í fyrra var lánaður til Hull, er annar leikmað-
ur sem vert er að nefna sem og Steven Caulker sem leikur í dag með Cardiff.
Byrjunarlið
Enginn markvörður
Sol Campbell (92-01) Ledley King (99-12) Steven Caulker (09-13)
Luke Young (97-01) Andros Townsend (09-)
Dean Marney (02-06) Jake Livermore (08-14) Stephen Clemence (97-03)
Nick Barmby (92-95) Rory Allen (95-99)
Manchester United
Tímabil í úrvalsdeild: 22 Uppaldir leikmenn: 18
n Unglingaakademía Manchester United hefur staðið fyrir sínu á undanförnum árum
og ber þar hæst 92' árgangurinn svokallaði sem áttu stóran þátt í uppgangi United á
tíunda áratug síðustu aldar. Í þeim hópi voru leikmenn eins og Ryan Giggs, Nicky Butt,
Paul Scholes, David Beckham og Neville-bræðurnir. Taka ber fram að Giggs spilaði sinn
fyrsta deildarleik með United áður en úrvalsdeildin var stofnuð og því er hann ekki í
byrjunarliðinu hér að neðan. Þó að United hafi ekki framleitt leikmenn í sama gæða-
flokki og leikmennirnir hér að ofan á undanförnum árum hefur fjöldi frambærilegra
leikmanna komið úr herbúðum United. Af þeim leikmönnum sem í dag eru í leikmanna-
hópi aðalliðsins má nefna Tom Cleverley og Danny Welbeck svo dæmi séu tekin. Báðir
eiga þeir landsleiki að baki með Englendingum. Þá má nefna leikmenn eins og Wes
Brown og Phil Bardsley sem í dag eru á mála hjá Sunderland í úrvalsdeildinni.
Byrjunarlið
Kevin Pilkington (92-98)
Gary Neville (92-11) Wes Brown (96-11) John Curtis (97-00) Phil Neville (95-05)
Nicky Butt (92-04)
David Beckham (93-03) Tom Cleverley (09-) Paul Scholes (93-11) Ben Thornley (93-98)
Danny Welbeck (08-)
Liverpool
Tímabil í efstu deild: 22
Uppaldir leikmenn: 13
n Nokkrir af skærustu stjörnum
Liverpool, frá stofnun úrvalsdeildar-
innar, voru aldir upp hjá félaginu.
Fyrsta ber þar að nefna Steven
Gerrard og Jamie Carragher, sem unnu
meðal annars saman Meistaradeild
Evrópu árið 2005, eftir úrslitaleikinn
ótrúlega gegn AC Milan. Leikmennirnir
hafa verið ómetanlegir klúbbnum.
Aðrir tveir sem hafa heldur betur gert
garðinn frægan eru framherjarnir
Robbie Fowler og Michael Owen,
sem voru frábærir báðir tveir, þegar
þeir voru upp á sitt besta. Báðir
lærðu fótbolta hjá Liverpool. Annar
leikmaður sem mætti nefna, Steve
Mcmanaman, fellur ekki undir
skilgreininguna þar sem hann lék sinn
fyrsta leik árið 1990, löngu áður en
deildin var stofnuð. Raheem Sterling
er annar góður leikmaður Liverpool.
Hann gekk til liðs við Liverpool árið
2010 frá QPR, þar sem hann lærði til
verka. Á heildina litið hafa tiltölu-
lega fáir uppaldir leikmenn komið í
gegnum unglingaakademíu Liverpool
og spilað meira en 5 leiki fyrir félagið.
Aðeins 13 talsins. Þeir voru/eru hins
vegar nokkrir hverjir ansi góðir.
Byrjunarlið:
Enginn markvörður
Jon Flanagan (11- ) Martin Kelly (07- )
Jamie Carragher (96-13) Stephen
Warnock (02-07)
David Thompson (96-00) Steven
Gerrard (98- ) Jay Spearing (08-13)
Neil Mellor (02-06) Michael Owen
(96-04) Robbie Fowler (93-01)
Aston Villa
Tímabil í efstu deild: 22
Uppaldir leikmenn: 22
n Aston Villa hefur alið upp 22 leik-
menn, gjaldgenga með enska lands-
liðinu, frá árinu 1992. Margir þeirra hafa
leikið mörg ár á Villa Park. Framherjinn
Gabriel Agbonlahor hefur spilað meira
en 300 leiki fyrir félagið frá 2006 og
Lee Hendrie, miðjumaðurinn knái, lék á
sínum tíma 14 leiktíðir fyrir félagið. Þá
má nefna að Darius Vassel lék 162 leiki
og skoraði í þeim 35 mörk. Allt þetta
eru uppaldir leikmenn. Knattspyrnu-
stjórinn Martin O‘Neil gerði líklega mikil
mistök þegar þeir seldu Gary Cahill til
Bolton – leikmann sem ólst upp hjá fé-
laginu og er nú varnarmaður Chelsea og
fastamaður í byrjunarliði landsliðsins.
Gareth Barry, leikmaður Everton, er
líklega þekktasti Villa-maðurinn. Hann
er þó ekki uppalinn hjá félaginu. Hann
sleit barnsskónum hjá Brighton og var
keyptur þaðan 1997. Liam Ridgewell
spilaði sinn fyrsta leik fyrir Aston Villa
en ólst upp í akademíu West Ham. Í
dag eru nokkrir uppaldir leikmenn í
hópnum, til dæmis varnarmennirnir
Ciaran Clark og Nathan Baker.
Byrjunarlið:
Michael Oakes (91-99)
Rob Edwards (99-04) Gary Cahill
(04-08) Nathan Baker (09- ) Liam
Ridgewell (01-07)
Marc Albrighton (09-14)Craig Gar-
dner(05-10)Lee Hendrie(95-07)Peter
Whittingham (03-07)
Gabriel Agbonlahor (05- ) Darius
Vassell (98-05)
West Ham
Tímabil í úrvalsdeild: 18
Uppaldir leikmenn: 16
n Ljóst má vera að West Ham væri
búið að vera í toppbaráttunni á
Englandi undanfarin ár ef félaginu
hefði auðnast að halda í ungu leik-
mennina sína. Félagið hefur alið af sér
fullt af knattspyrnumönnum sem hafa
verið í lykilhlutverkum með stórum
liðum á undanförnum árum. Þar nægir
líklega að telja upp Frank Lampard,
Rio Ferdinand, Joe Cole og Michael
Carrick. Allir þessir hafa unnið ensku
úrvalsdeildina með öðrum liðum en
West Ham. Aðrir flottir leikmenn úr
smiðju félagsins eru Glen Johnson og
Mark Noble. Þrátt fyrir þetta hefur
liðið ekki „framleitt“ sérstaklega
marga leikmenn, miðað við önnur
félög. Frá árinu 1992 hafa aðeins 16
leikmenn sem alist hafa upp hjá West
Ham spilað fleiri en fimm leiki fyrir
West Ham í úrvalsdeildinni. Joe Cole
telst ekki með þar sem West Ham
keypti hann á 1,4 milljónir punda frá
Charlton þegar hann var 16 ára gamall.
Aðeins einn leikmaður, uppalinn, spilar
með liðinu í dag; Mark Noble. Þá má
nefna að Jack Collison er með lausan
samning en hann hefur spilað með
liðinu undanfarin sjö ár.
Byrjunarlið:
Enginn markvörður
James Tomkins (08- ) Rio Ferdinand
(96-00) Anton Ferdinand (03-08)
Michael Carrick (99-04)
Glen Johnson (02-03) Mark Noble (04-
) Jack Collison (07-) Joe Cole (98-03)
Frank Lampard (95-01)
Freddie Sears (08-12)