Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2014, Qupperneq 52
Helgarblað 18.–21. júlí 201452 Fólk
Uppáhaldsdrykkir
stjarnanna
Líkt og öðru fólki finnst allflestum
stjörnum gaman að fá sér í tána endrum
og eins. Þær búa jafnframt flestar yfir
talsverðum auðæfum til að fjármagna
partístandið og því ekki úr vegi að
skoða hvað fræga fólkið kýs að drekka
á djamminu. DV tók saman uppáhalds-
drykki nokkurra frægra einstaklinga.
Elísabet Bretadrottning
Ólíkt því sem margir myndu eflaust halda er te ekki uppáhalds
drykkur Bretadrottningar. Líkt og móðir hennar heitin er Elísabet
gefin fyrir gin og Dubonnet, en hið síðarnefnda er sætur fordrykkur
sem gjarnan er blandað við límonaði. Drykkinn vill Elísabet fá
framborinn með tveimur ísmolum og sítrónusneið – að sjálfsögðu
án allra ávaxtasteina, en þetta kom fram í heimildarmynd um
drottninguna árið 2009.
Johnny Depp Stórstjarnan Johnny Depp hefur ófáan drykkinn sopið og,
að eigin sögn, helst til of marga. Uppáhaldsdrykkur leikarans, sem tilkynnti síðasta sum
ar að hann væri hættur að drekka, er Bourbon Sour, en kokteillinn inniheldur viskí (svo
sem Bourbon), sítrónusafa, sykur og stundum eggjahvítur. Meðal fyrrverandi drykkju
félaga leikarans má nefna ofurstjörnurnar Keith Richards, Bob Dylan og Marlon Brando.
Simon Cowell X Factor
dómarinn og sjónvarpsstjarnan Simon
Cowell hefur greint frá því í viðtölum að
hann sé með alls konar fæðuóþol. Cowell
forðast til dæmis ger eins og heitan eldinn
og því kemur ekki á óvart að uppáhalds
drykkur kappans sé einmitt gerlausi bjórinn
Sapporo frá Japan.
Madonna Poppdrottningin
Madonna er enginn nýgræðingur þegar
kemur að áfengi og partístandi. Hennar
uppáhaldsdrykkur er hvorki meira né
minna en granateplamartíní en þann
drykk segist söngkonan drekka óspart á
tónleikaferðalögum sínum um heiminn.
Jay-Z Rapparinn
góðkunni er með dýran
smekk, en hans uppá
haldsdrykkur er hvorki
meira né minna en
kampavín af gerðinni
Armand de Brignac,
einnig kallað Spaða
ásinn. Flaska af víninu
kostar skildinginn
en hana má kaupa í
Bandaríkjunum fyrir
um 35 þúsund íslenskar
krónur.
Angelina Jolie
Leikkonan Angelina Jolie hefur í gegnum
tíðina rætt opinskátt um baráttu sína
við áfengis og eiturlyfjafíkn. Jolie segist
hafa verið á slæmum stað á unglings
árunum og um og eftir tvítugt en henni
tókst að snúa blaðinu við og er nú meðal
launahæstu leikkvenna heims. Þá sjald
an sem Jolie fær sér drykk núorðið er
það tequila sem verður fyrir valinu, enda
uppáhaldsdrykkur leikkonunnar.
Kim
Kardashian
Raunveruleikastjörnunni Kim
Kardashian er mikið í mun að
hugsa um útlit sitt og heilsu en
þegar kemur að drykkjarvali
hennar er ekkert til sparað.
Líkt og hjá dúddanum í The
Big Lebowski er uppáhalds
drykkur stjörnunnar White
Russian, Hvítur Rússi, en
uppistaða þessa sæta kokteils
eru vodka, kaffilíkjör og rjómi.
Hann má þó útbúa á marga
mismunandi vegu eftir smekk
hvers og eins.
„Eins og að stunda kynlíf með systur minni“
Diaz og Barrymore eru bara vinkonur
B
andaríska leikkonan Cameron
Diaz sagðist í viðtali við
tímaritið Harper‘s Bazaar á
dögunum vilja æla í munninn
á sér við tilhugsunina um að stunda
kynlíf með vinkonu sinni, Drew
Barrymore. Þær sögur hafa gengið
manna á milli í Hollywood undan-
farin ár að leikkonurnar séu meira
en bara vinkonur en nú hefur Diaz
blásið á allar sögusagnir þess eðlis.
„Fólk mun alltaf velta hlutum fyr-
ir sér. Fólk elskar hneykslismál. Það
vill setja stimpil á eitthvað sem það
skilur ekki,“ sagði Diaz meðal annars
við Harper‘s Bazaar.
„Sumir fjölmiðlar kölluðu eftir
athugasemd og þeir vildu vita hvort
ég væri með Drew. Ég sagði, bók-
staflega: „Það fær mig til að vilja æla
í munninn á mér.“ Það er eins og að
segja að ég sé að stunda kynlíf með
systur minni,“ sagði Diaz. „Eruð þið
klikkuð? Ég myndi ekki einu sinni
fara í þrekant með henni!“
Diaz og Barrymore hafa verið vin-
konur í mörg ár, en þær kynntust árið
2000 við tökur á myndinni Charlie‘s
Angels. Fyrr á þessu ári sagði Diaz að
hún teldi að „allar konur hafi laðast
kynferðislega að annarri konu“ auk
þess sem hún viðurkenndi í sjón-
varpsþættinum Watch What Happ-
ens Live að hún hefði sofið hjá konu,
en þessar yfirlýsingar kyntu á ný
undir hinum gömlu sögusögnum
um vinkonurnar. n
Bestu vinkonur Diaz og
Barrymore hafa verið bestu
vinkonur síðan þær léku saman í
Englum Charlie árið 2000.
Heimilislegur
innbrotsþjófur
Það átti sér stað heldur ein-
kennilegt innbrot í húsakynni
Kennedy- fjölskyldunnar í
Hyannis Port á dögunum. 53 ára
gamall ókunnugur maður gekk
inn um ólæsta hurð og hóf að
elda sér mat.
Stuttu síðar kom 16 ára barna-
barn Teds Kennedy heim og hélt
að innbrotsjófurinn væri fjöl-
skylduvinur. Þegar pabbi stráks-
ins hringdi til þess að athuga með
son sinn, svaraði innbrotsþjófur-
inn í símann.
Þá var hringt á lögregluna en
þegar hún mætti á svæðið sat
innbrotsþjófurinn sallarólegur
í sófanum að lesa bók. Maður-
inn sagðist vera með gjöf handa
söngkonunni Katy Perry og væri
einnig að bíða eftir John F. Kenn-
edy, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seta, sem er látinn. Lögregla gerði
sér fljótlega grein fyrir að hann
meinti ekki illt og væri veikur
á geði. Hann var þrátt fyrir það
færður út í handjárnum.
Studdi óvart
Palestínu
Söngkonan Rihanna hefur bland-
að sér inn í Palestínu- og Ísraels-
deiluna á samskiptamiðlinum
Twitter. „Biðjum fyrir friði og
fljótlegum endi á Ísrael-Palest-
ínu-deilunni. Er einhver von?“
deildi Rihanna í stöðuuppfærslu.
Enn fremur notaði hún myllu-
merkið #FreePalestine. Átta mín-
útum síðar var aftur á móti búið
að eyða þeirri merkingu.
Vinkona Rihönnu segir við
miðilinn TMZ að hún hafi eytt
stuðningsmerkinu við Palestínu
vegna þess að það hafi óvart far-
ið inn. „Hún vissi ekki einu sinni
að hún hefði tístað þessu þar til
skilaboð fóru að koma frá aðdá-
endum hennar,“ segir vinkonan.
Ekki er í raun vitað hvort að
Rihönnu hafi óvart tekist að
skrifa orðin og deila þeim, eða
hvort að skiptar skoðanir aðdá-
enda hafi orðið til þess að hún
hafi hætt við opinberan stuðning
við Palestínu.
Fimmtug í
dúndurformi
Ofurfyrirsætan Elle Macpherson
er í dúndurformi eins og sést á
meðfylgjandi mynd. Elle, sem
er fimmtug, stillir sér upp í bik-
iní á myndinni eftir að hafa tekið
sundsprett í sjónum. Elle hef-
ur lengi lagt mikið upp úr heil-
brigðum lífsstíl og uppsker svo
sannarlega eins og hún sáir enda
í toppformi. Á myndinni heldur
hún á grænum drykk en nýlega
setti hún drykkinn á markað og
er hann seldur í völdum búðum í
Bretlandi.