Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 26.–28. júlí 20144 Fréttir
Allt fyrir bæjarhátíðina,
útileguna og verslunar-
mannahelgina
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Þúsundir á
Landsmóti
Skáta
Mikill fjöldi manns er um þess-
ar mundir staddur á Landsmóti
Skáta, sem haldið er á Hömrum
á Akureyri. Mótið hefur staðið
yfir í tæpa viku, en því lýkur á
morgun, sunnudag.
Gert var ráð fyrir að um
6.000–8.000 manns legðu leið
sína á mótið. Dagskráin þar er
fjölbreytt, í búðunum er til dæm-
is boðið upp skipulagðar göngu-
ferðir, eldun á hlóðum og barna-
kvöldvökur. Einnig gefst gestum
tækifæri á að taka þátt í hluta af
almennri dagskrá landmótsins.
Aðgangur að mótinu hefur
verið opinn og hafa allir sem vilj-
að getað komið og tekið þátt.
Launavísi-
tala hækkar
Launavísitala í júní 2014 er 482,7
stig samkvæmt frétt á vef Hag-
stofunnar og hækkaði hún um
0,5% frá fyrri mánuði. Síðast-
liðna tólf mánuði hefur launa-
vísitalan hækkað um 5,4%. Í
launavísitölu júnímánaðar gæt-
ir áhrifa kjarasamninga fjár-
mála- og efnahagsráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs og Sambands
íslenskra sveitarfélaga við nokk-
ur stéttarfélög opinberra starfs-
manna sem undirritaðir voru í
maí og júní 2014. Vísitala neyslu-
verðs lækkaði um 0,17% frá fyrra
mánuði en hún er miðuð við
verðlag í júlí 2014 er 422,1 stig
(maí 1988=100). Vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis er 396,7 stig
og lækkaði um 0,23% frá júní.
Sumarútsölur gerðu það að verk-
um verð á fötum og skóm lækk-
aði um 11,6% en flugfargjöld
hækkuðu hins vegar um 17%.
Fékk viðurkennda
stöðu flóttamanns
n Yusuf fékk hæli eftir 14 ár á flótta n Flúði Afganistan þegar hann var sex ára
É
g fékk jákvætt svar í síðustu
viku. Þetta er mjög gott, ég er
virkilega ánægður,“ segir hinn
24 ára gamli Yusuf Mahdavi
frá Afganistan en hann hefur
fengið hæli á Íslandi og viðurkennda
stöðu sem flóttamaður. Yusuf sem
fékk jákvæðu fréttirnar í síðustu
viku er himinlifandi yfir niðurstöð-
unni og hyggst heimsækja skrifstofu
Útlendingastofnunar á næstunni:
„Ég þarf að láta taka mynd af mér svo
ég geti fengið skilríki og kennitölu.“
Helga Vala Helgadóttir er lögmað-
ur Yusufs en hún segir niðurstöðuna
afar ánægjulega fyrir mann sem
hefur verið á flótta frá sex ára aldri.
„Þetta er í rauninni í fyrsta skipti síð-
an hann var sex ára sem hans tilvist
er viðurkennd.“ DV greindi frá því
í janúar þegar Útlendingastofnun
hafnaði hælisumsókn Yusufs á þeim
forsendum að aðstæður í Afganistan
væru betri en þegar hann flúði. Sú
ákvörðun var kærð til innanríkis-
ráðuneytisins sem hefur nú snúið
henni.
Faðir hans drepinn
Yusuf flúði heimalandið þegar hann
var sex ára. Talibanar réðust inn í
þorpið hans í Wardak-héraði árið
1996 og drápu þorpsbúa. Í samtali
við DV í vetur sagðist hann muna
óljóst eftir atburðunum en að hann
myndi aldrei gleyma því að þennan
dag hefði faðir hans verið drepinn.
Þá hvarf bróðir hans og hefur ekki
sést til hans síðan. Yusuf, móður
hans og systkinum tókst hins vegar
að flýja úr þorpinu og til Íran.
Yusuf bjó við bágan kost í Íran til
ársins 2006 þegar dvalarkort hans
var eyðilagt af Bazets- hermönnum.
Hann flúði í gegnum Tyrkland til
Evrópu þar sem hann þvældist á
milli landa þar til hann kom hing-
að til lands árið 2011 og sótti um
hæli. Eins og fyrr segir hafnaði
Útlendingastofnun hælisumsókn-
inni þar sem ástandið í Afganistan
væri ekki jafn slæmt og það var þegar
hann flúði þaðan árið 1996.
„Eftir að þeir sögðu mér að um-
sókninni hefði verið hafnað þá varð
ég mjög sár. Þetta hefur verið erfið-
ur tími, ég hef grátið mikið, ég grét í
heila viku,“ sagði Yusuf af þessu til-
efni.
Breytir miklu
Það er afar sjaldgæft að þeir sem leiti
hælis á Íslandi fái viðurkennda stöðu
sem flóttamaður. Af þeim 137 sem
sóttu um hæli á fyrstu níu mánuðum
ársins 2013 fengu einungis níu hæli.
Átta þeirra var veitt réttarstaða flótta-
manna.
Yusuf hefur fram að þessu verið
með bráðabirgðadvalarleyfi en það
mun nú breytast. Helga Vala segir
niðurstöðuna breyta miklu fyrir
skjólstæðing hennar. „Það tekur
svolítinn tíma fyrir fólk að meðtaka
svona upplýsingar en þetta þýðir að
næstu fjögur árin fær hann að vera í
friði. Hann fær fulla heimild til þess
að vera á Íslandi og hann má vinna
hér.“
Helga Vala gagnrýndi ákvörðun
Útlendingastofnunar harðlega í sam-
tali við DV síðastliðinn vetur. „Þegar
við lítum síðan til þess að hann fór
frá landinu fyrir sautján árum, þegar
hann var sex ára, og að hann á engan
að þar, þá er auðvitað ruglað að ætla
að senda hann þangað aftur.“
Aðkast lögreglu
Yusuf sagðist í samtali við blaðið vera
orðinn langþreyttur á óvissu og bið.
„Það er erfitt að vera hælisleitandi
hvar sem maður er niðurkominn
í heiminum. Það velur sér enginn
þessa stöðu. Ég til dæmis, ég hef ekki
séð móður mína, bróður eða systur
í sjö ár, ég sakna fjölskyldu minnar
óendanlega mikið.“
Hann sagðist finna til ótta við
það eitt að hugsa til Afganistan: „Ég
á bara minningar um stríð. Tali-
banarnir voru hættulegir, mjög
hættulegir. Pabbi fór upp á háaloft en
þeir fundu hann þar og drápu hann
en okkur tókst að flýja út úr húsinu
og komast í burtu. Ég get ekki farið
þangað aftur enda eru talibanarnir
þar ennþá.“
Þess má geta að Yusuf var hand-
tekinn á heimili sínu í desember
þegar lögreglan leitaði að Tony
Omos, hælisleitanda frá Nígeríu.
Yusuf var færður í fangageymslur
lögreglunnar þar sem hann mátti
dúsa um nóttina að því er virðist að
tilefnislausu. Þá sagði ein lögreglu-
konan honum að fara heim til sín:
„Farðu heim til þín, þú tilheyrir ekki
þessum stað.“ Helga Vala hefur kært
þessar aðfarir lögreglunnar til ríkis-
saksóknara og er málið í rannsókn. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Loksins hæli Yusuf
Mahdavi frá Afganistan hefur
verið landlaus frá sex ára
aldri. Nú sér hann loks fram á
breytingar. Mynd Sigtryggur Ari
„Þetta er í rauninni
í fyrsta skipti síðan
hann var sex ára sem
hans tilvist er viðurkennd.
Þáttaskil Helga Vala Helgadóttir er lögmaður Yusufs. Hún segir niðurstöðuna breyta
miklu fyrir skjólstæðing sinn. Mynd Sigtryggur Ari