Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 26.–28. júlí 201432 Sport
Á fyrstu áratugum tuttugustu
aldar fylgdu myndir af fótbolta
mönnum með sígarettupökkum í
Englandi. Dixie Dean, mesta hetja
Everton fyrr og síðar, auglýsti síga
rettutegundina Carreras Clubs.
Og 1950 birtist andlit Stanley
Matthews í sígarettuauglýsingum fyr
ir tegundina Craven A, en hann var
einn besti fótboltamaður Englands
fyrr og síðar. Reyndar hægðu reyk
ingar ekki á þessum stórkostlega leik
manni því hann spilaði til fimmtugs.
Fljótlega eftir miðja öld hurfu
slíkar auglýsingar enda rann upp
fyrir almenningi að reykingar
eru krabbameinsvaldandi og al
mennt óhollar. Það þótti ekki leng
ur við hæfi að blanda reykingum og
íþróttum saman.
Samt komust mörg knattspyrnu
goð upp með að kveikja sér í. Hér á
síðunni eru nokkur dæmi. n
Atvinnumennirnir sem
reykja eins og strompar
n Maradona, Wilshere, Zidane, Cruyff og fleiri stjörnur n Þjálfarinn reykti á hliðarlínunni
E
nski landsliðsmaðurinn
Jack Wilshere, miðjumaður
hjá Arsenal, var gómað
ur með sígarettu á dögun
um. Ljósmynd sýnir hann
reykja í miðri sundlaugarveislu í
Las Vegas.
Arsène Wenger, stjóri Arsenal,
er sagður reiður því hann hefur
áður þurft að biðja Wilshere, sem
er 22 ára, að reykja ekki. Wilshere
sást líka reykja fyrir framan diskó
tek á síðasta tímabili. Þá gagnrýndi
Wenger lærisvein
sinn opinberlega,
sagði að reykingar
og íþróttir færu ekki
saman.
Jack Wilshere
er einn efnileg
asti fótboltamaður
Englands og von
andi stundar hann
ekki stórreykingar
á næstunni eða
leggur ferilinn í
hættu með óholl
ustu af öðru
tagi.
Margir reykt
Wilshere er að
sjálfsögðu ekki fyrsti frægi fót
boltamaðurinn sem reykir. Fyrir
nokkrum áratugum voru reyk
ingar mun algengari í boltan
um og sumir af þeim allra bestu
keðjureyktu.
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Verum
þjóðleg í
sumar
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is
Hollenski snillingurinn Johan Cruyff, einn
allra besti fótboltamaður sögunnar, reykti
pakka á dag allan ferilinn. Hann hafði mik
il áhrif á íþróttina með leikstíl sínum og
kænsku með Ajax, Barcelona og hollenska
landsliðinu. Eftir að hann lagði skóna á
hilluna sneri Cruyff sér að þjálfun og reykti
á hliðarlínunni. Þegar hann þjálfaði stórlið
Barcelona, fylgdi starfinu svo mikil streita
að Cruyff jók reykingar sínar til muna. Árið
1991, þegar hann hafði verið við stjórn
völinn í þrjú ár, þurfti hann að gangast
undir stóra hjartaaðgerð. Hann lagði sígarettur á hilluna og fór að
sjúga sleikipinna í staðinn. „Fótboltinn hefur gefið mér allt í þessu lífi;
tóbakið var næstum búið að svipta mig því öllu,“ sagði Cruyff síðar.
Einn sá besti reykti Brasilíski landsliðsfyrirliðinn Socrates leiddi stór
kostlegt lið Brassa á HM 1982 á Spáni, en margir telja
það með bestu fótboltaliðum sögunnar. Socrates
var töframaður sem var frægur fyrir undraverðar
sendingar og leikskilning. En hann var líka nokkurs
konar svartur sauður í boltanum því hann var víð
frægur fyrir stórreykingar og mikla áfengisdrykkju.
Socrates var mikill hugsuður, skartaði þykku skeggi
og sagði að helstu hetjur sínar væru þrjár: Fidel
Castro, Che Guevara og John Lennon. Og þrátt fyr
ir að vera atvinnumaður í fótbolta settist hann á
skólabekk samhliða ferlinum og útskrifaðist sem
læknir. Hann lagði skóna á hilluna 1989 og sneri sér
að læknisstörfum. Hann skrifaði líka greinar í brasil
ísk blöð um efnahagsmál og pólitík. Socrates lést að
eins 57 ára að aldri árið 2011.
Doktor Sókrates
Andlit tóbaks
Sígarettuauglýs-
ing með hetjunni
Stanley Matthews.
Frægur
strompur
Argentínu-
maðurinn
Diego
Maradona
reykir stóra
vindla. Hann
var þó þekkt-
astur fyrir
neyslu kókaíns
sem gerði á
endanum út af
við stórbrotinn
fótboltaferil
hans.
Svælt í
sundi Jack
Wilshere reykir
í veisluhöldum
í sundlaug í Las
Vegas í Banda-
ríkjunum.
Strompur
á æfingu Jack
Charlton, sem
vann HM 1966
með Englandi,
reykir á æfingu
með Leeds
United árið 1970.
Reykt á ögurstundu Franski snillingurinn Zinedine Zidane
reykti sígarettu í rólegheitum, stuttu áður en franska landsliðið
mætti því portúgalska í undanúrslitum HM 2006.
Reykti alla tíð
Franski lands-
liðsmarkvörð-
urinn Fabien
Barthez, sem lék
með Manchester
United á sínum
tíma, reykti
allan ferilinn.