Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 46
2 Tekjublaðið 26. júlí 2014 Topparnir greiða mun meira en 2012 n Þau greiddu hæstu skattana árið 2013 n Útgerðarmenn fyrirferðamiklir J ón Árni Ágústsson er skatta- kóngur Íslands árði 2013. Hann greiddi alls tæplega 412 milljónir í skatta á árinu. Jón Árni átti 13,3% hlut í lyfjafyr- irtækinu Invent Farma sem hann seldi árið 2013. Líkt og undanfarin ár eru það út- gerðarmenn og tengdir aðilar sem eru fyrirferðamiklir á listanum yfir þá sem greiða hæsta skatta. Af þeim tíu einstaklingum sem greiða hæsta skatta árið 2013 eru sjö útgerðar- menn eða aðilar tengdir þeim. Þá vekur athygli að þeir sem greiða hæstu skattana fyrir árið 2013 greiða mun hærri upphæðir en árið 2012. Jón Árni greiðir til að mynda 412 milljónir en árið 2012 greiddi Magnús Kristinsson mest eða 189 milljónir. Þeir tíu aðilar sem greiddu hæstan skatt árið 2012 greiddu samtals í kringum einn milljarð króna. Þeir tíu sem greiddu mestan skatt árið 2013 greiddu hins vegar í kringum 2,3 milljarða. Þeir 30 sem greiddu mestan skatt árið 2013 greiddu samtals 3,8 milljarða og en 2,3 milljarða árið 2012. n Jón Árni Ágústsson 411.842.058 krónur 1 Jón Árni Ágústsson var í hópi íslenskra fjárfesta sem keyptu tvö spænsk lyfjafyrirtæki á Spáni árið 2005. Fyrirtækin sérhæfðu sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja en það var íslenska fyrirtækið Invent Farma sem keypti fyrirtækin. Jón Ágúst Árnason var fyrir þessi kaup stjórnarmaður í Omega Farma sem hefði runnið inn í samsteypu samheita- lyfjafyrirtækisins Actavis. Það var Friðrik Steinn Kristjánsson lyfjafræðingur sem leiddi kaupin á spænsku lyfjafyrirtækjunum en hann var jafnframt stærsti hluthafinn í Invent Farma. Í september í fyrra greindi Viðskiptablaðið frá því að flestir hluthafar í Invent Farma, að undanskildum Friðriki Steini, hygðust selja hlut sinn. Jón Árni var á meðal hlutahafa en Viðskiptablaðið greindi frá því að deilur hefðu verið á milli Friðriks Steins og flestra annarra hluthafa. Guðbjörg M. Matthíasdóttir 389.163.843 krónur 2 Útgerðarkonan úr Vestmanna- eyjum hefur verið fastagestur á listanum undanfarin ár. Hún var í þriðja sæti yfir þá einstaklinga sem greiddu hæstan skatt árið 2012 og er nú í öðru sæti fyrir árið 2013. Þá var Guðbjörg skattadrottn- ing Íslands árið 2009 þegar hún greiddi 343 milljónir. Guðbjörg greiddi árið 2013 rúmlega tvöfalt meira í skatt en árið 2012, eða 389 milljónir nú en 136 þá. Guðbjörg rekur eina stærstu útgerð landsins, Ísfélagið í Vest- mannaeyjum, en útgerðin á mikinn kvóta. Eignir hennar eru auk þess að miklu leyti í ríkisskuldabréfum og því ekki hægt að segja að Guðbjörg sé áhættusækinn fjárfestir. Hún var nefnd í hópi 100 áhrifamestu kvenna Íslands árið 2014 í tímariti Frjálsrar verslunar. Guðbjörg samdi á árinu við slitastjórn Glitnis um mál er varðaði riftun vegna hlutabréfa- viðskipta sem hún átti við bankann örfáum dögum fyrir hrun. Guðbjörg hefur síðustu ár verið einn helsti hluthafi Árvakurs, útgáfufé- lags Morgunblaðsins. Ingibjörg Björnsdóttir 238.833.509 krónur 3 Ingibjörg er ekkja Árna Vilhjálms- sonar heitins en hann lést vorið 2013. Árni var formaður stjórnar HB Granda og fyrrverandi prófessor við við- skipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Þessi hái skattur sem Ingibjörg greiðir er vegna sölu hennar á hlutnum í HB Granda sem hún fékk í arð þegar Árni féll frá. DV greindi meðal annars frá því að Ingibjörg og systir Árna, Kristín Vilhjálmsdóttir, hefðu orðið af allt að fimm milljörðum króna þegar þær seldu Kristjáni Loftssyni hlutinn. Kristján og viðskiptafélagar hans greiddu um 2,6 milljarða króna fyrir 31,44 prósenta hlut fjölskyldu Árna í HB Granda sem var skráður í félagi hans Venusi. Í frétt DV um málið kemur fram að hlutur Ingibjargar í HB Granda var tvöfalt verðmætari en Kristján og viðskiptafélagar greiddu fyrir hann en Kristján átti forkaupsrétt. Hvatinn að við- skiptunum kom hins vegar frá Ingibjörgu þar sem hún virðist ekki hafa vilja eiga hlutinn áfram eftir fráfall eiginmanns síns. Ingibjörg er einn færasti dansari Íslands en árið 2012 hlaut hún heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV fyrir framlag sitt til danslistar. Um framlag hennar var sagt: „Ingibjörg Björnsdóttir hefur í meira en hálfa öld verið framfaraafl á sviði listdans, listdanssmíða, listdanskennslu, dansfræða og félagsstarfa á sviði listdans og enn þann dag í dag stígur hún skref sem opna heim danslistarinnar á einn eða annan hátt. Hún hefur lengur en nokkur annar unnið að margvíslegri eflingu listdans á Íslandi.“ Kristín Vilhjálmsdóttir 237.916.060 krónur 4 Kristín er systir Árna Vilhjálms- sonar heitins fyrrverandi formanns stjórnar HB Granda. Árni átti stóran hlut í fyrirtækinu sem og í fleiri fyrirtækjum í gegnum félag sitt Venus. Kristín seldi Kristjáni Loftssyni og viðskiptafélögum hans hlutinn líkt og Ingibjörg en líkt og lesa má hér að framan seldu þær hlutinn langt undir raunverulegu virði. Þær töpuðu allt að fimm milljörðum á sölunni. Þorsteinn Már Baldvinsson 211.152.221 krónur 5 Þorsteinn Már er einn ríkasti maður Íslands en hann er einn stærsti eigandinn og forstjóri Samherja. Fyrirtækið á og rekur umfangsmikla útgerð og sölufyrirtæki víða um heim. Einungis um þriðjungur starfsemi fyrirtækisins er á Íslandi. Þorsteinn greiddi mun meira í skatt árið 2013 en árið 2012 þegar hann var í áttunda sæti með um 85 milljónir króna. Eignarhaldsfélag Þorsteins, Steinn, á eignir upp á um þrjá milljarða og eru nánast engar skuldir á móti. Þorsteinn hefur verið áberandi í umræðunni út af Samherjamál- inu svokallaða. Þorsteinn sagði í upphafi árs í samtali við DV að hann hefði réttarstöðu sakbornings í málinu en það snýst um meint brot fyrirtækisins á gjaldeyrislagabrotum. Málið tók nýja stefnu þegar dótturfyrir- tæki Samherja lagði fram kæru á hendur Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómara. Ingveldur var kærð fyrir vanrækslu í starfi vegna úrskurðar um húsleit þegar hún veitti Seðlabanka Íslands heimild til húsleitar hjá Samherja í tengslum við rannsókn bankans á meintum brotum á gjaldeyrislögum. Helga S. Guðmundsdóttir 185.711.288 krónur 7 Helga á helmingshlut í eignarhaldsfélaginu Steini, sem er einn stærsti hluthafinn í Samherja. Helga á hlutinn á móti fyrrverandi eiginmanni sínum, Þorsteini Má Baldvinssyni. Ingimundur Sveinsson 172.706.840 krónur 8 Ingimundur er arkitekt og rekur Teiknistofu Ingimundar Sveins- sonar á Barónsstíg í Reykjavík. Guðmundur Kristjánsson 163.095.083 krónur 9 Guðmundur er einn eigenda útgerðarfélagsins Brims hf. Og er einnig framkvæmdastjóri þess. Brim komst í fréttir í byrjun árs þegar það til- kynnti að öllum 40 skipverjum á frystitogar- anum Brimnesi RE hefði verið sagt upp. Í tilkynningu frá félaginu sagði að rekstrar- grundvöllur frystitogara hefði breyst mikið á undanförnum árum og að með gríðarlegri hækkun á veiðigjöldum hafi rekstrargrund- völlur slíkra skipa brostið að mati félagsins. Í samtali við DV í febrúar sagði Guðmundur að veiðigjaldið legðist með mjög ósann- gjörnum hætti á rekstrareiningar. Sigurður Örn Eiríksson 103.507.662 krónur 10 Sigurður Örn býr í Garðabæ og er tannlæknir að mennt. Hann starfar einnig sem lektor við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Sigurður er kvæntur Berglindi Björk Jónsdóttur tónlistarkennara. Faðir Berglindar er Jón Guðmundsson heitinn, en hann rak um árabil fiskvinnsluna Sjólastöðina í Hafnarfirði. Kolbrún Ingólfsdóttir 98.824.957 krónur 11 Kolbrún er eiginkona Kristjáns Vilhelmssonar, annars aðal- eiganda útgerðarfélagsins Samherja. Stefán Hrafnkelsson 86.983.556 krónur 12 Stefán Hrafnkelsson, fram- kvæmdastjóri, stofnandi og fyrrverandi aðaleigandi íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Betware, seldi sextán prósenta hlut sinn í fyrirtækinu í nóvember 2013. Austurríska fyrirtækjasamsteypan Novomatic keypti fyrirtækið. Stefán lærði rafmagnsverkfræði og tölvunar- fræði við Háskóla Íslands á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar. Eftir það lauk hann meistaragráðu í tölvuverk- fræði við Washington-háskóla í Seattle í Bandaríkjunum. Kári Stefánsson 85.578.319 krónur 13 Síðasta ár hefur verið viðburðaríkt í lífi Kára Stefánssonar, forstjóra Ís- lenskrar erfðagreiningar. Fyrirtækið komst í fréttir í vor þegar það hóf lands- söfnun á lífsýnum landsmanna í tengslum við rannsókn. Yfir 100.000 manns fengu boð um þátttöku í samanburðarhópnum. Þá tilkynnti fyrirtækið í apríl um rannsókn á erfðafræði listhneigðar og fengu fjölmargir íslenskir listamenn boð um þátttöku í rann- sókninni. Kári var einnig heiðraður fyrir störf sín í þágu Alzheimers-rannsókna, en hann hlaut nýverið viðurkenningu bandarísku Alzheimers-samtakanna fyrir grein sem birtist í vísindatímaritinu Nature árið 2012 Arnór Víkingsson 84.421.624 krónur 14 Arnór er læknir að mennt og sérhæfir sig í gigtarlækningum. Arnór starfar á Landspítalanum og einnig í Svíþjóð. Chung Tung Augustine Kong 77.307.871 króna 15 Chung Tung er starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1996 og er stjórnandi á tölfræðisviði þess, en hann er með doktorsgráðu í tölfræði frá Harvard. Hákon Guðbjartsson 77.124.324 krónur 16 Hákon Guðbjartsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Íslenskri erfðagreiningu allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1996. Skúli Mogensen 76.597.722 krónur 17 Skúli hefur verið umsvifamikill í viðskiptalífinu á Íslandi síðustu ár. Skúli starfaði lengi fyrir fyrirtækið OZ en eftir að hann hætti þar seldi hann farsímafyrirtækinu Nokia hugbúnaðarlausn og hagnaðist vel á því. Eftir það fjárfesti hann hér á landi, meðal annars í MP banka og flugfélagsins WOW air, en hann er for- stjóri þess. WOW hefur dafnað mikið síðustu misseri, en félagið hóf til að mynda áætlun- arflug til Bandaríkjanna í vor. Skúli afsalaði sér eignum sínum til Landsbanka Íslands árið 2002. Hann hafði gengið í sérbanka- þjónustu Landsbankans árið 2000, á meðan bankinn var í eigu ríkisins, og fékk hann lán í bankanum upp á 1.100 milljónir króna. Nærri 500 milljónir króna voru afskrifaðar af skuldum Skúla árið 2003 og var hann meðal þeirra viðskiptavina bankans sem mestar afskriftir fengu á þessum tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.