Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 20
Helgarblað 26.–28. júlí 2014
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 70 70FR JÁL S T, Ó HÁÐ DAG B L AÐ DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALNÚMER
RITSTJÓRN
ÁSKRIFTARSÍMI
AUGLÝSINGAR
Sandkorn
20 Umræða
Böðlar Ísraelsríkis
S
igmundur Davíð Gunn
laugsson forsætisráðherra á
heiður skilinn fyrir skýra af
stöðu til stríðsbrölts Ísraels
manna á Gaza. Bréf Sig
mundar til Benjamíns Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels, felur í sér
alvarlega viðvörun til Ísraelsmanna
um að þjóðin sem studdi sjálfstæði
Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum sé
nú að fá nóg af ólýsanlegum fanta
skap og stríðsbrölti sem kemur
harðast niður á börnum og öðrum
saklausum borgurum. Árum saman
hafa Ísraelsmenn haldið Palestínu
mönnum í herkví. Og undanfarið
hafa þeir staðið fyrir blóðbaði þar
sem lagt er til atlögu gegn hrjáðri
þjóð með ofurefli. Heimsveldið
Bandaríkin stendur að baki böðul
skapnum. Í þeirra skjóli eiga sér nú
stað það sem kallað er af mörgum
stríðsglæpir.
Vissulega á Ísrael sér þann mál
stað að hryðjuverkasamtökin Hamas
hafa haldið uppi stöðugum árásum.
Þar er þó engu hægt að jafna saman
afleiðingunum. Hundruðum saman
hafa Palestínumenn fallið í valinn
á meðan mannfall Ísarels er hverf
andi. Sá stóri er að murka lífið úr
þeim smáa. Blóðbaðið er beinlín
is skelfilegt. Og þeir sem eru ábyrgir
fyrir ómennskunni eru þjóð sem
sjálf hefur sætt einhverjum grimm
ustu ofsóknum á síðari tímum. Ekki
þarf að rifja upp þær hörmungar
sem Gyðingar gengu í gegnum þegar
þeir voru hundeltir og myrtir um alla
Evrópu. Í því ljósi er óskiljanlegt að
þeir skuli sýna af sér þá ómennsku
sem nú birtist heimsbyggðinni.
Heggur sá er hlífa skyldi.
Bréf forsætisráðherra Íslands
hefur mikinn slagkraft. Stuðningur
Íslendinga við stofnun Ísraelsríkis
árið 1948 skipti gríðarlegu máli. Ís
lendingar höfðu til þess þrek og
dug að standa upp og lýsa stuðn
ingi við hina hrjáðu þjóð sem varð
fyrir útrýmingarherferð Þjóðverja
og bandamanna þeirra. Íslendingar
tóku svipaðan slag síðar þegar Jón
Baldvin Hannibalsson, þáverandi
utanríkisráðherra, stóð í stafni ríkis
stjórnar sinnar og barðist fyrir sjálf
stæði Eystrasaltsríkjanna gegn
ógnarvaldi Sovétríkjanna. Viður
kennt er að stuðningur Íslands og
framganga Jóns Baldvins skipti
gríðarlegu máli. Enda er Jón Baldvin
virtur og heiðraður af heimamönn
um fyrir vikið.
Krafan um að Ísland slíti stjórn
málasambandi við Ísrael vegna
morðárásanna á Gaza fer vaxandi.
Bæði Samfylking og Vinstri græn
hafa sagt skýlaust að þetta sé eðli
legt skref af Íslands hálfu. Bréf Sig
mundar Davíðs ber með sér að stutt
er í að pólitísk samstaða myndist
um að grípa til slíkra aðgerða. Og
menn skyldu vera þess minnugir
að máttur smáþjóðanna getur verið
gríðarlegur þegar stjórnvöld hafa
til þess djörfung og dug og standa
með þeim sem eiga undir högg að
sækja. Það er nauðsynlegt að fara
gegn þeim föntum sem drepa jöfn
um höndum börn og hermenn. Þeir
sem stjórna því að árásir eru gerðar
á saklausa borgara eru sannkallað
ir böðlar Ísraelsríkis. Bréfið frá Sig
mundi Davíð felur í sér hárrétt fyrsta
skref. Það þarf að tryggja frið á Gaza.
Böndum þarf að koma á Hamas
svo árásum þeirra linni. En fyrst og
fremst þarf að tryggja að stríðsglæpir
eigi sér ekki stað. Heimurinn má
ekki sitja aðgerðalaus hjá. Íslenska
þjóðin á að stíga þau skref sem
þarf. Ef Ísraelsmenn halda áfram að
drepa fólk í krafti hernaðarlegra yf
irburða er ekkert annað til ráða en
að refsa þeim með þeim ráðum sem
Íslendingar hafa yfir að ráða. Þar má
hvergi hvika. n
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari
When you know
it, you know it
María Birta Bjarnadóttir giftist Ella Egilssyni á dögunum. – DV
Framsókn molnar
Framsóknarflokkurinn glímir við
atgervisflótta í kjölfar hatursum
ræðu gagnvart múslimum.
Framganga Sveinbjargar Svein-
björnsdóttur borgarfulltrúa í
kosningabaráttunni í Reykjavík
þótti vera með nokkrum endem
um. Þá var þögn Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar formanns í
málinu æpandi og til vitnis um að
hann væri sammála Sveinbjörgu.
Á miðstjórnarfundi á dögunum
átti formaðurinn fullt í fangi með
að bæla niður andstæðinga sína
sem vildu ólmir álykta gegn for
dómum. Afleiðing ólgunnar er að
flokkurinn er að molna niður.
Skömm Davíðs
Vangaveltur eru uppi um það
hvenær Davíð Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, setjist í helgan
stein og njóti himinhárra eftir
launa sem fylgja langri þing
setu og ráðherradómi. Fræg eru
orðin mistök
hans í Reykja
víkurbréfi, þar
sem hann sakaði
Tryggva Gunnars-
son, umboðs
mann Alþing
is, um að senda
tölvupóst um allt með eindregn
um skoðunum um andstæðinga
Ice savesamninga og fleira. Í
ljós kom að þetta var rangur
Tryggvi og Davíð situr eftir með
þá skömm að hafa úthúðað um
boðsmanni að ósekju. Það hefði
þurft einstaklega óupplýst frétta
barn til að gera mistök af þessu
tagi.
Taugaveiklun innan 365
Smám saman er að koma í ljós
hver áform 365 eru með ráðningu
Sævars Þráinssonar sem forstjóra.
Yfirvofandi sameining við Tal er
vísbending um að fyrirtækinu
sé ætlað að fara enn meira inn á
fjarskiptamarkaðinn. Innan fjöl
miðlahluta 365 er talsverð tauga
veiklun og óttast fólk að fram
undan séu harka
legar aðgerðir til
að hagræða og
gera fyrirtækinu
kleift að takast á
við breytta tíma
þar sem áskriftar
sjónvarp er á
undanhaldi. Ráðning Kristínar
Þorsteinsdóttur, fyrrverandi
starfsmanns Baugs, sem útgef
anda yfir Mikael Torfasyni aðal
ritstjóra þykir vísbending um að
tökin verði hert.
Vandi Valdimars
Yfirvöld á Vestfjörðum velta nú
fyrir sér framhaldinu á máli Valdi-
mars Lúðvíks Gíslasonar sem hefur
viðurkennt ábyrgð á því að hafa
brotið niður hús
að næturþeli.
Valdimar má
búast við ákæru
og síðan hörðum
viðurlögum
vegna húsbrots
ins. Reiknað er
með að hann gæti þurft að greiða
meira en 20 milljónir króna í við
gerðarkostnað. Það er ljóst að
Valdimar er í vanda.
Þetta var alveg
glatað
Guðmundur Þórarinsson, dagskrárstjóri ISTV, ræddi um bilun í útsendingu. – DV
Fyrir alla þá sem hafa
orðið fyrir ofbeldi
María Rut Kristinsdóttir ræðir um Druslugönguna. – DV
„Máttur
smáþjóð-
anna getur verið
gríðarlegur
F
yrir margt löngu gerðist það
að kría ein sem átti leið yfir
heimsins höf, sá klett rísa
úr sjó. Hún settist á gróður
snauðan klettinn og dritaði. Aðrar
kríur mættu á staðinn og varð til
varpland þarna í klettóttri auðn
inni. Staðurinn með hinu fyrsta
driti varð að útsýnistindi, sem
auðveldaði kríunum að fylgjast
með óboðnum gestum inn á varp
landið.
Svo gerðist það með tímanum,
að fræ fóru um loftin og einhver
þeirra enduðu í dritkletti þeim
sem kríurnar notuðu sem útsýn
isstall. Af þessu spratt síðan gróð
ur sem naut velsældar í nærandi
driti kríanna.
Aðrar fuglategundir komu
á klett þennan og dritþúfan óx
og dafnaði. Hún varð að grón
um hól og síðan að grónu fjalli.
Allt í kringum fjallið urðu til aðr
ar dritþúfur og alltaf fjölgaði fugli
sem vildi finna sér hreiðurstað í
námunda við dritþúfurnar, þar eð
þær þóttu svo fínar til útsýnis. Og
þarna á þúfunum sátu fuglar sem
drituðu hver í kapp við annan og
smátt og smátt hækkaði tindurinn
sem þeir sátu á.
Þegar menn síðan komu á
þennan stað, áttuðu þeir sig brátt
á því, að hér myndi vera um lög
mál að ræða; drit sem fær fræ og
fræ sem fá drit, skapa gróðurþekju
ef aðstæður eru hinar sæmileg
ustu. Og hinir vísindalega þenkj
andi menn; sem fundu upp lög
málin, komu sér saman um að gefa
úrgangi sínum hið myndarlegasta
vægi. Þeir fundu sér skjólgóða
staði, þar sem þeir gerðu þarfir
sínar og treystu svo á virkni lög
málsins um dritið og fræin. Arður
úrgangsins skilaði sér. Mönnum
þótti guðdómlegt að dreyma af
fall sitt og átti slíkur draumur alla
jafna að vera fyrirboði auðs. Menn
töluðu um – í krafti lögmálsins –
að eiga skít nóg af peningum, að
eiga mikið undir sér og að ganga
í hægðum sínum. Og menn uxu í
áliti ef þeir áttu litfagrar dritþúfur.
Og svo gerðist það að orð manna
öðluðust gildi. Sagt var að afurð
um sínum væri hver líkastur. Þeir
menn sem töldust saurlífisseggir
fengu sérstakan stall; efst á drit
þúfunni og þóttu hin mestu mikil
menni, einkum ef þeir áttu til nógu
sóðalegt orðbragð og ekki þótti
lakara að hafa illaþefjandi orðspor.
Ísland sjálft er þúfan sem krían
dritaði á hér forðum daga. Enn má
sjá smærri þúfur sömu tegundar,
sumar eru rétt að mótast, aðrar
eiga sér sess. Arnarhóll er ágæt
drithrúga, en til hliðar við hann er
lítil dritþúfa og þar stendur í dag
Stjórnarráð þjóðar sem þráir að
eiga skít nóg af peningum. n
Þótt víða sjáist vanrækt jörð;
varla boðleg svínum,
þá græðir vel sú góða hjörð
sem gekk í hægðum sínum.
Hin dásamlega dritþúfa
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
„ Ísland sjálft er
þúfan sem krían
dritaði á hér forðum
daga. Enn má sjá smærri
þúfur sömu tegundar,
sumar eru rétt að mótast,
aðrar eiga sér sess.