Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Síða 6
Helgarblað 26.–28. júlí 20146 Fréttir
Opnunartímar : 1. maí – 30. sept. alla daga kl. 11 - 18 eða eftir samkomulagi
Enginn sætir ábyrgð
vegna handtökunnar
n Rannsókn ríkissaksóknara á fjöldahandtöku hælisleitenda var felld niður
R
annsókn ríkissaksóknara
á fjöldahandtöku hæl-
isleitenda í Auðbrekku síð-
astliðið haust hefur ver-
ið felld niður. Þetta kemur
fram í skriflegu svari Sigríðar Frið-
jónsdóttur ríkissaksóknara við fyr-
irspurn DV. Málið var fellt niður
á grundvelli 145. greinar laga um
meðferð sakamála sem kveður á
um að ef gögn máls séu ekki nægi-
leg eða líkleg til sakfellis sé málið
látið niður falla án ákæru. DV bað
um rökstuðning fyrir niðurfellingu
málsins en í svari ríkissaksóknara
við þeirri beiðni segir að tilkynning
um niðurfellingu sakamáls ásamt
rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun,
sé einungis afhent kæranda og
kærðu.
Fundu ekkert þýfi
Aðgerð lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu og sérsveitar ríkis-
lögreglustjóra á heimili hælisleit-
enda í Auðbrekku í Kópavogi þann
26. september síðastliðið haust, var
mjög umfangsmikil en tugir lög-
reglumanna tóku þátt í henni, og
notuðust þeir meðal annars við
fíkniefnahunda. Þá voru dyr að her-
bergjum hússins brotnar upp að
næturlagi, menn handteknir á nær-
fötunum, og færðir þannig í ein-
angrun. Eins og DV greindi frá á
sínum tíma fengu þeir ekki að tala
við lögmenn sína þrátt fyrir ítrekað-
ar beiðnir þess efnis. Þá fengu þeir
ekki að njóta aðstoðar túlks. Enginn
mannanna var ákærður fyrir nokk-
uð saknæmt.
DV hefur áður fjallað um skýrsl-
ur lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu er varða mál nokkurra
þeirra manna sem handteknir voru
í aðgerðinni. Samkvæmt skýrslun-
um fæst ekki séð að nokkuð sak-
næmt hafi fundist í sameiginleg-
um rýmum í húsnæðinu. Þá kemur
meðal annars fram að ein af ástæð-
um aðgerðanna hafi verið: „eft-
irlit með útlendingum.“ Í tilkynn-
ingu sem lögreglan sendi frá sér í
kjölfarið var því haldið fram að lagt
hefði verið hald á þýfi. Í svari Frið-
riks Smára Björgvinssonar, yfirlög-
regluþjóns hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu, við fyrirspurn
DV kom hins vegar fram að ekkert
þýfi hefði fundist á vettvangi. Í lög-
regluskýrslunum kemur fram að
lögreglan hafi lagt hald á síma, ljós-
myndir og fartölvur en þessir munir
reyndust vera í eigu mannanna og
því ekki um þýfi að ræða.
Látinn liggja á gólfinu
Helga Vala Helgadóttir er lögmað-
ur þriggja manna sem handteknir
voru í aðgerðinni. Hún lagði fram
kærur fyrir hönd þeirra á hend-
ur starfsmönnum lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Kærurn-
ar byggðu á því að lögreglan hefði
með athæfi sínu brotið gegn stjórn-
arskránni, mannréttindasáttmála
Evrópu, lögreglulög og sakamála-
lög.
DV fjallaði um kæru eins
mannanna í janúar 2010. Í lýs-
ingu á málsatvikum kemur fram að
maðurinn hafi verið í fastasvefni
þegar fulltrúar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu og sérsveitarlið-
ar ríkislögreglustjóra ruddust inn í
herbergi hans í skjóli nætur: „Brutu
laganna verðir niður hurðir og
hurðarkarma á herbergi kæranda.
Var þess krafist að hann legðist á
gólfið í herbergi sínu á nærklæð-
um einum fata og var hann settur
í handjárn. Var kæranda ekki gerð
grein fyrir innrásinni eða ástæðu
handtökunnar.“
Þá kemur fram að kærandi hafi
verið látinn liggja á nærklæðun-
um á gólfinu í lengri tíma, „líkast til
um eina klukkustund þar til hann
var leiddur á nærklæðunum út í
lögreglubifreið sem stóð fyrir utan
húsið.“ Þess má geta að viðmælend-
ur DV lýstu aðförum lögreglunnar
með svipuðum hætti.
Áfallahjálp
Eins og DV greindi frá í haust þurftu
einhverjir mannanna á áfallahjálp
að halda í kjölfar aðgerðarinn-
ar. Guðbrandur Árni Ísberg, sál-
fræðingur hjá Sálfræðiráðgjöfinni,
var með einn þeirra til meðferð-
ar. Sá hafði upplifað mikið ofbeldi í
heimalandi sínu og eftir að hafa tek-
ið vel við meðferð mánuðina á und-
an var hann færður aftur á byrjun-
arreit eftir aðgerðir sérsveitarinnar.
Pia Prytz Phiri, fram-
kvæmdastjóri umdæmisskrifstofu
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna (UNHCR) í Norður-
Evrópu, gagnrýndi aðfarir lög-
reglunnar sérstaklega í viðtali við
DV í október. Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra lýsti
afstöðu sinni þegar hún var spurð
út í aðgerðirnar á Alþingi í nóvem-
ber. „Það er ekkert sem bendir til
þess að mannréttindabrot hafi átt
sér stað,“ sagði ráðherrann. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
„Var þess krafist
að hann legðist
á gólfið í herbergi sínu á
nærklæðum einum fata
og var hann settur
í handjárn.
Réðust inn að næturlagi Lögreglumenn réðust inn á heimili hælisleitenda að næturlagi þann 26. september í fyrra. Velflestar dyr
hússins voru brotnar upp í aðgerðunum. MYND SIGTRYGGUR ARI
Opnar á ný
Verslunin Lifandi markaður var
opnuð á ný í vikunni en nýir
eigendur tóku við rekstrinum eft-
ir að fyrirtækið sem rak verslun-
ina varð gjaldþrota. Í fréttatil-
kynningu frá versluninni kemur
fram að áfram verði lögð áhersla
á heilsu og heilnæman mat og
vörur. Auður Captial rak Lifandi
markað en Eign ar halds fé lagið
EE Develop ments hef ur tekið yfir
rekst ur fyr ir tæk is ins og mun, eins
og fyrr sagði, áfram starf rækja
versl un og veit ingastað í Borg ar-
túni. EE Develop ment sér hæf ir
sig í rekstri fast eigna en ætl ar nú
að hasla sér völl á sviði versl un-
ar- og veit ing a rekst urs samkvæmt
frétt sem birtist nýverið á mbl.is.
Norðfjarðar-
höfn stækkar
Verið er að vinna að stækkun
Norðfjarðarhafnar um þessar
mundir. Frá þessu er greint á vef
Síldarvinnslunnar. Í vikunni var
nýr 60 metra langur viðleguk-
antur vígður þegar Birtingur NK
lagðist að bryggju. Undanfarin ár
hefur verið landað um 200.000
tonnum á ári í Norðfjarðarhöfn en
það sem af er ári hefur verið land-
að 97.000 tonnum. Síldarvinnslan
er umfangsmesti starfsaðilinn á
svæðinu en aflaverðmæti sem var
landað í Norðfjarðarhöfn í fyrra
nam rúmum 15 milljörðum.
Krefur sveitarfélög um svör
Velferðarráðuneyti vill fá upplýsingar um stöðu á biðlistum eftir félagslegu húsnæði
S
tærstu sveitarfélög lands-
ins hafa verið krafin svara
í bréfi frá velferðarráðu-
neytinu um stöðu biðlista
eftir félagslegu húsnæði og hvort
sveitarfélögin séu að fullnægja lög-
boðnu hlutverki sínu. Óskar ráðu-
neytið eftir upplýsingunum fyrir 8.
ágúst næstkomandi. Greint var frá
því í lok síðasta árs að tæplega tvö
þúsund manns hafi þá beðið eft-
ir að komast í félagslegt húsnæði,
í nokkrum af fjölmennustu bæjum
landsins. DV fjallaði í vikunni um
mál Katrínar Drafnar Bridde, ein-
stæðrar fjögurra barna móður, sem
hefur þurft að búa hjá vinum og
vandamönnum frá því í maí vegna
þess að hentugt félagslegt húsnæði
finnst ekki fyrir fjölskylduna.
Í tilkynningu á vef ráðuneytis-
ins kemur fram að það vilji fá að
vita hver sé heildarfjöldi umsókna
um félagslegt leiguhúsnæði sem
barst annars vegar á síðasta ári
og hins vegar fyrstu sex mánuði
þessa árs. Vill það einnig fá svör
um hversu mörgum umsókn-
um var hafnað á þessum tveim-
ur tímabilum, hversu mörgum
félagslegum leiguíbúðum var út-
hlutað hjá hverju sveitarfélagi um
sig á þessum tímabilum og hver
fjöldi einstaklinga og, eða fjöl-
skyldna á biðlista eftir félagslegu
húsnæði hafi verið 30. júní 2014.
Ráðuneytið vill einnig að sveitar-
félögin upplýsi um fjölda einstak-
linga og fjölskyldna sem þáðu sér-
stakar húsaleigubætur hjá þeim,
hver fjöldi félagslegra leiguíbúða í
útleigu hafi verið í lok júní og loks
spyr ráðuneytið hvort sveitarfé-
lögin hafi uppi áætlanir um fram-
boð á húsnæði og aðrar úrlausnir
í húsnæðismálum þeirra sem ekki
geta leyst þau sjálf. n
erlak@dv.is
Krefst svara Eygló Harðardóttir, félags-
og húsnæðismálaráðherra. MYND SIGTRYGGUR ARI
Embætti
lögreglustjóra
ekki auglýst
Embætti lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu var ekki
auglýst laust til umsóknar eins
og gert var þegar Stefán Eiríks-
son var skipaður í embættið
árið 2007. Í staðinn var Sigríð-
ur Björk Guðjónsdóttir, lög-
reglustjórinn á Suðurnesjum,
flutt til Reykjavíkur og skipuð
í starfið af Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur innanríkisráðherra.
Öðru máli gegnir um hin nýju
lögregluumdæmi þar sem sér-
stakri valnefnd var falið að
tilkynna um skipan lögreglu-
stjóra. Þá verða embætti lög-
reglustjóra á Vestfjörðum og
í Vestmannaeyjum auglýst til
umsóknar á næstu dögum.