Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Síða 8
Helgarblað 26.–28. júlí 20148 Fréttir
„Ég ætla að standa
þetta af mér“
n Sigrún Lilja Guðjónsdóttir segir MP gagngert hafa reynt að fella hana
S
igrún Lilja Guðjónsdóttir
stofnaði fyrirtækið Gyðja
Collection árið 2007. Fyrir
tækið hannar og lætur fram
leiða fyrir sig ilmvötn, fylgi
hluti og tískuvörur. Sigrún segir að
hún hafi frá byrjun lagt allt í að byggja
fyrirtækið upp. „Ég hef gert það af heil
um hug, með endalausri vinnu. Ég hef
ekki haft fjársterka aðila á bak við mig,
þannig að ég hef þurft að byggja þetta
upp, skref fyrir skref,“ segir Sigrún.
Uppbygging fyrirtækisins hefur
þó ekki verið leikur einn og hefur Sig
rún Lilja lent í áföllum með rekstur
inn. Eitt félag hennar, Meyja ehf.,
varð gjaldþrota í kjölfar þess að stór
sending kom seint og gölluð frá fram
leiðanda í Tyrklandi í lok árs 2012.
Í kjölfarið lenti hún upp á kant við
MP banka, sem var einn af tveimur
viðskiptabönkum fyrirtækisins.
Einnig í viðskiptum við
Íslandsbanka
Forsaga málsins er sú að fyrirtækið
lætur framleiða tvær fylgihlutalínur,
annars vegar sérhannaða línu fyrir
stóran viðskiptavin og hins vegar línu
fyrir Gyðju. „Þarna vorum við búin að
selja þetta allt saman fyrirfram og fá
hluta af framleiðslunni fjármagnaðan
meðal annars í kröfufjármögnun hjá
MP banka,“ segir Sigrún og bætir við
að fyrirtækið hafi verið með megin
hluta veltu og fjármögnunar fyrirtæk
isins hjá Íslandsbanka.
Hún segir að MP banki hafi vitað
af því að fyrirtækið væri með annan
viðskiptabanka sem megnið af velt
unni færi áfram í gegnum strax frá
byrjun og að hún hafi komið því skýrt
til skila til starfsmanna þegar hún hóf
viðskipti við MP banka.
Framleiðandi ekki í stakk búinn
fyrir pöntunina
Sérframleidd lína fyrir stóran
viðskiptavin átti að koma í ágúst og
sér Gyðjulína í september og segir
Sigrún að þetta hafi átt að vera jóla
sala fyrirtækisins. „Við vorum með
alla samninga á hreinu við þennan
framleiðanda í Tyrklandi en þegar
fór að líða á fórum við að sjá að hann
væri ekki í stakk búinn til að standa
við þessa samninga. Og til að gera
langa sögu stutta, eftir mikla baráttu,
þar sem við fengum meðal annars
ræðismann Íslands í Tyrklandi til að
aðstoða okkur, kom í ljós að vörulínan
sem átti að vera tilbúin í ágúst, kom í
lok nóvember. Pöntunin kom ekki öll,
það vantaði töluvert í hana og talsvert
af því sem kom var gallað. Það var
kannski í mesta lagi helmingur fram
leiðslunnar söluhæfur. Jólasalan var
að bresta á og vörurnar vantaði. Þetta
voru sölur upp á samtals um fimmt
án milljónir. Fyrir okkar litla fyrirtæki
var þetta mikið högg eins og gefur að
skilja,“ segir Sigrún Lilja.
Sigrún segir að í kjölfarið hafi hún
hafist handa við aðgerðir til þess að
minnka skaðann. Hún fækkaði starfs
fólki og minnkaði kostnað. Hún segir
einnig að hún hafi farið til sinna við
skiptabanka og rætt við þá um að fá
svigrúm á meðan hún væri að vinna
fyrirtækið upp úr áfallinu sem það
varð fyrir. Þar segir Sigrún að hún
hafi fengið mikinn skilning frá öðrum
viðskiptabanka Gyðju, Íslandsbanka.
„Þeir gerðu allt sem þeir gátu til að
aðstoða okkur til dæmis með því að
fresta gjalddögum og lengja í lánum
á meðan við værum að vinna okkur
upp úr þessu. En viðmótið var töluvert
öðruvísi hjá MP banka og þar mætti
ég gríðarlegu mótlæti,“ segir Sigrún.
Settir afarkostir
Á þessum fundi sat útibússtjóri
sem Sigrún hafði ekki hitt áður og
aðstoðarútibússtjóri sem hún hafði
átt samskipti við frá byrjun. „Þetta var
manneskjan sem ég sat með þegar ég
skrifaði undir samningana þegar við
byrjuðum þarna í viðskiptum og var
viðstödd þegar ég sagði þeim að ég
væri í viðskiptum við þessa tvo banka
eins og lá í augum uppi í öllum árs
reikningum og gögnum sem þeir
fengu afhent í upphafi,“ segir Sigrún.
Á fundinum var henni bent á
klausu í samningnum, sem hún hafði
skrifað undir þegar viðskiptin hófust,
sem í segir að öll viðskipti skuli fara
fram í gegnum MP banka. Sigrún
segir að á fundinum hafi henni ver
ið sagt að hún gæti átt yfir höfði sér
kæru fyrir brot á þessum samningi
með því að hafa verið með viðskipt
in í tveimur bönkum, sem hafði ver
ið uppi á borðinu strax frá byrjun, og
voru henni settir afarkostir sem voru
á þá leið að annaðhvort kæmi hún
með öll viðskiptin til MP banka og
greiddi jafnframt upp öll lánin eða þá
að öll lán fyrirtækisins hjá bankanum
yrðu gjaldfelld og að bankinn myndi
taka yfir lagerinn, sem var veðsettur
á móti útlánunum, gera félagið gjald
þrota og kæra Sigrúnu persónulega.
Þeir hafi hins vegar ekki verið tilbúnir
til að taka við lánum Íslandsbanka og
því var staðan sem fyrirtækið var sett í
í raun óyfirstíganleg, segir Sigrún.
Sigrúnu var sagt að það væri ekk
ert í boði annað en að koma yfir til
MP banka því annars myndu þeir
framfylgja hótunum en engu að síð
ur myndu þeir ekki taka við lánum
fyrirtækisins hjá Íslandsbanka. „Þeir
gerðu þetta því algjörlega ógerlegt
fyrir okkur, þrátt fyrir að ef við hefðum
viljað láta undan til að reyna að
sleppa við gjaldþrot og kærur og fara
yfir til þeirra með öll okkar viðskipti,
þá hefðum við ekki getað það þar
sem okkar stærri rekstrarlán voru í
öðrum banka og þeir neituðu að taka
við þeim,“ Segir Sigrún.
Vildi ekki semja
Svo fór að bankinn tók lager Gyðju
upp í skuldina sem hann svo seldi á
uppboði. Sigrún útskýrir að það hafi
bara verið tvennt í stöðunni. Að semja
um uppgreiðslu lána, sem var reynt til
hins ýtrasta, eða að þeir fengju lager
inn upp í skuldina. Sigrún segir að það
sé í raun ótrúlegt að þeir virðist ekki
hafa viljað fá skuldina greidda, „því
þeir neituðu alltaf að semja og gera
uppgreiðsluáætlun, sama hve mikið
var reynt. Sé verðmatið á lagernum
hóflega reiknað eftir einhliða talningu
MP banka er hann rúmlega tíu millj
óna króna virði,“ segir Sigrún, en það er
reiknað virði lagersins miðað við stað
fest verð frá söluaðilum. „Það gefur
því auga leið að lagerinn hefði því dug
að vel fyrir þeim eftirstöðvum af útlán
um sem voru útistandandi hjá bank
anum, sem voru í heild rúmar sex
milljónir á þessum tíma.“
Lagerinn seldur á
bílauppboðssíðu
MP banki seldi lagerinn hins vegar á
uppboðssíðunni bilauppbod.is fyrir
rétt rúma hálfa milljón. „Ég mun aldrei
geta skilið hvers vegna þeir ákveða að
selja lager sem er 10 milljóna króna
virði á hálfa milljón og segja svo bara
takk nú viljum við að þú borgir okkur
restina sem upp á vantar. Hvern
ig getur svona viðgengist? Ég hafði
ekkert um þetta að segja, þeir hefðu
auðveldlega getað selt lagerinn fyrir
rúmar 10 milljónir en þess í stað kusu
þeir að selja hann á slikk á uppboðsvef
sem sérhæfir sig í bílauppboðum eins
og nafnið gefur til kynna,“ segir Sigrún.
„Ekkert regluverk á Íslandi virðist
hjálpa mér“
Sigrún segir að eftir þetta hafi hún
verið staðráðin í því að halda áfram.
„Harkan hjá MP banka var svo mik
il að þeir lögðu kröfu um gjaldþrota
skipti vegna félagsins fram áður en
þeir seldu lagerinn. Á þessum tíma
var MP banki búinn að gjaldfella öll
lán félagsins og gera kröfu um að allir
fjármunir sem í félagið færu myndu
renna beint upp í skuld.“ Sigrún seg
ist því ekki hafa getað pantað vörur að
utan í gegnum félagið heldur þurfti að
gera það í gegnum annað félag í henn
ar eigu, Gyðju Collection ehf.
Sigrún segir að fyrir henni virtist
eins og þeirra markmið hafi allt í einu
verið að reyna að fella hana og fyrir
tækið. „Ástæðuna veit ég ekki, en öll
um sem koma að þessu máli finnst
það gruggugt hversu hart var gengið
að mér. Ekkert regluverk á Íslandi virt
ist hjálpa mér. Þegar skiptastjóri var
skipaður yfir félaginu þá var hann til
dæmis á lögmannsstofu sem sér um
innheimtu fyrir MP banka. Þetta virkar
auðvitað á báða bóga. Lögmannsstof
an sem vann fyrir MP banka gegn mér
hefur einnig tekið að sér skiptastjórn
yfir félögum sem MP banki hefur verið
með í viðskiptum og hafa farið í þrot.
MP banki og lögmenn á þeirra vegum
virðast því oft vera báðum megin við
borðið,“ segir Sigrún.
Sigrún telur að lítil og meðalstór
fyrirtæki fái ekki nægan stuðning í
núverandi kerfi. „Það þarf að beita
sér fyrir því að þessum lögum verði
breytt, að þetta sé hægt og þar verð
ur Alþingi að grípa inn í, það er nánast
vonlaust fyrir fyrirtæki að vinna undir
þessu regluverki hér á landi.“
Vill breyta fjármálaumhverfinu
fyrir minni fyrirtæki
„Ég ætla að standa þetta af mér,“
segir Sigrún. „Og ég er að gera það og
held ótrauð áfram með Gyðju, sem er
hugarfóstur mitt. Þótt ég viðurkenni
að það hafi verði erfitt að fá þessa árás
á mig ætla ég að nýta mér þessa erfiðu
reynslu. Og ég veit að ég er algjörlega
með hreina samvisku. Það eina sem ég
hefði ekki átt að gera er að fara í við
skipti við MP banka,“ segir Sigrún.
Sigrún segir þó að þessi reynsla
hafi kennt henni mikið og hefur hún
ákveðið að reyna að nýta sér hana til
að hjálpa öðrum fyrirtækjum og láta
gott af sér leiða, „frekar en að láta
það buga mig. Því þannig getur þessi
reynsla vonandi orðið til þess að eitt
hvað lagist svo að fyrirtæki og stjórn
endur þeirra þurfi ekki að eiga von á
svona meðferð í framtíðinni. Því það
er mjög sorglegt að svona sé látið við
gangast,“ segir Sigrún, en hún hefur
hafið undirbúning á verkefni sem snýr
að því í grófum dráttum að byggja upp
og breyta í raun fjármálaumhverfinu
fyrir fyrirtækin í landinu og veita þeim
raunverulega aðstoð og fjármagn við
uppbyggingu og reksturinn. „Það eru
því spennandi tímar framundan,“ seg
ir Sigrún að lokum.
Blaðamaður reyndi ítrekað, í
marga daga, að ná sambandi við
lögmann MP banka, sem sá meðal
annars um sölu á lager Gyðju, en
hann svaraði hvorki símaskilaboðum
né tölvupósti. n
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
„Öllum sem
koma að þessu
máli finnst það
gruggugt hversu hart
var gengið að mér
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir
Sigrún lenti upp á kant við einn
viðskiptabanka sinn eftir að hafa
lent í greiðsluerfiðleikum.
MYND HORDUR SVEINSSON
MP banki Lögmaður MP banka svaraði
engum skilaboðum blaðamanns, þrátt fyrir
að ítrekað hafi verið leitað eftir svörum eða
viðbrögðum frá honum vegna málsins.
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5