Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Síða 22
Helgarblað 26.–28. júlí 201422 Fólk Viðtal L eikstjórinn Friðrik Þór er á ákveðnum tímamótum í lífinu. Hann fagnaði sextugsafmæli sínu í maí en er sannfærður um að eiga allavega þrjátíu góð ár í viðbót. „Ég á allavega eftir að gera 10–12 myndir sem ég er með í hugan- um,“ segir hann kankvís. „Bíbí Ólafs sagði að ég yrði 100 ára þannig að ég á örugglega nokkur góð ár eftir,“ segir hann. Við erum stödd á 101 hóteli þar sem honum finnst gott að hitta fólk til þess að funda og líklega falla viðtöl undir þann hluta. Það er rólegt, fáir á ferli enda hádegisösin búin. House- tónlist ómar í hátalarakerfinu. „Það er yfirleitt rólegt hérna og þess vegna fínt að vera hér,“ segir hann og pantar sér latte. Í þann mund stormar inn Ingi- björg Pálmadóttir, eigandi 101 hótels. „Nei, blessuð frænka,“ segir Friðrik og stendur upp og faðmar frænku sína. „Blessaður frændi. Til hamingju með afmælið, mikið er dásamlegt að ná svona aldri,“ segir hún brosandi við frænda sinn. Friðrik horfir á hana ei- lítið sposkur. „Sextugt já. Það er fínt, ég er enn í fótbolta,“ segir hann hlæj- andi og sest niður en frænkan heldur sína leið. Gamlar kempur sprikla Og það er rétt. Hann spilar fótbolta þrisvar í viku og er nýkominn af æfingu þegar viðtalið er tekið. Gamlar kempur sprikla saman og eltast við boltann í hádeginu þrisvar í viku. „Ég spila með Lunch United. Einar Kárason, Eyjólfur Sverrisson og kássa af góðum knattspyrnumönnum spila með Lunch,“ segir hann. Fótbolti hefur alltaf verið honum hugleikinn. „Fyrst var ég í Fram, síð- an þegar ég var 28 ára þá fannst mér ég vera orðinn alveg skelfilega gam- all og þá hættu allir að spila fótbolta. Ég og Ívar Gissurarson, vinur minn, stofnuðum þá félagið Árvakur. Það spilaði í deildinni og um bikarinn. Svo eftir það þegar félagar mín- ir flestir gáfust upp þá lánuðum við nafnið á félaginu og það fór illa. Ég var alltaf að leita að einhverju öðru félagi til að spila með en svo fann Einar Kárason þetta félag. Ég hélt að þetta væri einhver svona fótbolti sem ég hefði ekki mjög gaman af að spila, svo var þetta bara frábært félag sem er mjög gaman að spila með,“ segir hann um Lunch United. Hneig niður í Róm Friðrik hefur verið heilsuhraustur alla tíð, en fyrir að verða tveimur árum hneig hann niður á götu í Róm. Fékk hálfgert flogakast sem hann hefur þó ekki enn fundið skýr- ingu á af hverju stafaði. „Ég hef ekkert fengið þetta aftur, þannig að ég er bara fínn,“ segir hann og vill augljóslega ekki gera of mikið úr veikindunum. „Ég höf- uðkúpubrotnaði 1997 og ég held að þetta geti tengst því en læknarnir vilja meina að svo sé ekki,“ segir Friðrik. Þegar hann hneig niður var hann nýkominn til Róm frá Sarajevó þar sem hann hafði verið við kennslu. Þar hafði hann nælt sér í flensu og hafði þess vegna lítið getað sofið. „Þetta gæti þess vegna hafa verið svefnleysi, þetta var voða furðulegt. Ég var á spítala úti og svo skoðað- ur hér heima líka en þeir hafa ekki fundið neina skýringu á þessu og sérstaklega ekki eftir á því það hef- ur ekkert gerst síðan,“ segir hann. Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Hneig niður í Róm „Flökkulífið ekki mjög fjölskylduvænt Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri var lagður inn á sjúkrahús í Róm í fyrra, en ekki fannst hvað amaði að honum. Hann óttast þó ekki að vera lífshættulega veikur og segir að ef hann ætti að vera farinn úr þessari jarðvist þá hefði hann farist með annarri vélinni sem flogið var á tvíburaturnana, en hann átti bókað flug með annarri þeirra. Hann er sannfærður um að myndir munu nást af skrímslum á næstunni og segir suma halda því fram að hann eigi við áfengisvanda að stríða en því er hann sjálfur ósammála.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.